Ferill 7. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 7 — 7. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um endurnýjun ökuskírteina eftir 60 ára aldur.
Flm.: Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Ingvar Þóroddsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Grímur Grímsson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að endurskoða ákvæði umferðarlaga, nr. 77/2019, um endurnýjun ökuskírteina fólks sem orðið er 60 ára með það að markmiði að færa þau nær samsvarandi ákvæðum í nágrannalöndum.
Greinargerð.
Þessar reglur vekja spurningar um sanngirni og nauðsyn. Staðreyndin er sú að aldur einn og sér segir lítið til um aksturshæfni. Margir einstaklingar á sjötugs- og áttræðisaldri eru fullkomlega hæfir ökumenn, á hinn bóginn getur yngra fólk átt við heilsufarsvandamál að stríða sem hafa áhrif á aksturshæfni þess. Endurnýjunarkröfum fylgir auk þess bæði fjárhagsleg og kerfislæg byrði. Margt eldra fólk hefur ekki háar tekjur en þarf að greiða fyrir læknisskoðun, vottorð og önnur gjöld við slíkar endurnýjanir. Þá eykur þetta einnig álag á heilbrigðisstarfsfólk og opinberar stofnanir.
Önnur nærliggjandi lönd hafa tekið upp sveigjanlegri nálgun í þessum efnum. Til að mynda eru almenn ökuskírteini í Svíþjóð gefin út til tíu ára í senn óháð aldri umsækjanda. Í stað þess að krefjast þess af eldra fólki að það endurnýi skírteini örar hefur verið farin sú leið í Svíþjóð að setja í lög um ökuskírteini að öllum læknum sé skylt að tilkynna til sænsku samgöngustofunnar hvern þann sem ekki uppfyllir læknisfræðileg skilyrði til að hafa ökuréttindi.
Þessi ákvörðun sænska ríkisins kom til vegna skýrslu sænsku samgöngustofunnar (Samband mellan sjukdomar och äldre bilförares inblandning i trafikolyckor) frá því í desember 2018 þar sem kannað var hvort ökumenn fólksbíla, 65 ára eða eldri og með ákveðna sjúkdómsgreiningu, væru líklegri til að lenda í umferðarslysum samanborið við aðra ökumenn á sama aldri. Helstu niðurstöður sýna að ökumenn með aldurstengda sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma og sjónskerðingu eru ekki líklegri en aðrir til að lenda í umferðarslysum. Ökumenn með heilabilun valda færri umferðarslysum en ökumenn án greiningar, líklega vegna þess að þeir hætta sjálfir að keyra þegar sjúkdómurinn versnar. Niðurstaða skýrslunnar var sú að ekki væri þörf á frekari rannsóknum á reglubundnu heilsufarseftirliti fyrir eldri ökumenn. Í framhaldi af þessu tók sænska samgöngustofan ákvörðun árið 2019 um að ekki skyldi innleiða aldurstengt heilbrigðiseftirlit við endurnýjun ökuskírteina. Stofnunin mat það svo að aukinn kostnaður við heilbrigðisþjónustu í tengslum við endurnýjun almennra ökuskírteina fyrir eldri bílstjóra væri ekki í réttu hlutfalli við þau jaðaröryggisáhrif sem gert er ráð fyrir að náist með innleiðingu almenns heilbrigðiseftirlits eldri ökumanna.
Í skýrslu umferðarnefndar sænska þingsins um umferðaröryggi 2023/24:TU7 (Trafiksäkerhet) frá 6. mars 2024 var meðal annars fjallað um endurnýjun ökuskírteina eldra fólks í Svíþjóð. Nefndin lagði til að hafna tillögum um að innleiða lögbundnar sjón- og heilbrigðisskoðanir fyrir eldri ökumenn við endurnýjun ökuskírteina. Rökstuðningur fyrir því er að regluverkið er þegar til staðar en samkvæmt því hafa læknar í Svíþjóð tilkynningarskyldu vegna ökumanna sem ekki teljast lengur hæfir til aksturs vegna heilsufars. Samkvæmt skýrslu umferðarnefndar sænska þingsins væru reglubundnar sjón- og heilsufarsskoðanir líklega ekki hagkvæmar samfélagslega og myndu auka álag á heilbrigðiskerfið í landinu. Auk þess sem rannsóknir sýndu að almennar heilbrigðis- og sjónskoðanir fyrir eldri ökumenn væru dýrar og hefðu lítil áhrif á umferðaröryggi. Í kjölfarið tóku í gildi nýjar reglur um sjónmælingar fyrir ökumenn sem sækja um eða endurnýja ökuskírteini í Svíþjóð frá og með 1. febrúar 2025. Nú geta einstaklingar með væga sjónskerðingu frekar uppfyllt sjónkröfur fyrir almenn ökuskírteini, ökuleyfi fyrir dráttarvélar og leigubíla. Auk þess fengu sjóntækjafræðingar auknar heimildir til að framkvæma sjónmælingar og gefa út vottorð fyrir umsóknir um ökuskírteini. Með þessum aðgerðum er verið að létta álagið af augnlæknum vegna útgáfu slíkra vottorða og gera ferlið skilvirkara fyrir umsækjendur. Breytingarnar eru gerðar í þeim tilgangi að samræma sænskar reglur reglum í öðrum Evrópulöndum sem leggja mikla áherslu á umferðaröryggi. Jafnframt stuðla þær að sanngjarnari og sveigjanlegri nálgun við mælingu á sjón ökumanna. Þessar breytingar gera það enn fremur að verkum að fleiri einstaklingar, þar á meðal eldri borgarar, geta nú uppfyllt sjónkröfur til að fá eða endurnýja ökuskírteini.
Það er mikilvægt að endurskoða gildandi reglur á Íslandi með hagsmuni eldri borgara í huga því að það er ósanngjarnt að gera sömu kröfur til allra yfir ákveðnum aldri án tillits til raunverulegrar aksturshæfni. Um leið er æskilegt að draga úr óþarfa álagi á heilbrigðiskerfið og opinberar stofnanir sem sinna endurnýjun ökuskírteina. Mikilvægt er að stefna í þessum málum byggist á skynsamlegum og sanngjörnum forsendum sem tryggja bæði réttindi eldri ökumanna og öryggi í umferðinni.