Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1927  —  680. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lagalega ráðgjöf.


     1.      Hvaða viðmið eru viðhöfð þegar ráðuneytið leitar eftir ráðgjöf til stofnana eða starfsmanna, þ.m.t. félaga í eigu starfsmanna, lagadeilda Háskólans á Akureyri (HA), Háskóla Íslands (HÍ), Háskólans í Reykjavík (HR) og Háskólans á Bifröst (Bifröst) sem gegna stöðu nýdoktora, háskólakennara, lektora, dósenta eða prófessora í fullu starfi og hlutastarfi, þ.m.t. starfsmenn í gesta- og rannsóknarstöðum?
    Fagleg viðmið eru ráðandi þegar leitað er eftir lögfræðilegri ráðgjöf á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Leitast er eftir því að viðkomandi stofnun eða ráðgjafi sem leitað er til hafi sérþekkingu á viðkomandi málefni sem er umfram þá þekkingu sem er til innan ráðuneytisins. Þá getur það einnig átt við að stofnanir eða ráðgjafar séu fengnir til að taka þátt í verkefnahópum ráðherra þar sem þekking viðkomandi nýtist.

     2.      Vegna hvers konar verkefna er leitað lagalegrar ráðgjafar hjá starfsmönnum og stofnunum lagadeilda háskólanna og hversu oft vegna hverrar tegundar verkefna?
    Samkvæmt bókhaldi ráðuneytisins hefur Lagastofnun Háskóla Íslands verið greitt fyrir eitt verkefni, Skýrslu um búvörulög, 350.000 kr. Ekki hefur verið greitt vegna annarra verkefna frá árinu 2018.

     3.      Hversu mörg ráðgjafarverkefni, sem 1. tölul. lýtur að, hafa verið innt af hendi frá árinu 2018 og hversu mikið hefur verið greitt samtals fyrir ráðgjöfina á umræddu tímabili?
    Eins og fram kemur í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar hefur verið greitt fyrir eitt verkefni.

     4.      Hversu mikið hefur verið greitt fyrir verkefni sem vikið er að í 1. tölul. frá ársbyrjun 2018 og hversu mörg hafa verið innt af hendi af annars vegar starfsmönnum og hins vegar stofnunum:
                  a.      lagadeildar HA,
                  b.      lagadeildar HÍ,
                  c.      lagadeildar HR,
                  d.      lagadeildar Bifrastar?

    Sjá svar við 2. og 3. tölul. fyrirspurnarinnar.

     5.      Hvaða bókaútgáfu á sviði lögfræði hefur ráðuneytið styrkt frá árinu 2018 og hversu hár hefur styrkurinn verið fyrir hverja og eina útgáfu? Hvaða viðmið eru lögð til grundvallar við slíkar styrkveitingar?
    Ráðuneytið hefur ekki styrkt bókaútgáfu á sviði lögfræði á umræddu tímabili.