Ferill 62. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 62 — 62. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um tilraunaverkefni um tímabundna lokun vegkafla þar sem áformað er að taka akrein eða veghluta frá almennri umferð og setja undir borgarlínu.
Flm.: Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorgrímur Sigmundsson.
Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að undirbúa og hrinda í framkvæmd tilraunaverkefni sem felist í því að loka akreinum og veghlutum fyrir almennri bílaumferð á vegköflum sem fyrirhugað er að verði teknir undir borgarlínu í stað almennrar umferðar.
Lokunin skal vara í 3–4 vikur, annars vegar að hausti, þegar skólar eru að byrja, og hins vegar í febrúar, þegar mestar líkur eru á vetrarfærð.
Til viðbótar við vegkafla eins og Suðurlandsbraut skal koma slíkum tímabundnum þrengingum á þar sem beygjuakreinar verða teknar af eða þar sem af- og aðreinar verða aflagðar eða þær styttar, á grundvelli framkvæmda sem falla undir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt skal framkvæma þessar tímabundnu lokanir á gatnamótum sem fyrirhugað er að breyta, þar sem því verður við komið.
Ráðherra skili Alþingi skýrslu um niðurstöður verkefnisins, þar á meðal um áhrif lokunar á umferðarmynstur, almenningssamgöngur, aukinn akstur um íbúðarhverfi, umhverfisáhrif og viðhorf almennings.
Greinargerð.
Forsendur og rökstuðningur.
Framkvæmdir við borgarlínu er umfangsmesta samgönguframkvæmd sem ráðist hefur verið í, sé litið á verkefnið heildstætt. Verkefnið miðar að því að ná fram 12% hlutdeild í heildarferðum með því að ýta undir að þeir sem í dag nota annan ferðamáta noti borgarlínu þegar hún er orðin að veruleika.
Í ljósi sögunnar eru áhöld um hversu líklegt er að 12% markmiðið sé raunhæft og sömuleiðis verður að teljast líklegt að hluti þeirrar aukningar sem fram kemur verði frá öðrum ferðamáta en fjölskyldubílnum.
Miðað við áætlanir samgöngusáttmála um vöxt almennrar bílaumferðar, fram að þeim tíma að borgarlínan verður að veruleika og til framtíðar, má áætla að magn umferðar fólksbifreiða og atvinnubifreiða verði orðið hið sama og fyrir gangsetningu borgarlínu á nokkrum árum.
Áætlanir byggðar á 1,7% árlegum vexti bílaumferðar sýna að á um það bil 7–8 árum verður heildarumferð orðin sú sama og áður, jafnvel þó að ýtrasti árangur náist með innleiðingu borgarlínu. Ef vöxtur yrði minni, t.d. 1,0%, tæki það rúmlega 12 ár, en ef hann yrði meiri, t.d. 2,0%, tæki það einungis um 6–7 ár.
Í því ljósi stöndum við frammi fyrir tækifæri sem felst í raunhæfri tilraun á áhrifum þeirra þrenginga sem boðaðar hafa verið. Með því til dæmis að notast við keilur, eða aðra þá lausn sem Vegagerðin telur góða, er í dag hægt að sjá raunveruleg áhrif þess að þrengja umferðaræðar eins og áform eru uppi um, í stað þess að treysta á tölvukeyrð hermilíkön.
Markmið tilraunarinnar.
Markmið tilraunarinnar er m.a. að:
– meta áhrif lokunar á umferðartafir, bæði á tilraunasvæði og í nærliggjandi götum,
– kanna hvort lokunin leiði til aukinnar notkunar almenningssamgangna,
– greina áhrif á loftgæði og hávaðamengun,
– safna upplýsingum um viðhorf almennings til breytingarinnar,
– leggja grunn að stefnumótun sem stuðlar að sjálfbærari samgöngum, þar sem er tekið tillit til allra samgöngumáta.
Framkvæmd og mat á niðurstöðum.
Innviðaráðherra verði falið að vinna að tilrauninni í samstarfi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Vegagerðina og Strætó bs. Tilraunin skuli standa í 3–4 vikur, í tvígang, á hverju svæði, til að tryggja gagnasöfnun yfir mismunandi árstíma. Að tilrauninni lokinni skili ráðherra Alþingi skýrslu um niðurstöður, ásamt mati á því hvort ástæða sé til að endurmeta áform um að taka veghluta frá almennri umferð og setja undir borgarlínu eða hvort ástæða sé til að endurskoða ákvarðanir um aðrar þrengingar eða breytingu gatnamóta.
Niðurlag.
Tillagan gengur út á að nýta það tækifæri sem nú blasir við gagnvart fjárfestingu í umferðarmannvirkjum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hægt er að sjá í raunheimum hver staðan verður, hvað umferðarflæði varðar, að nokkrum árum liðnum.