Ferill 584. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1272  —  584. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027.

Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.


    Framkvæmdaáætlun þessi er um margt góð, en því miður eru dæmi um að ekki sé gengið nógu langt til að ná tilteknum markmiðum og einnig eru dæmi um aðgerðir sem í raun fresta löngu lofuðum úrbótum á réttarstöðu fatlaðs fólks. 1. minni hluti fagnar þó framkvæmdaáætluninni að mestu leyti þar sem unnið er að ýmsum aðgerðum til að styrkja og bæta stöðu fatlaðra. Margar þær aðgerðir sem áætlunin boðar eru sagðar mikilvægur liður í lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. 1. minni hluti bendir á að ríkisstjórnin hefur haft fjölda ára til að ganga frá lögfestingu samningsins og það er ámælisvert hve lengi sú vinna hefur tekið.
    Með þingsályktunartillögunni er lögð fram framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027, sem byggist á þeirri framtíðarsýn og þeim meginreglum sem fram koma í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (framvegis SRFF). Framkvæmdaáætlunin felur í sér 57 aðgerðir til að koma í framkvæmd ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Velferðarnefnd hefur fjallað um málið og fengið nokkurn fjölda umsagna og einnig tekið á móti gestum til að ræða áætlunina.
    Fyrsti minni hluti tekur undir ýmis sjónarmið sem koma fram í umsögnum Landssamtakanna Þroskahjálp og ÖBÍ réttindasamtaka. Í fyrsta lagi bendir 1. minni hluti á að meðal aðgerða til að stuðla að vitundarvakningu skv. 8. gr. SRFF skuldbinda aðildarríkin sig til þess að samþykkja tafarlausar, árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir til að standa fyrir (e. initiate) og vinna stöðugt að árangursríkum átaksverkefnum um vitundarvakningu hjá almenningi sem miða m.a. að því að gera almenning móttækilegan fyrir réttindum fatlaðs fólks, að styrkja jákvæða ímynd fatlaðs fólks og efla samfélagslega vitund um málefni þess, að stuðla að viðurkenningu á færni, verðleikum og getu fatlaðs fólks sem og á framlagi þess til vinnustaða sinna og vinnumarkaðarins.
    Aðgerð A.12 framkvæmdaáætlunarinnar fjallar um bætt aðgengi að upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk og réttindi þess. Þessi liður er vissulega til bóta enda er aðgengi ein af meginreglum SRFF, en þó hefur láðst að skerpa á frumkvæðisskyldu hins opinbera, sbr. 8. gr. SRFF. Tekið er undir sjónarmið sem komu fram í umsögn ÖBÍ um að virk frumkvæðisskylda sé grunnstoð upplýstra réttinda og dregur úr líkum þess að fatlað fólk falli á milli í kerfinu, og að það verði að setja aukna ábyrgð á opinberar stofnanir til að framfylgja frumkvæðisskyldu sinni, og að unnið verði að einföldun í stjórnkerfinu til að draga úr flækjustigi.
    Aðgengi fatlaðra kemur einnig til skoðunar, en stafræn þróun hefur verið hröð á Íslandi og þar hefur fatlað fólk verið skilið eftir að ákveðnu leyti. Skýrt dæmi um að ríkið sinni ekki skyldum sínum hvað aðgengi varðar er tiltölulega nýlegur úrskurður kærunefndar jafnréttismála, nr. 14/2022, þar sem fram kom að brotið hefði verið gegn lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, nr. 85/2018, með því að neita útgáfu rafrænna skilríkja til kæranda vegna fötlunar hans. Aðgerð B.1 felst í því að tryggja stafrænt aðgengi að upplýsingum um þjónustu og réttindi á heimasíðum opinberra aðila og aðgerð B.2 felst í þróun lausna til að greiða aðgengi fatlaðs fólks að rafrænni þjónustu, með áherslu á aðgengi að heilbrigðisgáttum og fjármálaþjónustu bankastofnana. Það er gott að unnið er að marktækum lausnum hvað þessi atriði varðar en það er með öllu ljóst að í lausninni verður að felast aðgengi fatlaðs fólks að þjónustunni til jafns við aðra og aðrar lausnir eins og talsmannakerfi verður að telja tímabundna viðbót meðan á verkefninu stendur, eins og kemur fram í umsögn ÖBÍ.
    E-liður tillögunnar fjallar um þróun þjónustu og í aðgerð E.2 er lagt til að vinnuhópur fulltrúa sveitarfélaga, félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks endurskoði gildandi leiðbeiningar um akstursþjónustu fatlaðs fólks með tilliti til hugmyndafræðinnar um aðgengi fyrir alla. Leiðbeiningar voru endurskoðaðar síðast árið að 2020 og að mati hagsmunaaðila eru þær mjög góðar. Í umsögn ÖBÍ kemur fram að vandinn liggi helst í því að leiðbeiningum sé ekki fylgt. Þar kemur einnig fram að Samband íslenskra sveitarfélaga ætlaði að leggja fram viðmið um samkomulag um ferðir milli sveitarfélaga fyrir 1. september 2020 en hefur enn ekki gert. Auk þess hafi verið lögð sú ábyrgð á sveitarfélög að endurskoða reglur sínar með hliðsjón af umræddum leiðbeiningum eigi síðar en sex mánuðum eftir útgáfu þeirra og að reglurnar yrðu endurskoðaðar eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti. Sveitarfélög hefðu því átt að endurskoða reglur sínar um akstursþjónustu fyrir 22. nóvember 2020 og aftur innan tveggja ára. Það liggur fyrir að fæst sveitarfélög landsins hafa breytt reglum sínum og sú takmarkaða þjónusta sem þau veita er á grundvelli brottfallinna laga, nr. 59/1992. 1. minni hluti tekur undir þau sjónarmið að áður en farið er að skipa nýja vinnuhópa um að endurskoða leiðbeiningarnar ætti frekar að framfylgja þeim leiðbeiningum sem settar hafa verið. Undanfarið hafa fjölmiðlar fjallað um alvarleg atvik þar sem öryggi fatlaðs fólks er ógnað vegna vanrækslu aðila sem sjá um ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Slíkt er algerlega óviðunandi. Að það skuli geta gerst að fatlað barn týnist vegna mistaka eða vanrækslu af hálfu þeirra sem áttu að flytja barnið milli staða er þjóðfélagi okkar til skammar.
