Ferill 238. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 668  —  238. mál.




Frumvarp til laga


um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

(Eftir 2. umræðu, 4. des.)


1. gr.

Stofnun og hlutverk.

    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er þjónustu- og þekkingarstofnun sem heyrir undir ráðherra. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu starfar í þágu barna og ungmenna á sviði fræðslu- og menntamála um land allt í samræmi við lög, stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið.

2. gr.

Skipun forstjóra.

    Ráðherra skipar forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu til fimm ára í senn. Engan má skipa oftar en tvisvar sinnum í embættið. Forstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi og þekkingu á verksviði stofnunarinnar.
    Við skipun í embætti forstjóra skal ráðherra skipa þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embættið. Ráðherra getur sett nefndinni reglur um mat á umsóknum. Nefndin skal láta ráðherra í té skriflega rökstudda umsögn um hæfni umsækjenda.

3. gr.

Samvinna og samráð.

    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skal hafa samvinnu og samráð við skóla og aðra aðila, félög, samtök og stofnanir, sem tengjast starfsemi hennar. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skal hafa samvinnu og reglubundið samráð við sveitarfélög um verkefni stofnunarinnar.
    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skal hafa samráð við börn og ungmenni um verkefni stofnunarinnar.
    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skal hafa samvinnu við Barna- og fjölskyldustofu og Ráðgjafar- og greiningarstöð um verkefni sem varða þjónustu í þágu farsældar barna. Jafnframt er ráðherra heimilt að ákveða að tiltekin verkefni stofnananna þriggja séu rekin sameiginlega. Í ákvörðun ráðherra samkvæmt þessari grein skal skýrt kveða á um stjórnun verkefnis, ábyrgð stofnana og fjármögnun.
    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er heimilt að setja á fót tímabundna samráðshópa á einstökum fagsviðum stofnunarinnar til þess að ná markmiðum laga þessara.

4. gr.

Verkefni.

    Verkefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu eru m.a. að:
     a.      styðja, efla og samhæfa menntun, skólaþjónustu og annað skólastarf um land allt, m.a. með almennri og sérhæfðri fræðslu,
     b.      sjá nemendum í skyldunámi fyrir vönduðum og fjölbreyttum námsgögnum og öðrum nemendum eftir því sem stofnuninni kann að vera falið,
     c.      byggja upp og halda utan um aðferðir og úrræði fyrir skóla sem styðja við skólastarf og skólaþjónustu, þar á meðal gæðaviðmið, verkferla, verkfæri, matstæki og önnur tæki til skimana og athugana á einstaklingum eða hópum,
     d.      styðja við innleiðingu stefnumótunar stjórnvalda á sviði menntunar og farsældar barna og ungmenna, þ.m.t. menntastefnu og aðalnámskráa.
    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu forgangsraðar verkefnum með hliðsjón af þörfum hverju sinni undir yfirstjórn ráðherra.

5. gr.

Vinnsla persónuupplýsinga.

    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er heimil vinnsla persónuupplýsinga að því marki sem nauðsynlegt er til að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum sem um stofnunina gilda, þ.m.t. vegna námsmats, innritunar í framhaldsskóla og ráðgjafar í einstaklingsmálum. Heimildin nær til persónuupplýsinga um nemendur, skólastjórnendur, starfsfólk skóla og aðra sem lögbundið hlutverk stofnunarinnar nær til.
    Heimild skv. 1. mgr. nær til vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga og upplýsinga viðkvæms eðlis, svo sem heilsufarsupplýsinga og upplýsinga um félagslegar aðstæður einstaklinga, að því marki sem slík vinnsla er nauðsynleg Miðstöð menntunar og skólaþjónustu til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Heimildin nær jafnframt til vinnslu upplýsinga um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi, að því marki sem slík vinnsla er nauðsynleg Miðstöð menntunar og skólaþjónustu til að sinna lögbundnu hlutverki sínu, nema hagsmunir af leynd persónuupplýsinganna fyrir þann sem upplýsingarnar fjalla um vegi þyngra en hagsmunir af vinnslunni.
    Heimilt er að miðla persónuupplýsingum milli Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og stjórnvalda og annarra aðila á sviði fræðslu- og menntamála ef það samrýmist lögbundnu hlutverki beggja aðila, þ.m.t. með samkeyrslu skráa.
    Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um vinnslu persónuupplýsinga hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Í henni geta komið fram nánari skilyrði um vinnsluna, svo sem um það hvaða persónuupplýsingar heimilt er að vinna með og í hvaða tilgangi vinnsla þeirra er heimil, um verklag við vinnslu persónuupplýsinga og upplýsingaskyldu gagnvart þeim sem upplýsingarnar fjalla um.

