Ferill 78. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 78  —  78. mál.




Beiðni um skýrslu


frá atvinnuvegaráðherra um aðbúnað og velferð svína.


Frá Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, Eydísi Ásbjörnsdóttur, Jónínu Björk Óskarsdóttur, Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, Ragnari Þór Ingólfssyni, Sigmundi Erni Rúnarssyni, Sigurjóni Þórðarsyni og Sigurði Helga Pálmasyni.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að atvinnuvegaráðherra flytji Alþingi skýrslu um úttekt á reglum og eftirliti er varðar aðbúnað og velferð svína. Í skýrslunni verði farið yfir:
     1.      hversu algengt sé að halaklippingar á svínum viðgangist hjá svínaræktendum og hvort svínaræktendur sjái sjálfir um það að framkvæma halaklippingar eða hvort dýralæknar sjái um framkvæmdina,
     2.      hversu oft Matvælastofnun hafi gert athugasemdir við framkvæmd halaklippinga ár hvert undanfarin tíu ár og hvort gripið hafi verið til sekta eða annarra viðurlaga vegna brota á reglum um framkvæmd þeirra,
     3.      hversu algengt sé að klippa tennur svína til að draga úr hættu á halabiti,
     4.      hvaða aflífunaraðferðir séu notaðar í hverju svínasláturhúsi og hversu mörgum dýrum hafi verið slátrað þar ár hvert undanfarin tíu ár,
     5.      hvernig halaklippingar, klippingar á tönnum og notkun gasklefa samræmist lögum og reglum um velferð dýra,
     6.      hversu margir framleiðendur hafi ræktað svín undanfarin tíu ár og hversu margir framleiðendur hafi sótt um frest á hverju ári, á grundvelli hvaða rökstuðnings og hversu langur frestur hafi verið veittur.
    Þá er þess óskað að upplýst verði hvaða ástæður bjuggu að baki þeirri ákvörðun ráðherra að breyta bráðabirgðaákvæði reglugerðar um velferð svína, nr. 1276/2014, sem ætlað var að tryggja velferð og heilbrigði svína með því að ábyrgjast góða meðferð, umsjá og aðbúnað og þar sem fram komu lágmarkskröfur um einstök atriði, með reglugerð um breytingu á reglugerð um velferð svína, nr. 1622/2024, þannig að þriggja ára frestur var veittur til viðbótar við tæplega tíu ára frest sem þá var að renna út til að gera úrbætur í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar og var háður því að framleiðandi skilaði tímasettri úrbótaáætlun og kostnaðarmati.
    Þá er enn fremur óskað eftir mati á því hvort hagkvæmnissjónarmið ræktenda ráði því hvort stjórnvöld innleiði metnaðarfyllri reglur um velferð svína eða framfylgi þeim sem nú eru í gildi.

Greinargerð.

    Undanfarin misseri hefur átt sér stað allnokkur umræða um aðbúnað og velferð svína. Sláandi upplýsingar hafa birst í fjölmiðlum um aðbúnað og meðferð svína á ræktunarbúum sem virðast ekki samræmast ákvæðum laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerð um velferð svína, nr. 1276/2014, með síðari breytingum.
    Í 1. gr. laga um velferð dýra er kveðið á um að markmið laganna sé að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Þar segir einnig: „Enn fremur er það markmið laganna að [dýr] geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.“

Eftirlit með velferð dýra.
    Ríkisendurskoðun ákvað í september árið 2022 að gera stjórnsýsluúttekt á eftirliti Matvælastofnunar um velferð dýra á grundvelli heimildar í 6. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016. Í skýrslunni var lögð áhersla á eftirlit með hefðbundnu búfjárhaldi, þ.e. alifuglum, geitfé, hrossum, nautgripum, sauðfé og svínum. Leitast var við að kanna hvort eftirlit væri skilvirkt og árangursríkt og hvort það væri í samræmi við lög og reglugerðir um velferð dýra. Fjölmargar ábendingar voru settar fram í skýrslu til Alþingis í nóvember árið 2023, m.a. um það að Matvælastofnun þyrfti að leggja meiri áherslu á að dýr nytu vafans þegar velferð þeirra væri ógnað, vanda þyrfti málsmeðferð og stíga þyrfti fastar niður fæti í málum þar sem brotið væri á dýrum.
    Þá voru settar fram ábendingar sem varða fyrirkomulag innan stjórnsýslunnar og bent á að endurskoða þyrfti þá tilhögun að ráðherra skipaði yfirdýralækni. Bent var á að ráðuneytið þyrfti með hliðsjón af hlutverki sínu sem æðra stjórnvalds að endurskoða aðkomu sína að innri úttektum með eftirliti og starfsemi Matvælastofnunar.
    Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjallaði um skýrsluna og skilaði áliti um hana í febrúar árið 2024 (708. mál) þar sem tekið var undir ábendingar Ríkisendurskoðunar. Þar kom fram að unnið væri að endurskoðun laga um velferð dýra hjá ráðuneytinu og það hvatt til að flýta þeirri vinnu. Í greinargerð með frumvarpi til laga um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 (235. mál), sem atvinnuvegaráðherra mælti fyrir á 156. löggjafarþingi og atvinnuveganefnd fékk til umfjöllunar, kom fram að unnið væri að heildarendurskoðun löggjafar um heilbrigði og velferð dýra.

Eftirlit með velferð svína.
    Reglugerð um velferð svína var sett árið 2014 á grundvelli laga um velferð dýra og laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Í 1. gr. reglugerðarinnar segir: „Tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja velferð og heilbrigði svína með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði. Leitast skal við að svín geti lifað í samræmi við sitt eðlilega atferli eins og framast er kostur. Í reglugerðinni koma fram lágmarkskröfur um einstök atriði.“
    Með skýrslubeiðni þessari óska flutningsmenn eftir því að atvinnuvegaráðherra flytji Alþingi skýrslu um úttekt á reglum og eftirliti er varðar aðbúnað og velferð svína og að tilteknum spurningum verði svarað varðandi framkvæmd aflífunaraðferða í svínaræktun og tiltekinna aðgerða sem gerðar eru á svínum. Flutningsmenn telja nauðsynlegt að varpað verði ljósi á það og það upplýst hvernig búið er að svínum en eins og fram kom í skýrslu Ríkisendurskoðunar eru tilkynningar vegna gruns um brot á lögum sem gilda um velferð dýra fáar enda svínabú lokuð og sýnileiki dýra mjög takmarkaður. Þá óska flutningsmenn eftir því að fá fram hvaða rök búi að baki endurtekinni framlengingu á fresti fyrir framleiðendur til að uppfylla kröfur reglugerðar frá því að hún var sett árið 2014 þar sem einungis er kveðið á um lágmarkskröfur um aðbúnað, meðferð og umsjá. Þá telja þeir nauðsynlegt að fá mat á því hvort hagkvæmnissjónarmið ræktenda ráði því hvort stjórnvöld innleiði metnaðarfyllri reglur um velferð svína eða framfylgi þeim sem nú eru í gildi.