Ferill 603. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1773 — 603. mál.
Frumvarp til laga
um félög til almannaheilla.
(Eftir 2. umræðu, 12. júní.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
Lög þessi gilda hvorki um félög sem stofnað er til með lögum frá Alþingi nema svo sé tekið fram í samþykktum þeirra né félög sem komið er á fót í ágóðaskyni fyrir félagsmenn. Lögin gilda ekki um félög skv. 5. gr. íþróttalaga, nr. 64/1998, nema svo sé tekið fram í samþykktum þeirra, sbr. þó 5. mgr. 29. gr.
Í lögum þessum er með félagi átt við félag til almannaheilla.
2. gr.
Styrkir til félaga.
3. gr.
Atvinnustarfsemi félaga.
Félagsmenn bera ekki persónulega ábyrgð á skuldum og öðrum skuldbindingum félagsins nema með félagsgjaldi sínu.
II. KAFLI
Stofnun félags til almannaheilla.
4. gr.
Stofnsamningur.
5. gr.
Samþykktir.
a. heiti félagsins,
b. tilgang, þ.m.t. fjármögnun og ráðstöfun fjármuna,
c. þátttökuskilyrði, sbr. 6. gr.,
d. skyldu félagsmanna til að greiða félagsgjöld og önnur gjöld til félagsins,
e. fjölda stjórnarmanna og varamanna þeirra eða lágmarks- og hámarksfjölda þeirra ásamt kjörtímabili stjórnarmanna og hverjir skuli rita firma félagsins,
f. reikningsár félagsins og samþykkt ársreiknings,
g. kjörtímabil endurskoðenda, endurskoðunarfyrirtækja, skoðunarmanna eða trúnaðarmanna úr hópi félagsmanna,
h. hvenær halda eigi aðalfund og með hvaða hætti eigi að boða aðalfund og aðra félagsfundi, hvernig fara eigi með eignir félagsins sé það lagt niður eða því slitið.
III. KAFLI
Félagsaðild.
6. gr.
Félagsmenn.
Öllum sem uppfylla skilyrði samþykkta um inngöngu í félag er hún heimil. Sá sem óskar inngöngu í félag skal sækja um aðild til stjórnar þess. Stjórnin tekur ákvörðun um aðildina sé ekki annað ákveðið í samþykktum félagsins.
Stjórn félags skal halda skrá yfir félagsmenn. Þar skal skrá fullt nafn, heimilisfang og kennitölu félagsmanna.
7. gr.
Úrsögn úr félagi.
8. gr.
Brottvísun úr félagi.
a. þær skyldur sem hann undirgekkst við inngöngu í félagið eða
b. þau skilyrði fyrir félagsaðild sem mælt er fyrir um í samþykktum félagsins eða í lögum.
Ákvörðun um brottvísun skal tekin á félagsfundi sé ekki kveðið á um annað í samþykktum félags. Getið skal um ástæður brottvísunar í ákvörðun félagsins. Félagsmaður getur tekið þátt í atkvæðagreiðslu um brottvísun sína. Áður en ákvörðun um brottvísun er tekin skal gefa viðkomandi kost á að tjá sig um málið.
Nú tekur stjórn félags, samkvæmt samþykktum þess, ákvörðun um brottvísun og skal þá sá sem brottvísun beinist að eiga rétt á því að skjóta þeirri ákvörðun til félagsfundar.
Ákveða má í samþykktum félags að félagsmaður teljist genginn úr því hafi hann ekki greitt félagsgjöld í ákveðinn tíma.
IV. KAFLI
Ákvörðunartaka.
9. gr.
Félagsfundir.
Aðalfund skal halda á þeim tíma sem ákveðið er í samþykktum félagsins. Sé ekki boðað til aðalfundar á hver félagsmaður rétt á að krefjast þess að fundurinn verði haldinn.
Aðra félagsfundi en reglulega aðalfundi skal halda hafi það verið ákveðið á aðalfundi, stjórnin telji ástæðu til þess eða minnst tíundi hluti atkvæðisbærra félagsmanna krefjist þess í þeim tilgangi að taka ákveðið mál til meðferðar.