6. gr.

Upplýsingar.

    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er heimilt að krefja skóla og rekstraraðila þeirra um upplýsingar og gögn sem stofnunin telur nauðsynleg til að sinna hlutverki sínu á því formi sem óskað er og innan tiltekinna tímamarka. Stofnunin skal jafnan upplýsa í hvaða tilgangi gagna er aflað og hvernig úrvinnslu, varðveislu og birtingu niðurstaðna verður háttað.
    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skal árlega birta skýrslu um starfsemi sína.

7. gr.

Reglugerðarheimild.

    Ráðherra er heimilt að setja reglugerð þar sem kveðið er nánar á um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um verkefni og skipulag stofnunarinnar.

8. gr.

Gildistaka.

    Lög þessi öðlast gildi 1. apríl 2024. Ákvæði til bráðabirgða I, 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II og ákvæði til bráðabirgða IV öðlast þó þegar gildi.
    Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um Menntamálastofnun, nr. 91/2015.

9. gr.

Breytingar á öðrum lögum.

    Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
     1.      Lög um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952: Í stað orðsins „Menntamálastofnun“ í 3. málsl. 3. tölul. 1. mgr. 9. gr. laganna kemur: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
     2.      Lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985: Í stað orðsins „Menntamálastofnun“ í 3. tölul. 1. gr. og 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laganna kemur: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
     3.      Lög um Ráðgjafar- og greiningarstöð, nr. 83/2003: Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 9. gr. laganna:
                  a.      Á eftir heitinu „Barna- og fjölskyldustofu“ kemur: og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
                  b.      Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Jafnframt er ráðherra heimilt að ákveða að tiltekin verkefni stofnananna þriggja séu rekin sameiginlega. Í ákvörðun ráðherra samkvæmt þessari grein skal skýrt kveða á um stjórnun verkefnis, ábyrgð stofnana og fjármögnun.
     4.      Lög um háskóla, nr. 63/2006:
                  a.      Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
                      1.      2. málsl. 2. mgr., 2. málsl. 5. mgr., 2. málsl. 6. mgr. og 2. málsl. 9. mgr. falla brott.
                      2.      Orðin „eða eftir atvikum Menntamálastofnun“ í 7. mgr. og „eða eftir atvikum Menntamálastofnunar“ í 3. málsl. 8. mgr. falla brott.
                  b.      2. málsl. 4. gr. laganna fellur brott.
                  c.      Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 7. gr. laganna:
                      1.      2. málsl. fellur brott.
                      2.      Orðin „eða Menntamálastofnun, samkvæmt ákvörðun ráðherra“ í 4. málsl. falla brott.
                  d.      Orðin „eða Menntamálastofnun, samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra“ í 2. mgr. 8. gr. laganna falla brott.
     5.      Lög um leikskóla, nr. 90/2008:
                  a.      Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ráðherra annast söfnun, greiningu og miðlun upplýsinga um leikskóla. Í því skyni er ráðherra heimilt að krefja skóla og rekstraraðila þeirra um upplýsingar og gögn sem ráðherra telur nauðsynleg til að sinna hlutverki sínu samkvæmt þessari grein á tilteknu formi og innan tiltekinna tímamarka. Er þeim skylt að verða við slíkri kröfu án þess að taka gjald fyrir.
                  b.      Í stað orðsins „Menntamálastofnun“ í 2. málsl. 1. mgr. 19. gr., 2. málsl. 24. gr. og 2. málsl. 3. mgr. 25. gr. laganna kemur: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
                  c.      2. málsl. 1. mgr. 20. gr. laganna fellur brott.
     6.      Lög um grunnskóla, nr. 91/2008:
                  a.      Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
                      1.      Orðin „annast öflun, greiningu og miðlun upplýsinga“ í 1. málsl. falla brott.
                      2.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                              Ráðherra annast söfnun, greiningu og miðlun upplýsinga um grunnskóla. Í því skyni er ráðherra heimilt að krefja skóla og rekstraraðila þeirra um upplýsingar og gögn sem ráðherra telur nauðsynleg til að sinna hlutverki sínu samkvæmt þessari grein á tilteknu formi og innan tiltekinna tímamarka. Er þeim skylt að verða við slíkri kröfu án þess að taka gjald fyrir.
                  b.      5. málsl. 2. mgr. 8. gr. laganna fellur brott.
                  c.      Í stað orðsins „Menntamálastofnun“ í 3. málsl. 1. mgr. 30. gr. a, 2. málsl. 3. mgr. 31. gr. og 1. málsl. 4. mgr. 39. gr. laganna kemur: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
                  d.      2. málsl. 1. mgr. 37. gr. laganna fellur brott.