    Húsnæðisöryggi er jafnframt ein af lykilforsendum viðunandi lífskjara. 1. minni hluti tekur undir sjónarmið ÖBÍ að það sé óþarfi að skipaður verði annar starfshópur sem skuli móta tillögur um húsnæðisöryggi þegar tillögur til að efla húsnæðisöryggi liggja nú þegar fyrir, sbr. ítarlegar tillögur vinnuhópa sem störfuðu með verkefnastjórn að mótun landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks. Þetta er skýrt dæmi um að ríkisstjórnin ætli sér eina ferðina enn að fresta löngu lofuðum úrbótum.
    Sjálfstæði og sjálfstætt líf er ein af meginreglum SRFF. Ein af grundvallarforsendum sjálfstæðis fatlaðs fólks er að rétturinn til viðunandi lífskjara verði að veruleika, sbr. 1. mgr. 28. gr. SRFF. Í því skyni þarf að bæta í tillöguna að kjör fatlaðs fólks almennt verði bætt. Greiðslur almannatrygginga hafa ítrekað hækkað minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs og á sama tíma hafa greiðslurnar ekki heldur náð að fylgja launaþróun. Frítekjumörk vegna lífeyrissjóðstekna og fjármagnstekna hafa verið óbreytt frá árinu 2009. Frítekjumark vegna atvinnutekna stóð í stað frá árinu 2009 allt til ársins 2023 þegar það var loks hækkað. Stjórnvöld hafa aldrei viðurkennt nauðsyn þess að kjaragliðnun öryrkja verði leiðrétt, bæði afturvirkt og til frambúðar og er það til vansa.
    Fyrsti minni hluti vill einnig minnast á þann hóp fatlaðra barna sem tilheyra fjölbreyttu fjölskyldumynstri. Það er þörf á því að kortleggja stöðu og réttindi fatlaðra barna sem búa á tveimur heimilum og einnig foreldra þeirra sem deila forsjá. Eins og staðan er nú hafa foreldrar sem ekki hafa sama lögheimili og barn sitt takmarkaðri réttindi og börn sem búa á tveimur heimilum njóta ekki réttinda til fulls og til jafns við annað fatlað fólk né aðra í samfélaginu þrátt fyrir að foreldrar hafi samið um skipta búsetu. Réttindi fatlaðra barna ættu að vera þau sömu og ekki miðað við sambandsstöðu foreldra þeirra. Ef framkvæmdaáætlunin á að leiða til lögfestingar SRFF þarf að minnast á þennan hóp og að settar verða sérstakar greinar um rétt barnsins til að alast upp með fjölskyldu sinni og njóta þjónustu í nærumhverfi.
    Fyrsti minni hluti ítrekar að ýmis atriði í þessari framkvæmdaáætlun og breytingartillögum meiri hlutans eru til bóta en telur að ríkisstjórnin hafi á margan hátt brugðist fötluðu fólki með hliðsjón af því að Alþingi samþykkti þingsályktun í júní 2019 um að ríkisstjórnin myndi leggja fram frumvarp um lögfestingu SRFF og aðlögun íslenskra laga að samningnum með það að markmiði að samningurinn yrði lögfestur eigi síðar en í desember 2020. 1. minni hluti harmar þessar miklu tafir á lögfestingu samningsins og vill jafnframt benda á að íslenska ríkið hefur hvorki fullgilt né lögfest valfrjálsu bókun um kæruleið fyrir einstaklinga og hópa einstaklinga vegna brota á SRFF. Í þingsályktun nr. 61/145, sem var samþykkt á Alþingi 20. september 2016, kemur ekki einungis fram að Alþingi álykti að ríkisstjórnin fullgildi SSRF heldur einnig að valkvæði viðauki við samninginn skuli fullgiltur fyrir árslok 2017. Það er því um yfir sex ára töf að ræða en fullgilding valfrjálsrar bókunar við SRFF mun stuðla að aukinni vernd þeirra réttinda sem koma fram í samningnum með því að koma á fót sambærilegri kæruleið við þá sem lengi hefur verið til staðar vegna þeirra réttinda sem varin eru í alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Mikilvæg réttindi fatlaðs fólks verða aukin með fullgildingu valfrjálsu bókunarinnar eins og kemur fram í aðgerðarlið F.2, en 1. minni hluti leggur þó til að stigið verði skref til fulls til að tryggja þessi réttindi með því að kveðið verði á um lögfestingu valfrjálsu bókunarinnar í framkvæmdaáætluninni.
    Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við lið F.2.
     a.      1. mgr. orðist svo:
                 Verkefnið miði að því að tryggja megininntak valfrjálsrar bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks með því að fullgilda og lögfesta bókunina.
     b.      Fyrirsögn liðarins verði: Fullgilding og lögfesting valfrjálsrar bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Alþingi, 19. mars 2024.

Guðmundur Ingi Kristinsson.