Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 806  —  315. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um Landeyjahöfn.


     1.      Hversu lengi hefur Landeyjahöfn verið lokuð það sem af er árinu 2022 og hvers vegna?
    Í janúar 2022 fór Herjólfur 34 ferðir til Landeyjahafnar en 92 til Þorlákshafnar. Tvo daga var ekkert siglt. Ákvarðanir sem þessar eru alltaf teknar með hagsmuni bæði farþega og áhafnar í huga. Til samanburðar voru farnar 286 ferðir til Landeyjahafnar og 20 til Þorlákshafnar í janúar árið 2021. Siglt var alla daga í janúar það ár.
    Dýpi í Landeyjahöfn reyndist takmarkað þegar mælt var 15. janúar 2022. Við þær aðstæður þarf að haga siglingum Herjólfs til hafnarinnar eftir sjávarföllum og veðri en ölduhæð þarf að vera undir 3 m og sjávarstaða há. Þá geta dýpkunarskip ekki athafnað sig í mynni Landeyjahafnar þegar ölduhæð er yfir 1,5 m. Það sem af er þessu ári hefur veður verið mjög óhagstætt og ölduhæð almennt yfir mörkum. Sjólag hefur verið óhagstætt í um þrjá mánuði samfellt og ölduhæð yfir 3 m í um helming tímans. Á þessu tímabili hefur aðeins tvisvar gefist veður til dýpkunar í einn dag í senn.

     2.      Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar eða hafnar til að opna Landeyjahöfn á ný og hvenær má búast við að það verði hægt?
    Nú í fjórðu viku marsmánaðar er dýpkunarskip við störf í Landeyjahöfn. Skipið þarf um fimm góða daga til þess að ná að fjarlægja nægjanlegt magn af sandi og er gert ráð fyrir að það náist í þessu úthaldi, þ.e. ef langtímaveðurspá gengur eftir.

     3.      Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að fyrirbyggja að Landeyjahöfn lokist endurtekið og tryggja að hún geti þjónað hlutverki heilsárshafnar svo að hægt verði að treysta á öruggar samgöngur við Vestmannaeyjar?
    Þegar Landeyjahöfn var gerð var reiknað með að í meðalárferði yrði nýtingarhlutfall hennar um 92%. Sú var ekki raunin framan af en með tilkomu nýs Herjólfs stórbættist nýting hafnarinnar og árið 2021 var nýtingartími hennar svipaður og áætlanir gerðu ráð fyrir.
    Vegagerðin mun bjóða út viðhaldsdýpkun hafnarinnar til næstu þriggja ára vorið 2022. Þá stendur til að gera þá kröfu að dýpkunarskipið hafi nægjanlega afkastagetu til að hægt verði að bregðast hraðar við ef dýpi í höfninni verður það lítið að hætta er á að höfnin lokist líkt og nú er. Engu að síður mun slíkt dýpkunarskip einnig hafa sín takmörk. Því er ljóst að dýpkun mun tefjast við sams konar aðstæður og verið hafa ríkjandi undanfarið. Þá má benda á að þó svo að dýpi sé nægjanlegt geta siglingar einnig raskast ef alda verður eins og hún hefur verið í vetur.

     4.      Telur ráðherra réttlætanlegt, í ljósi þess hvað samgöngur um Landeyjahöfn hafa löngum verið gloppóttar, að ekki sé daglegt áætlunarflug til Vestmannaeyja?
    Áreiðanleiki í siglingum til Vestmannaeyja hefur verið nokkuð mikill frá árinu 2019 og þeim dögum þegar aðstæður hafa krafist þess að siglt sé til Þorlákshafnar fækkað mikið.
    En þar sem ekki hefur verið flogið milli lands og Eyja á markaðslegum forsendum síðustu tvo vetur hefur ráðuneytið styrkt til bráðabirgða lágmarksflugsamgöngur milli lands og Eyja. Hefur verið bætt við aukaferðum vegna lokunar Landeyjahafnar á þessu ári. Þá hefur Vegagerðinni verið falið að kanna hvort heimilt sé að hefja ríkisstyrkt áætlunarflug á flugleiðinni á grundvelli skyldu til opinberrar þjónustu. Verði niðurstaðan sú að skilyrði þess séu til staðar er miðað við að ríkisstyrkt flug geti hafist næsta vetur að loknu útboði.

     5.      Telur ráðherra koma til greina að tryggja daglegt áætlunarflug til Vestmannaeyja, að minnsta kosti þá daga sem Landeyjahöfn lokast?
    Sjá svar við 4. spurningu.

     6.      Hver er framtíðarsýn ráðherra í málefnum Landeyjahafnar og almennt um hvernig tryggja megi öruggar samgöngur við Vestmannaeyjar?
    Unnið hefur verið að rannsóknum á því hvernig bæta megi aðstæður í Landeyjahöfn og fjölga þar nýtingardögum, m.a. með mannvirkjagerð og öflugri dýpkun, og eru slíkar aðgerðir í undirbúningi. Þá er jafnframt til skoðunar hvort til staðar séu forsendur til að hefja ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja.