Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 251  —  248. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um kostnað við flutning umsækjenda um alþjóðlega vernd úr landi.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


     1.      Hversu margir umsækjendur um alþjóðlega vernd voru fluttir úr landi með aðstoð lögreglu á árinu 2022? Óskað er eftir sundurliðun eftir áfangastað og því hvort um var að ræða flutning samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða flutning í kjölfar efnismeðferðar umsóknar um vernd.
     2.      Hver var kostnaður íslenska ríkisins við fyrrgreinda flutninga? Auk framangreindrar sundurliðunar óskast svar sundurliðað eftir því hvers eðlis kostnaðurinn var, svo sem beinn kostnaður við flug, launakostnaður lögreglumanna o.þ.h.
     3.      Hver var meðalkostnaður ríkisins við flutning einstaklings úr landi gegn vilja viðkomandi á árinu 2022?


Skriflegt svar óskast.