Ferill 43. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 43 — 43. mál.
Flutningsmenn.
Frumvarp til laga
um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (útivistartími).
Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Jón Pétur Zimsen, Vilhjálmur Árnason, Sigurður Örn Hilmarsson.
1. gr.
Börn, 9 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 10 til 12 ára, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 21.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. apríl til 1. október lengist útivistartími barna 9 ára og yngri um tvær klukkustundir, barna á aldrinum 10 til 12 ára um eina klukkustund og barna á aldrinum 13 til 16 ára um tvær klukkustundir.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er endurflutt óbreytt frá 156. löggjafarþingi (299. mál).
Ákvæði um tímamörk á útivistartíma barna hafa verið áþekk frá setningu fyrri barnaverndarlaga, nr. 58/1992, en áður var kveðið á um tímamörkin í reglugerð. Breytingar voru gerðar á ákvæði um útivistartíma barna með lögfestingu núgildandi barnaverndarlaga, nr. 80/2002, en þær sneru aðallega að aðkomu sveitarstjórna að reglum um útivistartíma barna.
Með frumvarpi þessu er lagt til að bæta klukkustund við útivistartíma barna á aldrinum 10 til 12 ára, enda sé sanngjarnt að útivistartími þess aldurshóps sé rýmri en yngri barna.
Á þeim tíma sem liðinn er frá því að reglur um útivistartíma barna voru lögfestar hefur margt breyst í íslensku samfélagi. Umræða um skjánotkun barna og mikilvægi þess að takmarka hana er orðin mjög hávær. Þá fer hlutfall íslenskra barna sem glíma við offitu vaxandi. Um þessar mundir glíma rúmlega sjö af hverjum hundrað íslenskum börnum við offitu, en hlutfallið er hærra hér en annars staðar á Norðurlöndum. Tugir íslenskra barna eru á biðlista eftir því að komast í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins sem aðstoðar fjölskyldur barna með offitu.
Að baki frumvarpi þessu um rýmkaðan útivistartíma barna liggja lýðheilsusjónarmið. Það er til mikils að vinna að börn eyði meiri tíma úti við og í samvistum við önnur börn, en félagsleg hegðun þeirra hefur tekið stakkaskiptum vegna örra tæknibreytinga, m.a. vegna aukinnar skjánotkunar. Þá er það óásættanleg staða að íslensk börn séu of feit í samanburði við nágrannalöndin.
Sanngirnisrök hníga að því að útivistartími 10 til 12 ára barna sé rýmri en útivistartími yngri barna og birtu- og veðurskilyrði styðja það að tímabil rýmri útivistartíma yfir sumarið og mánuðina í kring sé lengt um einn mánuð í báða enda. Lagt er til að útivistartími barna 12 ára og yngri verði áfram til klukkan 22.00 og barna 13 til 16 ára til miðnættis yfir björtustu mánuðina.
Flutningsmenn telja mikilvægt að stuðlað verði að breyttri félagslegri hegðun barna og betri lýðheilsu þeirra og er frumvarp þetta viðleitni til þess. Nefna má íslenska sundlaugamenningu sem nær til barna og ungmenna en sundlaugar eru víða opnar fram yfir gildandi útivistartíma barna. Í landi þar sem er myrkur svo stóran hluta árs og allra veðra von er sömuleiðis mikilvægt að frelsi barna sé rýmkað eins og kostur er yfir mildari mánuði ársins.