Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 20 — 20. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um mælaborð í málefnum innflytjenda.
Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Jón Gunnarsson, Guðlaugur Þór Þórðarson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma upp mælaborði, sem gefur yfirlit yfir helstu mælikvarða til að fylgjast með og meta árangur af aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi, eigi síðar en 1. janúar 2027.
Greinargerð.
Undanfarinn áratug hefur fjöldi erlendra ríkisborgara á Íslandi þrefaldast. Þannig voru 78.259 erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. júní 2024. Hlutfallið var þá 19,4% af heildarmannfjölda en var 6,6% árið 2014. Innflytjendum af annarri kynslóð, sem eru fæddir á Íslandi en eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur, hefur einnig fjölgað mikið á þessum árum. Það er því ljóst að íslenskt samfélag hefur tekið miklum breytingum á skömmum tíma. Sömuleiðis er ljóst að svo miklum breytingum á jafnskömmum tíma fylgja miklar áskoranir.
Sett hafa verið lög um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, þar sem markmiðið er að stuðla að virkri þátttöku allra í samfélaginu óháð þjóðerni og uppruna. Meðal verkefna stjórnsýslunnar samkvæmt lögunum er að fylgjast með þróun innflytjendamála í þjóðfélaginu, m.a. með upplýsingaöflun, greiningu og upplýsingamiðlun, sbr. d-lið 1. mgr. 3. gr. laganna.
Nágrannaþjóðir hafa lagt ríka áherslu á upplýsingaöflun, greiningu og upplýsingamiðlun um málefni innflytjenda. Dönsk stjórnvöld hafa komið upp opinberu mælaborði (d. Det nationale integrationsbarometer) sem mælir m.a. atvinnuþátttöku, menntun, dönskukunnáttu, opinbera framfærslu og glæpatíðni innflytjenda. Markmiðið er að fylgjast með og meta árangur af aðlögun innflytjenda að dönsku samfélagi. Danska fjármálaráðuneytið gefur einnig út hagfræðilega greiningarskýrslu á hreinu framlagi innflytjenda og afkomenda þeirra til hins opinbera. Í skýrslunni, sem er að miklu leyti unnin á grundvelli gagna frá dönsku hagstofunni, er íbúum Danmerkur skipt í hópa eftir uppruna. Í fyrsta lagi er um að ræða einstaklinga af dönskum uppruna, þ.e. sem eiga danska foreldra, í öðru lagi innflytjendur frá Vesturlöndum og í þriðja lagi innflytjendur frá löndum utan Vesturlanda. Þessum síðasta hóp er skipt í annars vegar svokölluð MENAPT-lönd (Mið-Austurlönd, Norður-Afríka, Pakistan og Tyrkland) og hins vegar önnur lönd utan Vesturlanda. Norsk stjórnvöld gefa árlega út skýrslu með upplýsingum um hvernig innflytjendum hefur vegnað á sviði menntunar, atvinnu, efnahags, lífskjara og félagslegrar aðlögunar. Bæði dönsk og norsk stjórnvöld notast við staðlaða vísa til að mæla aðlögun á ýmsum sviðum og nýta opinber tölfræðigögn frá hagstofum landanna. Samtök sveitarfélaga í Svíþjóð gefa árlega út tölfræðiupplýsingar um aðlögun innflytjenda á nokkrum sviðum, m.a. varðandi sænskunám, opinber atvinnuúrræði og náms- og atvinnuþátttöku. Þá birta sænsk stjórnvöld sundurliðaðar upplýsingar um vinnumarkaðinn, tekjur, menntun o.fl. eftir ríkisfangi og jafnvel upprunalandi. Á sérstakri finnskri heimasíðu um aðlögun innflytjenda er hægt að fletta upp í gagnagrunnum annars vegar um aðlögun og hins vegar um aðlögunarvísa. Upplýsingarnar, sem eru á ensku, koma frá finnsku hagstofunni og eru mjög auðveldar í notkun. Þar má m.a. finna upplýsingar um atvinnuþátttöku, menntun og velferðarmál.
Með vísan til framangreinds var fyrirspurn beint til fjármála- og efnahagsráðherra á 154. löggjafarþingi um ýmsar tölfræðiupplýsingar sundurliðaðar eftir þjóðerni (1021. mál). Fyrirspurnin laut að sambærilegum upplýsingum og dönsk stjórnvöld safna saman, greina og birta. Í svari ráðherra kemur fram að ráðuneytið búi yfir takmörkuðum upplýsingum sem nýst geta við að varpa ljósi á hluta þeirra málefna sem felast í tölfræði danskra stjórnvalda. Þær upplýsingar stafa aukinheldur frá álagningarskrá Skattsins sem geymir ekki upplýsingar um þjóðerni eða uppruna heldur er þar einungis tilgreint ríkisfang. Ljóst er af svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn á sama löggjafarþingi um gæsluvarðhald að einhverjar upplýsingar í íslensku refsivörslukerfi eru sundurliðaðar eftir þjóðerni. Þá hafa félagsmálaráðuneyti og Hagstofa Íslands safnað svokölluðum félagsvísum og birt sem eiga að auðvelda almenningi og stjórnvöldum að fylgjast með samfélagslegri þróun. Árið 2019 kom út sérhefti Hagstofu Íslands um innflytjendur þar sem draga átti upp heildstæða mynd af stöðu innflytjenda á Íslandi. Þar var lögð áhersla á félagslega velferð innflytjenda, m.a. með tilliti til fjáhags, menntunar og atvinnu, og eru upplýsingarnar ekki sundurliðaðar eftir þjóðerni. Einhverjar upplýsingar eru því til á víð og dreif um innflytjendur á Íslandi.
Óhætt er að segja að íslenskt samfélag sé orðið fjölmenningarsamfélag og það er ekki sjálfgefið að þátttakendur í fjölmenningarsamfélagi vinni að sama markmiði. Það er ljóst að innflytjendur þurfa að yfirstíga mismiklar hindranir til að verða fullgildir þátttakendur í íslensku samfélagi. Það hlýtur þó að vera algjör grundvallarforsenda fyrir ákvarðanatöku um málefni innflytjenda að fyrir liggi greinargóðar upplýsingar og tölfræði. Aðeins þannig er hægt að taka raunhæfar og réttar ákvarðanir í málaflokknum og má þar líta til Norðurlanda sem hafa aukið mjög upplýsingaöflun í málaflokknum undanfarin ár.
Flutningsmenn telja því nauðsynlegt að Alþingi árétti mikilvægi þessa og feli ríkisstjórninni að koma upp mælaborði til að fylgjast með og meta árangur af aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi.