Ferill 181. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1169 — 181. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannavarnir, nr. 82/2008 (almannavarnastig o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 7. júní.)
1. gr.
a. (2. gr. a.)
Almannavarnastig.
Ráðherra sem fer með málefni almannavarna gefur út reglur um almannavarnastig, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra og að höfðu samráði við almannavarnaráð.
b. (2. gr. b.)
Hættustund.
2. gr.
Hlutverk almannavarnaráðs.
Umsýsla vegna almannavarnaráðs og undirbúningur funda þess er í höndum ráðherra sem fer með málefni almannavarna.
3. gr.
Skipan almannavarnaráðs.
Einnig eiga ráðuneytisstjórar þeirra ráðuneyta sem fara með málaflokka skv. 1. mgr. sæti í almannavarnaráði. Þá eiga einnig sæti í ráðinu:
1. Ríkislögreglustjóri, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, forstjóri Fjarskiptastofu, forstjóri Samgöngustofu og forstjóri Vegagerðarinnar.
2. Forstjóri Veðurstofu Íslands, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og forstjóri Umhverfisstofnunar.
3. Landlæknir, sóttvarnalæknir og forstjóri Geislavarna ríkisins.
4. Orkumálastjóri og forstjóri Landsnets.
5. Fulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
6. Fulltrúi Rauða krossins á Íslandi.
7. Fulltrúi samræmdrar neyðarsvörunar.
8. Tveir fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
4. gr.
5. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Ráðherra sem fer með málefni almannavarna er æðsti yfirmaður almannavarna í landinu.
b. Í stað orðsins „almannavarnaástandi“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: almannavarnastigi skv. 2. gr. a.
6. gr.
a. Í stað orðanna „almannavarna- og öryggismálum“ í 1. mgr. kemur: almannavarnamálum.
b. Í stað orðanna „bæði áður og eftir að hættu ber að garði“ í lokamálslið 2. mgr. kemur: á hættustundu og þegar hún er um garð gengin.
c. Við 4. mgr. bætist: og getur að fengnu samþykki ráðherra farið fram á aðstoð hjálparliðs erlendis frá vegna almannavarnaástands í samræmi við alþjóðasamninga sem Ísland á aðild að, ef við á.
d. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um móttöku erlends hjálparliðs, þ.m.t. um tímabundin starfsleyfi fyrir erlent fagfólk, um undanþágur frá ákvæðum laga sem tefja eða takmarka möguleika á innflutningi dýra og búnaðar sem nota þarf við hjálparstörf og undanþágur frá aðflutningsgjöldum vegna tímabundins innflutnings.
7. gr.
8. gr.
a. 3. mgr. orðast svo:
Samhæfingar- og stjórnstöð og viðbragðsaðilar skulu hafa aðgang að neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi, sem er óháð og aðskilið frá almennum fjarskiptakerfum, vegna samskipta samhæfingar- og stjórnstöðvar og viðbragðsaðila almannavarna. Ráðherra er heimilt að fela aðila í opinberri eigu rekstur neyðar- og öryggisfjarskiptakerfisins.
b. Í stað orðanna „Rauði kross Íslands“ og orðsins „Flugstoðir“ í 3. málsl. 4. mgr. kemur: Rauði krossinn á Íslandi; og: rekstraraðilar flugvalla og flugleiðsögu.
9. gr.
Samhliða rekstri samhæfingar- og stjórnstöðvar er ríkislögreglustjóra heimilt, á hættustundu eða þegar hún er um garð gengin, að stofna tímabundið þjónustumiðstöð.
10. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Sveitarfélög, stofnanir á þeirra vegum og viðeigandi lögreglustjóri skulu, í samvinnu við ríkislögreglustjóra, kanna áfallaþol í umdæmi sínu. Þá skulu almannavarnanefndir og viðeigandi lögreglustjóri, í samvinnu við ríkislögreglustjóra, gera viðbragðsáætlun í samræmi við hættumat í umdæmi þeirra. Efni viðbragðsáætlana skal vera í samræmi við 15. gr.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Skylda sveitarfélaga og lögreglustjóra til að gera viðbragðsáætlanir.
11. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þessari heimild skal þó ekki beitt nema brýna nauðsyn beri til og önnur vægari úrræði dugi ekki.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Sé heilsufari manns, eða annars einstaklings sem hann ber ábyrgð á, svo háttað að öryggi og/eða heilsu hans, eða aðila sem hann ber ábyrgð á, sé stefnt í sérstaka hættu með því að fela honum að gegna slíkum störfum skal hann undanþeginn skyldu skv. 1. mgr.
12. gr.
a. Í stað orðanna „Ef hætta vofir yfir“ kemur: Á hættustundu.
b. Orðin „eða sýslumaður“ falla brott.
13. gr.
14. gr.
Rýnifundir ríkislögreglustjóra.
Veita skal viðkomandi viðbragðsaðilum tækifæri á að koma sjónarmiðum á framfæri um gæði viðbragða. Ríkislögreglustjóri skal rita og varðveita fundargerð um efni og niðurstöður rýnifundar. Hann skal jafnframt afhenda fundargerð til viðkomandi viðbragðsaðila, stjórnar samhæfingar- og stjórnstöðvar og ráðherra.
Ríkislögreglustjóri hefur eftirlit með því að viðbragðsaðilar geri viðunandi úrbætur í samræmi við niðurstöðu rýnifundar.
15. gr.
Ytri rýni.
Ráðherra er heimilt að láta vinna skýrslu við þær aðstæður sem kveðið er á um í 1. mgr. og með sömu skilyrðum. Sú heimild er fyrir hendi ef hann telur að skýrsla stjórnar samhæfingar- og stjórnstöðvar veiti ekki fullnægjandi svör við álitaefnum í kjölfar hættu- eða neyðarástands. Sama á við ef hann telur að þörf sé á ytri rýni þótt stjórn samhæfingar- og stjórnstöðvar hafi ekki óskað eftir slíkri sérfræðiskýrslu.
Sérfræðingar sem vinna skýrslu samkvæmt þessu ákvæði skulu ekki hafa slík tengsl við þá viðbragðsaðila sem skýrslan varðar að þeir teldust vanhæfir til meðferðar stjórnsýslumáls viðkomandi viðbragðsaðila, sbr. II. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
16. gr.
17. gr.
18. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um flokkun almannavarnastiga almannavarna, inntak þeirra og viðbrögð, um frekara skipulag samhæfingar- og stjórnstöðvar og þjónustumiðstöðva skv. V. kafla að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, um tilhögun neyðar- og öryggisfjarskiptakerfisins um störf stjórnar samhæfingar- og stjórnstöðvar og samhæfingar- og stjórnstöðvarráðs, svo og hverjir skuli teljast viðbragðsaðilar almannavarna.
b. 3. mgr. fellur brott.
c. Í stað orðanna „almannavarna- og öryggismálaráðs“ í 4. mgr. kemur: almannavarnaráðs.
d. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um móttöku erlends hjálparliðs, þ.m.t. um tímabundin starfsleyfi fyrir erlent fagfólk, um undanþágur frá ákvæðum laga sem tefja eða takmarka möguleika á innflutningi dýra og búnaðar sem nota þarf við hjálparstörf og undanþágur frá aðflutningsgjöldum vegna tímabundins innflutnings.
19. gr.
20. gr.