Kröfu um félagsfund skal senda stjórn félagsins skriflega og greina fundarefni. Stjórn skal án tafar boða til fundarins. Hafi fundurinn ekki verið boðaður eða hafi ekki verið unnt að senda kröfuna til stjórnar skal ráðherra, að kröfu bærs eða bærra félagsmanna, láta boða til fundarins og heimila að fundurinn verði haldinn á kostnað félagsins eða leggja fyrir stjórn félagsins að gera það. Um fundarboð, kostnað o.fl. fer eftir ákvæðum laga um einkahlutafélög eins og við á.
Fundarstjóra á félagsfundi ber að sjá til þess að ákvarðanir fundar séu færðar til bókar. Fundarstjóri og minnst tveir fundarmanna, sem félagið eða fundurinn hefur til þess valið, skulu fara yfir og staðfesta fundargerð með undirritun sinni.
Félagsmenn eiga rétt á að fá bókanir skv. 5. mgr. afhentar krefjist þeir þess.
10. gr.
Aðalfundir.
a. breytingar á samþykktum félagsins, sbr. 2. mgr. 32. gr.,
b. afsal eða kaup fasteignar eða annarrar eignar sem þýðingu hefur fyrir rekstur félagsins,
c. skipulag kosninga skv. 15. gr.,
d. kosningu eða brottvikningu stjórnar, stjórnarmanna, endurskoðenda eða endurskoðunarfyrirtækis eða skoðunarmanna eða trúnaðarmanna úr hópi félagsmanna,
e. samþykkt ársreikninga og uppgjöf ábyrgðar,
f. slit félagsins.
Heimila má í samþykktum að stjórn félagsins geti ákveðið sölu, skipti og veðsetningu eigna félagsins.
11. gr.
Aðalfundarboð.
Tekið skal fram í fundarboði eigi félagsmenn rétt á að taka þátt í fundinum á rafrænan hátt. Þess skal jafnframt getið verði tjáningarfrelsi þeirra sem þannig taka þátt takmarkað á einhvern hátt.
Málefnum skv. 10. gr. verður ekki ráðið til lykta á fundinum sé þeirra ekki getið í fundarboði.
12. gr.
Atkvæðisréttur félagsmanna.
Hver félagsmaður hefur atkvæðisrétt sem nemur einu atkvæði sé ekki annað tekið fram í samþykktum. Enginn getur farið með atkvæðisrétt annars samkvæmt umboði sé það ekki sérstaklega heimilað í samþykktum.
Í samþykktum má ákveða að sá sem ekki hefur greitt félagsgjald um ákveðinn tíma geti ekki neytt atkvæðisréttar.
Í samþykktum skal mæla fyrir um fyrirkomulag rafrænnar atkvæðagreiðslu, sé hún heimiluð.
13. gr.
Hæfi á félagsfundi.
Stjórnarmaður eða annar félagsmaður, sem rekið hefur erindi fyrir félagið eða ber á því ábyrgð að öðru leyti, hefur ekki atkvæðisrétt um val eða brottvikningu endurskoðanda, endurskoðunarfyrirtækis, skoðunarmanns eða trúnaðarmanns úr hópi félagsmanna, samþykkt ársreiknings eða uppgjöf ábyrgðar varði þær ákvarðanir viðkomandi erindi.
Hæfi skv. 1. og 2. mgr. tekur einnig til þeirra sem koma fram fyrir félagsmann.
14. gr.
Ákvarðanir félags.
Minnst þrjá fjórðu hluta greiddra atkvæða þarf til breytinga á samþykktum félags, slita þess eða afhendingar meiri hluta eigna þess.
Ef félag er, samkvæmt samþykktum sínum, aðili að öðru félagi má ákveða í samþykktum að breyting á þeim krefjist einnig samþykkis síðarnefnda félagsins.
15. gr.
Kosningar.
Við meirihlutakosningu sigrar sá sem fær flest atkvæði mæli samþykktir félagsins ekki fyrir um annað.
Kosning á fundi getur verið rafræn enda séu notaðar aðferðir til að tryggja framangreind skilyrði um þátttöku, ákvarðanir, atkvæðisrétt og hæfi.
16. gr.
Ógildanlegar ákvarðanir.