                  e.      Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 38. gr. laganna:
                      1.      Orðin „eða Menntamálastofnun í umboði þess“ í 1. málsl. falla brott.
                      2.      2. málsl. fellur brott.
                  f.      5. málsl. 4. mgr. 40. gr. laganna fellur brott.
                  g.      3. málsl. 2. mgr. 43. gr. a laganna fellur brott.
                  h.      4. málsl. 1. mgr. 45. gr. laganna fellur brott.
                  i.      2. málsl. 1. mgr. og 4. málsl. 2. mgr. 46. gr. laganna falla brott.
     7.      Lög um framhaldsskóla, nr. 92/2008:
                  a.      3. málsl. 1. mgr. og 2. málsl. 5. mgr. 12. gr. og orðin „eða eftir atvikum Menntamálastofnunar“ í 1. málsl. 1. mgr. 13. gr. laganna falla brott.
                  b.      Í stað orðanna „Menntamálastofnun“ og „Menntamálastofnunar“ í 1. og 2. málsl. 3. mgr. og c-lið 5. mgr. 23. gr., f-lið 1. mgr. og 2. mgr. 25. gr., 4. málsl. 3. mgr. 30. gr. og 3. málsl. 1. mgr. 33. gr. c laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
                  c.      Við 2. mgr. 32. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur annast umsýslu með innritun nemenda í framhaldsskólum og haft milligöngu um innritun einstakra nemenda eftir atvikum.
                  d.      7. málsl. 2. mgr. 42. gr. laganna fellur brott.
                  e.      Orðin „og Menntamálastofnun í umboði þess“ í 1. málsl. og „eða Menntamálastofnun“ í 2. málsl. 3. mgr. 55. gr. laganna falla brott.
     8.      Lög um framhaldsfræðslu, nr. 27/2010:
                  a.      5. málsl. 1. mgr. 13. gr. laganna fellur brott.
                  b.      3. málsl. 2. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.
                  c.      Orðin „Menntamálastofnun eða“ í 15. gr. laganna falla brott.
     9.      Lög um stuðning við útgáfu bóka á íslensku, nr. 130/2018: Í stað orðanna „Menntamálastofnunar, sbr. lög nr. 91/2015, um Menntamálastofnun“ í 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
     10.      Lög um lýðskóla, nr. 65/2019: Í stað orðsins „Menntamálastofnunar“ í 2. mgr. 1. gr., og 2. mgr. 3. gr. og orðsins „Menntamálastofnun“ í 1. mgr. 3. gr. og 4. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
     11.      Lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019:
                  a.      Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 7. gr. laganna:
                      1.      Í stað orðsins „Menntamálastofnun“ í 2. málsl. kemur: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
                      2.      Í stað orðanna „Kennararáð hefur starfsaðstöðu hjá Menntamálastofnun“ í 6. málsl. kemur: Ráðherra ákveður hvar kennararáð hefur starfsaðstöðu.
                  b.      Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
                      1.      Í stað orðsins „Menntamálastofnun“ í 1. málsl. 1. mgr., 1. málsl. 2. mgr., orðsins „Menntamálastofnunar“ í 3. mgr. og orðsins „stofnunin“ í 2. málsl. 1. mgr. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: ráðherra.
                      2.      4. mgr. orðast svo:
                              Aðili á rétt á því að synjun umsóknar um útgáfu leyfisbréfs verði tekin til meðferðar á ný ef hann beinir beiðni um endurupptöku til ráðuneytisins innan þriggja mánaða frá því að ákvörðunin var tilkynnt honum.
                  c.      Í stað orðsins „Menntamálastofnun“ í 1. og 2. mgr. 11. gr. laganna kemur: Ráðherra.
                  d.      Í stað orðanna „Menntamálastofnun gefur“ í 3. mgr. 13. gr. laganna kemur: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur gefið.
                  e.      Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:
                      1.      Í stað orðsins „Menntamálastofnunar“ í 1. málsl. 2. mgr., 3. málsl. 4. mgr., 6. mgr. og 1. málsl. 8. mgr. og orðsins „Menntamálastofnun“ í 2. málsl. 2. mgr., 1. málsl. 3. mgr., 5. mgr. og 2. málsl. 8. mgr. kemur: ráðherra.
                      2.      Í stað orðanna „starfsmaður Menntamálastofnunar“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: skipaður.
                      3.      Í stað orðanna „hjá Menntamálastofnun“ í 4. málsl. 3. mgr. kemur: í ráðuneytinu.
                      4.      7. mgr. fellur brott.
     12.      Lög um Barna- og fjölskyldustofu, nr. 87/2021: Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. laganna:
                  a.      Á eftir orðunum „samvinnu við“ kemur: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
                  b.      Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Jafnframt er ráðherra heimilt að ákveða að tiltekin verkefni Barna- og fjölskyldustofu, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Ráðgjafar- og greiningarstöðvar séu rekin sameiginlega. Í ákvörðun ráðherra samkvæmt þessari grein skal skýrt kveða á um stjórnun verkefnis, ábyrgð stofnana og fjármögnun.

