Ferill 692. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1064  —  692. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um ofanflóðasjóð.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Gengur vinna við að ljúka öllum framkvæmdaverkefnum til varnar ofanflóðum árið 2030 samkvæmt uppfærðri áætlun frá 2020?
     2.      Hver er áætluð árleg fjárþörf ofanflóðasjóðs til framkvæmdaverkefna til ársins 2030?
     3.      Hver er áætluð árleg fjárþörf sjóðsins til annarra verkefna?


Skriflegt svar óskast.