Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 995 — 632. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.
Frá Indriða Inga Stefánssyni.
1. Hvernig hyggst ráðherra stuðla að því að markmið samgöngusáttmálans milli ríkis og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu frá 2019 varðandi samgöngur á höfuðborgarsvæðinu verði uppfyllt?
2. Stendur til að koma á átaki á vegum lögreglu til að fylgjast betur með umferð og koma í veg fyrir stöðubrot á gangstéttum og hjólastígum, hættubrot, ólöglegan framúrakstur ökutækja gagnvart hjólreiðafólki og annað sem dregur úr öryggi hjólandi og gangandi vegfarenda? Stendur yfir vinna í ráðuneytinu í þessum efnum?
Skriflegt svar óskast.