Ákvæði til bráðabirgða.

I.

    Við gildistöku ákvæðis þessa skal ráðherra hefja undirbúning að stofnun Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Honum er heimilt að gera ráðstafanir til að stuðla að því að stofnunin geti tekið til starfa 1. apríl 2024, þ.m.t. að annast ráðningar starfsmanna til Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Ráðherra getur falið forstjóra Menntamálastofnunar verkefni á grundvelli ákvæðis þessa og getur forstjóri falið öðru starfsfólki Menntamálastofnunar framkvæmd þeirra.

II.

    Öll störf hjá Menntamálastofnun eru lögð niður frá 1. apríl 2024. Um réttindi og skyldur starfsmanna, þ.m.t. um biðlaunarétt, fer samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
    Ráðherra er þó heimilt að flytja forstjóra Menntamálastofnunar í embætti forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu skv. 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, án þess að embættið sé auglýst laust til umsóknar.
    Önnur störf hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skulu auglýst laus til umsóknar í samræmi við 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Sama gildir um ný störf vegna flutnings verkefna Menntamálastofnunar til mennta- og barnamálaráðuneytis.

III.

    Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tekur 1. apríl 2024 við eignum, réttindum og skyldum Menntamálastofnunar, sbr. þó ákvæði til bráðabirgða II. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tekur yfir skjöl Menntamálastofnunar og afhendingarskyldu vegna þeirra.

IV.

    Heimilt er að starfrækja á vegum Menntamálastofnunar stuðnings- og ráðgjafarteymi sem hefur það hlutverk að styðja við börn, foreldra og starfsfólk á öllum skólastigum sem hafa mikla þörf fyrir stuðning innan skóla, m.a. vegna alvarlegra atvika sem átt hafa sér stað eða eiga sér stað innan skóla. Teymið hefur sömu heimildir til vinnslu mála og fagráð eineltismála samkvæmt lögum um grunnskóla.
    Hinn 1. apríl 2024 tekur Miðstöð menntunar og skólaþjónustu við verkefnum samkvæmt ákvæði þessu og framkvæmir þau á grundvelli 4. gr.