Ferill 1079. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1784  —  1079. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um netöryggi.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


    Hvaða samræmdu reglur og viðmið gilda í ráðuneytinu um lykilorð? Hvaða ferlar eru til staðar til að endurskoða þau og bregðast við ef upp kemur gagnaleki eða aðrar hættur varðandi netöryggi?


Skriflegt svar óskast.