Mál skal höfða innan þriggja mánaða frá því að ákvörðun var tekin eða frá dagsetningu bókunar ákvörðunarinnar hafi hún verið tekin rafrænt. Hafi mál ekki verið höfðað innan þessa tíma skal ákvörðunin talin gild, sbr. þó 1. mgr. 17. gr.
Hafi stjórnin höfðað málið skal þegar kalla saman félagsfund og velja umboðsmann til þess að halda uppi vörnum fyrir félagið.
17. gr.
Ógildar ákvarðanir.
Félagsmaður, stjórnin eða einstakur stjórnarmaður, svo og aðrir sem telja rétt á sér brotinn með ákvörðun félagsins, geta höfðað mál gegn félaginu til að fá það staðfest að ákvörðunin sé ógild.
18. gr.
Félagasambönd.
Ákvæði laga þessara um aðalfundi gilda eftir því sem við á um fundi fulltrúa aðildarfélaga í félagasambandi. Atkvæðagreiðsla samkvæmt þessari grein gildir ekki um málefni skv. 10. gr.
Í samþykktum má kveða á um að við atkvæðagreiðslu í félagasambandi geti félagsmenn í sambandinu tekið ákvarðanir fyrir hönd félagsins hvort sem þeir eru beinir félagsmenn í félaginu eða félagar í einhverju aðildarfélagi þess.
Atkvæðagreiðsla getur farið fram rafrænt, með pósti, tölvupósti eða á annan sambærilegan hátt.
V. KAFLI
Stjórnun félags.
19. gr.
Stjórn félags.
Stjórn félags skal móta stefnu og skipuleggja starf félagsins. Stjórnin skal funda reglulega til að hafa eftirlit með rekstri félagsins og taka ákvarðanir um starf þess. Stjórn skal halda gerðabók þar sem niðurstöður og ákvarðanir stjórnarfunda eru skráðar.
Stjórnin er ákvörðunarbær þegar meiri hluti stjórnarmanna sækir fund svo framarlega sem ekki eru gerðar strangari kröfur í samþykktum. Einfaldur meiri hluti atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum nema samþykktir kveði á um annað.
Stjórnin kemur fram fyrir hönd félags. Sé framkvæmdastjóri ráðinn fara stjórn og framkvæmdastjóri með stjórn félagsins. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur félagsins og skal hlíta stefnu og fyrirmælum stjórnar. Daglegur rekstur tekur ekki til ráðstafana sem eru óvenjulegar eða mikils háttar. Stjórnin skal sjá til þess að nægilegt eftirlit sé með bókhaldi félagsins og ber ábyrgð á samningu ársreiknings fyrir hvert reikningsár. Þá skal stjórnin sjá til þess að fjármunum félagsins sé ráðstafað á forsvaranlegan hátt í samræmi við tilgang félagsins.
Stjórn kýs sér formann nema samþykktir kveði á um annað. Stjórnarmenn og framkvæmdastjóri skulu vera lögráða. Nú hefur bú einstaklings verið tekið til gjaldþrotaskipta og er hann þá ekki bær til að sitja í stjórn félags eða gegna stöðu framkvæmdastjóra þess fyrr en hann er aftur orðinn fjár síns ráðandi.
Einungis stjórn félags getur veitt og afturkallað prókúruumboð.
20. gr.
Ritun firma.
Stjórn félags getur veitt stjórnarmönnum, framkvæmdastjórum eða öðrum heimild til að rita firma félagsins svo framarlega sem öðruvísi er ekki ákveðið í samþykktum þess. Ákvæði 5. mgr. 19. gr. og 1. mgr. 21. gr. eiga við um þá sem heimild hafa til ritunar firma.
Ritunarréttinn má takmarka á þann hátt að fleiri en einn fari með hann í sameiningu. Aðra takmörkun á ritunarrétti er ekki unnt að skrá.
Stjórn félags getur hvenær sem er afturkallað heimild sem hún hefur veitt til að rita firma félagsins.
21. gr.
Vanhæfi.
Stjórn félags er ekki heimilt að reikna sér, endurskoðendum, skoðunarmönnum, trúnaðarmönnum úr hópi félagsmanna, framkvæmdastjórum eða öðrum sem fara með stjórnunarstörf hærra endurgjald fyrir störf hjá félaginu en venjulegt er eftir eðli og umfangi starfanna.
