Ferill 352. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 497  —  352. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um farsímasamband í dreifbýli.

Frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur.


     1.      Hversu mörg lögheimili í dreifbýli voru án Tetra-sambands árin 2021 og 2020? Svar óskast sundurliðað eftir póstnúmerum.
     2.      Hversu mörg símamöstur voru án rafmagns og hve lengi árin 2021 og 2020? Svar óskast sundurliðað eftir klukkustundum og póstnúmerum.
     3.      Hvað hyggst ráðherra gera til að ráða bætur á farsímasambandi í dreifðum byggðum og tryggja fjarskiptaöryggi íbúa?


Skriflegt svar óskast.