Ferill 810. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1224  —  810. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um húsleitir og hleranir.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


     1.      Hversu margar kröfur um húsleit eða símahlerun hafa borist Héraðsdómi Reykjavíkur sl. fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir tegund inngrips, lögregluembætti og mánuði.
     2.      Í hversu mörgum tilvikum var fallist á kröfu lögreglustjóra og hversu oft var henni hafnað? Svar óskast sundurliðað eftir tegund inngrips, lögregluembætti og mánuði.
     3.      Hversu oft hafa úrskurðir Héraðsdóms Reykjavíkur, sbr. 1. og 2. tölul., komið til kasta Landsréttar og hvert er staðfestingarhlutfallið?


Munnlegt svar óskast.