Óheimilt er félagi að veita lán eða setja tryggingu fyrir þá sem getið er í 2. mgr. Sama gildir um þá sem eru í hjúskap, staðfestri samvist eða óvígðri sambúð með þeim og þá sem eru skyldir þeim eða mægðir í beinan legg ellegar standa þeim að öðru leyti sérstaklega nærri. Þetta á þó ekki við um fyrirgreiðslu félags sem fellur að starfsemi félagsins og allir sem uppfylla ákveðin skilyrði eiga jafnan aðgang að.
22. gr.
Bókhald og ársreikningur.
Á aðalfundi eða fulltrúaráðsfundi skulu kosnir einn eða fleiri endurskoðendur, endurskoðunarfyrirtæki, skoðunarmenn eða trúnaðarmenn úr hópi félagsmanna til að yfirfara ársreikning og varamenn þeirra. Ákvæði laga um endurskoðendur gilda um hæfi og störf endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja og ákvæði laga um bókhald gilda um hæfi og störf skoðunarmanna og trúnaðarmanna úr hópi félagsmanna. Trúnaðarmenn sem kosnir eru úr hópi félagsmanna mega ekki sitja í stjórn félagsins eða gegna stjórnunarstörfum fyrir það.
Hafi félag með höndum verulegan atvinnurekstur skal halda fjárreiðum og reikningshaldi varðandi þann rekstur aðskildu frá öðru bókhaldi og eignum félagsins. Sé félag í tengslum við atvinnufyrirtæki samkvæmt samþykktum sínum eða samningi skal þess getið í ársreikningi eða skýringum við hann.
Ársreikningur skal fullgerður og undirritaður eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Ársreikningur skal lagður fram á aðalfundi félags til samþykktar.
Eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings skal stjórn félags birta ársreikning, og ef við á samstæðureikning, ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis eða undirritun skoðunarmanns eða trúnaðarmanna úr hópi félagsmanna, sem og upplýsingar um hvenær ársreikningur var samþykktur, á vef félagsins eða opinberlega með sambærilegum hætti.
VI. KAFLI
Slit félags.
23. gr.
Slit félags.
Fjárhagslegar ráðstafanir félags sem félagsmenn hafa ákveðið að slíta eru eingöngu heimilar í þeim mæli sem nauðsynlegt er vegna slitameðferðar. Hafi skiptastjórar verið skipaðir er þeim heimilt að birta innköllun þar sem skorað er á lánardrottna félags að lýsa kröfum sínum og að gefa eignir félagsins upp til gjaldþrotaskipta, sbr. lög um gjaldþrotaskipti o.fl. Verði eignir, sem eftir standa þegar skuldir hafa verið greiddar, ekki nýttar á þann hátt sem samþykktir félagsins kveða á um skal skiptastjóri framselja eignirnar til landssamtaka sem félagið var aðili að eða til þess sveitarfélags sem félagið er með skráð lögheimili í við slit sem skal ráðstafa þeim til verkefna sem sambærileg eru þeim sem kveðið er á um í samþykktum félagsins. Skiptastjóri skal semja endanleg reikningsskil, efnahags- og rekstrarreikning, sbr. 22. gr., fyrir félagið og sjá til þess að þau séu varðveitt.
Félagi hefur verið slitið þegar slitameðferð er lokið, það er tilkynnt og félagið afskráð, sbr. 3. mgr. 32. gr.
24. gr.
Heimild til afskráningar á félagi.
Almannaheillafélagaskrá má jafnframt breyta skráningu þannig að afskráð félag sé skráð á nýjan leik enda berist beiðni þar um innan árs frá afskráningu og sérstakar ástæður mæli með endurskráningu. Ekki má ráðstafa heiti félagsins á þessum tíma. Þótt félag hafi verið fellt út af almannaheillafélagaskrá breytir það í engu persónulegri ábyrgð sem stjórnarmenn eða félagsmenn kunna að vera í vegna skuldbindinga félagsins.
VII. KAFLI
Slit félags með dómi.
25. gr.
Slit félags og veiting áminningar.
