Ferill 498. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 552  —  498. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um Hríseyjarferjuna.

Frá Jódísi Skúladóttur.


     1.      Hvenær hyggst ráðherra bjóða út rekstur Hríseyjarferjunnar að nýju eftir niðurstöðu kærunefndar útboðsmála?
     2.      Hvaða forsendur liggja að baki fækkun ferða Hríseyjarferjunnar um allt að 20% eins og fram kom í útboðsgögnum Vegagerðarinnar?
     3.      Kemur til álita af hálfu ráðherra að Vegagerðin annist rekstur ferjunnar?
     4.      Í ljósi aðstæðna, hvernig eru sjúkra- og neyðarflutningar tryggðir frá Hrísey?


Skriflegt svar óskast.