Ferill 79. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 502  —  79. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um heimild til nýtingar séreignarsparnaðar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur verið tekin ákvörðun um að framlengja heimild til nýtingar séreignarsparnaðar vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota sem fellur að óbreyttu niður 1. júlí 2021, sbr. ákvæði til bráðabirgða XVI og XVII í lögum nr. 129/1997?

    Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort lagðar verði til frekari framlengingar á þeim úrræðum sem vísað er til í fyrirspurninni.