Í stað þess að slíta félagi getur dómurinn veitt því áminningu enda telst brot ekki verulegt.
Ef félagi er slitið eða það áminnt má einnig slíta eða áminna annað félag, sem beint eða óbeint er aðili í fyrra félaginu, hafi síðara félagið stuðlað að aðgerðum sem um er getið í 1. mgr., enda hafi því einnig verið stefnt.
Verði eignir félags, sem hefur verið slitið á þennan hátt, ekki nýttar á þann hátt sem samþykktir félagsins kveða á um, sbr. i-lið 5. gr., eða notkun þeirra stríðir gegn lögum eða góðum stjórnarháttum skulu eignir félagsins renna til ríkisins sem skal ráðstafa þeim til verkefna sem sambærileg eru þeim sem kveðið er á um í samþykktum félagsins.
26. gr.
Bráðabirgðabann við starfsemi félags.
Að beiðni ríkissaksóknara er dómara heimilt að banna starfsemi félags til bráðabirgða skv. 1. mgr., þrátt fyrir að mál hafi ekki verið höfðað til slita á félagi, ef rökstuddur grunur er um að félag brjóti ella að verulegu leyti gegn lögum eða skilgreindum tilgangi samkvæmt samþykktum sínum. Slíkt bráðabirgðabann fellur niður verði ekki krafist slita á félaginu innan 14 daga frá útgáfu bannsins og skal ekki gilda lengur en þar til mál er höfðað.
Óheimilt er að stofna nýtt félag um starfsemi sem bönnuð hefur verið til bráðabirgða.
27. gr.
Slit félags og skiptastjórar.
Ef dómurinn heimilar ekki stjórn félags að stjórna eignum þess skv. 2. málsl. 1. mgr. skal hann skipa því a.m.k. einn fjárhaldsmann til að varðveita eignir félagsins.
Við slit félags skal dómurinn tilnefna einn eða fleiri skiptastjóra ef þörf krefur. Ákvæði laga þessara um skiptastjóra og andmæli við ráðstöfun þeirra gilda eftir því sem við á.
Sé krafa um slit félags tekin til greina skal farið að fyrirmælum laga um skipti á dánarbúum o.fl. þar sem erfingjar taka ekki að sér ábyrgð á skuldbindingum hins látna.
VIII. KAFLI
Skráning í almannaheillafélagaskrá.
28. gr.
Stjórnvald.
29. gr.
Tilkynning um félag.
Tilkynningar til almannaheillafélagaskrár ásamt fylgiskjölum og tilskildum skráningargjöldum skal senda almannaheillafélagaskrá beint á því formi sem skráin ákveður. Skal málsmeðferð vera rafræn sé þess kostur.
Með tilkynningu skal senda stofnsamning, stofnfundargerð og samþykktir félagsins. Í tilkynningunni skal koma fram fullt heiti félags og tilgangur, heimilisfang og varnarþing, nöfn og kennitölur stjórnarmanna og varamanna og tilgreining stjórnarformanns og annarra þeirra sem geta skuldbundið félagið, auk takmarkana á þeim rétti ef einhverjar eru.
Stjórnarmenn og varamenn skulu undirrita tilkynninguna og lýsa því yfir að þær upplýsingar sem fram koma í tilkynningunni séu réttar og þeir sem þar koma fram hafi rétt til að skuldbinda félagið að lögum.
Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 2. mgr. 1. gr. er heimilt að skrá félög skv. 5. gr. íþróttalaga í almannaheillafélagaskrá þótt ekki sé tekið fram í samþykktum þeirra að þau séu félög til almannaheilla. Skal um tilkynningu til almannaheillafélagaskrár í slíkum tilvikum fara skv. 2.–4. mgr.
30. gr.
Meðferð tilkynninga.
a. hvort tilkynning samrýmist ákvæði 29. gr.,
b. hvort heiti félagsins sé skýrt aðgreint frá heiti annarra félaga sem þegar eru skráð og hvort heitið sé villandi,
c. hvort ákvæði laganna mæli gegn því að félagið sé skráð,
d. hvort ákvæði laga um fyrirtækjaskrá mæli gegn því að félagið sé skráð.
