Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 430  —  309. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um ferðagjöf.

Frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.


     1.      Hver tók ákvörðun um að ferðaávísun sú sem send var öllum fullorðnum Íslendingum skyldi kölluð ferðagjöf?
     2.      Er það afstaða ráðherra að um gjöf sé að ræða ef skattgreiðslum er skilað til skattgreiðenda?


Skriflegt svar óskast.