Ferill 717. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1093  —  717. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um málskostnað í meiðyrðamálum.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Hversu oft fékk aðili sem stefnt var fyrir meiðyrði árin 2017–2021 veitta gjafsókn? Óskað er eftir sundurliðun eftir hverju ári fyrir sig.
     2.      Hver var fjárhæð dæmds málskostnaðar aðila sem stefnt var fyrir meiðyrði árin 2017– 2021? Óskað er eftir sundurliðun eftir hverju máli fyrir sig eftir árum og eftir því hvort stefnandi eða stefndi vann málið.


Skriflegt svar óskast.