Mæli einhver þau atriði sem nefnd eru í 1. mgr. gegn því að félagið sé skráð, en ekki þyki þó efni til að hafna skráningu, skal þeim sem tilkynnir félagið til skráningar gefinn kostur á að bæta eða leiðrétta tilkynninguna. Þetta skal gert innan ákveðins frests sem almannaheillafélagaskrá setur. Hafi leiðrétting eða viðbót ekki borist innan frestsins skal hafna skráningu.
Mæli ekkert gegn skráningu skal skrá félagið í almannaheillafélagaskrá.
31. gr.
Tákn félags.
32. gr.
Tilkynning um breytingar og slit.
Breyting á samþykktum félags tekur gildi við skráningu í almannaheillafélagaskrá. Sama gildir um breytingu á stjórn félags og varastjórn og öðrum þeim einstaklingum sem geta skuldbundið félagið, auk takmarkana á þeim rétti ef einhverjar eru.
Þegar félagi til almannaheilla hefur verið slitið, sbr. VI. kafla, skal tilkynna það til almannaheillafélagaskrár og auglýsa slit félagsins í Lögbirtingablaði.
Almenn félagasamtök sem skráð eru í fyrirtækjaskrá geta að uppfylltum skilyrðum laga þessara farið fram á að samtökin verði skráð í almannaheillafélagaskrá. Skal félagið þá skila inn nýjum samþykktum, tilkynningu um stjórn, varastjórn og aðra þá sem geta skuldbundið félagið, auk takmarkana á þeim rétti ef einhverjar eru. Einnig skal tilkynna um endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki eða skoðunarmenn eða trúnaðarmenn úr hópi félagsmanna.
33. gr.
Reglugerðarheimild.
IX. KAFLI
Viðurlög.
34. gr.
Sektir eða fangelsi allt að tveimur árum.
a. skýra vísvitandi rangt eða villandi frá högum félags eða öðru er það varðar í opinberri auglýsingu eða tilkynningu, skýrslum, ársreikningi eða yfirlýsingum til aðalfundar eða forráðamanna félags eða tilkynningum til almannaheillafélagaskrár,
b. afhenda án heimildar eða nota aðgangsorð eða annað sambærilegt til að vera viðstaddur eða taka þátt í rafrænum stjórnarfundi eða félagsfundi.
35. gr.
Sektir eða fangelsi vegna brota sem varða atkvæðagreiðslu á aðalfundi.
a. aflar sér eða öðrum ólöglegs færis á að taka þátt í atkvæðagreiðslu eða ruglar atkvæðagreiðslu með öðrum hætti,
b. leitast við með ólögmætri nauðung, frelsisskerðingu eða misbeitingu aðstöðu yfirboðara að fá félagsmann eða umboðsmann hans til þess að greiða atkvæði á ákveðinn hátt eða til þess að greiða ekki atkvæði,
c. kemur því til leiðar með sviksamlegu atferli að félagsmaður eða umboðsmaður hans greiði ekki atkvæði, þó að hann hafi ætlað sér það, eða að atkvæði hans ónýtist eða hafi önnur áhrif en til var ætlast,
d. greiðir, lofar að greiða eða býður félagsmanni eða umboðsmanni hans fé eða annan hagnað til þess að neyta ekki atkvæðisréttar síns eða til að greiða atkvæði félaginu í óhag,
e. tekur við, fer fram á að fá eða lætur lofa sér eða öðrum hagnaði til þess að neyta ekki atkvæðisréttar síns eða til að greiða atkvæði félaginu í óhag.
X. KAFLI
Gildistaka o.fl.
36. gr.
Gildistaka.
37. gr.
Breyting á öðrum lögum.
1. Lög um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003, með síðari breytingum:
a. Á eftir orðinu „félög“ í 4. tölul. 2. gr. laganna kemur: félög til almannaheilla.
b. Á eftir orðinu „manns“ í 3. gr. laganna kemur: félög til almannaheilla.
2. Lög um skráningarskyldu félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri, nr. 119/2019: Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
a. Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Í stofnsamningi skulu koma fram upplýsingar um nöfn og kennitölur stofnenda og tilgangur félagsins.
b. 2. málsl. orðast svo: Stofnsamningur skal vera dagsettur og undirritaður af stofnendum félagsins.