Ferill 832. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1846 — 832. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um kostnað við ferðir ráðherra innan lands.
1. Hver var kostnaður vegna ráðherrabílstjóra, þ.e. laun, launatengd gjöld og annar kostnaður, á árunum 2017–2019?
Í mennta- og menningarmálaráðuneyti var launakostnaður fyrir tímabilið janúar 2017 til mars 2018 samkvæmt eftirfarandi töflu. Í apríl 2018 fluttist ráðherrabílstjóri yfir til Umbru (þá Rekstrarfélag Stjórnarráðsins) og voru fjárveitingar vegna ráðherrabílstjóra færðar til fjármála- og efnahagsráðuneytis frá sama tíma. Því er vísað til svara fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn um sama efni, fyrir tímabilið frá apríl 2018 til ársloka 2019.
2017 | janúar–mars 2018 | |
Launakostnaður | 11.408.566 | 2.866.834 |
2. Hver var rekstrarkostnaður ráðherrabíls á árunum 2017–2019? Ef bílar voru fleiri en einn óskast svar sundurliðað.
Rekstur ráðherrabifreiðar mennta- og menningarmálaráðuneytis færðist til Umbru (þá Rekstrarfélag Stjórnarráðsins) í apríl 2018 og eftir það hefur ráðuneytið ekki verið með bifreið í rekstri sínum. Eftirfarandi kostnaði ásamt afskriftum er skipt niður fyrir tímabilið janúar 2017 til mars 2018.
2017 | janúar–mars 2018 | |
Bifreiðakostnaður | 2.179.902 | 531.633 |
3. Hver var gistikostnaður vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
2017 | 2018 | 2019 | |
Gistikostnaður | 66.700 | 84.175 | 0 |
4. Hverjar voru dagpeningagreiðslur vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017– 2019?
2017 | 2018 | 2019 | |
Dagpeningagreiðslur | 0 | 0 | 0 |
5. Hver var annar kostnaður vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
2017 | 2018 | 2019 | |
Annar kostnaður | 0 | 0 | 0 |