Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 517  —  214. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um ákvörðun og framkvæmd þvingaðrar lyfjagjafar við brottvísanir.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Á hvers vegum var það heilbrigðisstarfsfólk sem ákvað og framkvæmdi þvingaða lyfjagjöf í tengslum við brottvísanir, sbr. svar á þskj. 411 á 153. löggjafarþingi, í ljósi þess að fram kemur í svari heilbrigðisráðherra á þskj. 1944 á 153. löggjafarþingi að ekki sé um að ræða fólk sem starfi hjá heilbrigðisstofnunum eða heilsugæslum?

    Komið hafa upp tilvik þar sem einstaklingur hefur við handtöku, sem undanfari flutnings úr landi í fylgd, farið í slíkt ástand að nauðsynlegt hefur verið að gefa honum róandi lyf í þeim tilgangi að tryggja öryggi hans, sem og annarra. Slík þvinguð lyfjagjöf er einungis og ávallt ákveðin af heilbrigðisstarfsfólki, ekki að beiðni stoðdeildar ríkislögreglustjóra. Lyfjagjöfin sjálf er einnig ávallt framkvæmd af heilbrigðisstarfsmanni. Í slíkum aðstæðum er framkvæmd brottvísunar eða frávísunar frestað þar til ástand viðkomandi er metið þannig af lækni að óhætt sé að flytja viðkomandi og því er lyfjagjöfin sem slík ekki framkvæmd í beinum tengslum við brottvísun.