Ferill 391. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 403 — 391. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um endurgreiðslukerfi vegna viðgerða á rafmagnstækjum.
Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.
1. Er vitað hversu háu hlutfalli af raftækjum á Íslandi er hent án þess að athugað sé hvort viðgerð væri möguleg?
2. Hefur verið skoðað að taka upp styrki eða endurgreiðslukerfi vegna viðgerða á litlum raftækjum eins og símum? Telur ráðherra fýsilegt að koma á slíku kerfi?
Munnlegt svar óskast.