Ferill 604. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 967 — 604. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um bráðamóttöku Landspítalans.
Frá Bergþóri Ólasyni.
1. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við miklu álagi á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og auka þjónustu bráðamóttökunnar í ljósi þess að það stefnir í að fjöldi ferðamanna og fólks á flótta stóraukist á komandi árum? Hefur ráðherra unnið áætlun um aðgerðir í þessum málum?
2. Hvernig er skiptingin á viðskiptavinum bráðamóttökunnar milli Íslendinga, ferðamanna, fólks með tímabundið atvinnuleyfi á Íslandi og annarra?
Skriflegt svar óskast.