Ferill 757. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1355 — 757. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um aðfarargerðir.
Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.
Telur ráðherra aðfarargerðir sem framkvæmdar eru til að koma á umgengni, lögheimili og/eða forsjá á heilbrigðisstofnunum forsvaranlegar? Mun ráðherra beita sér fyrir því að þær eigi sér ekki stað í framtíðinni?
Skriflegt svar óskast.