Ferill 86. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 86 — 86. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um áhafnir skipa, nr. 82/2022 (áhafnir björgunarskipa).
Frá innviðaráðherra.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði laga þessara er ráðherra heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem gegna sérhæfðu hlutverki, og um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á þeim. Námskrá og listi yfir kennara eru háð samþykki Samgöngustofu sem hefur eftirlit með náminu. Nám samkvæmt þessari málsgrein skal eingöngu gilda til starfa um borð í björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er samið í innviðaráðuneytinu. Lögð er til breyting á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022. Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra verði heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Markmið frumvarpsins er að bregðast við vanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar við mönnun nýrra björgunarskipa.
Ný lög um áhafnir skipa tóku gildi 1. janúar 2023. Við gildistöku þeirra féllu úr gildi lög um bryta og matreiðslumenn á farskipum og fiskiskipum, nr. 50/1961, lög um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001, lög um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007, og lög um lögskráningu sjómanna, nr. 35/2010.
Samkvæmt 3. mgr. 20. gr. brottfallinna laga um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007, skyldi ráðherra setja með reglugerð nánari ákvæði um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum og vinnuskipum sjókvíaeldisstöðva sem gegna sérhæfðu hlutverki. Skip samkvæmt þeirri málsgrein skyldu mönnuð skipstjórnarmönnum sem hefðu að lágmarki 30 brúttórúmlesta réttindi eða önnur sambærileg réttindi og hefðu hlotið þjálfun á sérstökum námskeiðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna. Ráðherra skyldi mæla fyrir um farsvið vinnuskipa sjókvíaeldisstöðva í reglugerðinni.
Framangreind skylda ráðherra til setningar reglugerðar var afnumin þegar ný lög um áhafnir skipa, nr. 82/2022, voru samþykkt á Alþingi.
Slysavarnafélagið Landsbjörg er landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Félagið á og rekur 13 björgunarskip um allt land. Einingar félagsins (björgunarsveitir og slysavarnadeildir) sjá um skipin og manna þau til þess að sinna útköllum á hafsvæðinu við Ísland. Skipin eru mönnuð sjálfboðaliðum í útköllum, en þeir sem sjá um skipin þess á milli eru starfsmenn félagsins.
Í desember 2019 skipaði forsætisráðherra starfshóp um eflingu björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hópurinn skilaði ráðherra skýrslu með tillögum í maí 2020 og var það mat hópsins að floti Landsbjargar væri orðinn gamall og þarfnaðist endurnýjunar til að tryggja öryggi og almannahagsmuni í landinu. Í framhaldinu var farið í þá vegferð að skipta út björgunarskipaflota félagsins. Kostnaði var skipt á milli ríkisins og félagsins.
Ný björgunarskip Slysavarnafélagsins hafa tvær vélar sem hvor um sig hefur 551 kW vélarafl. Þar sem nýju skipin eru stærri en þau gömlu hefur reynst erfiðara að manna þau. Áður voru ákvæði reglugerðar um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum, nr. 555/2008, nýtt fyrir áhafnir sem ekki uppfylltu kröfur um atvinnuréttindi skipstjórnar- og vélstjórnarmanna. Gildissvið þeirrar reglugerðar er takmarkað við björgunarskip sem eru 18 metrar og styttri að skráningarlengd og með vélarafl allt að 750 kW. Því er ekki hægt að nýta ákvæði hennar fyrir áhafnir nýju björgunarskipanna. Þar sem lagastoð skortir fyrir reglugerðinni í gildandi lögum er ekki hægt að fara þá leið að breyta reglugerðinni.
Nú er lagt til að ráðherra fái heimild samkvæmt lögum til að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slysavarnaskóla sjómanna og um lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem gegna sérhæfðu hlutverki. Lagt er til að kveðið verði á um að nám samkvæmt reglugerðinni gildi eingöngu til starfa um borð í skipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá. Þá er lagt til að námið verði háð samþykki og eftirliti Samgöngustofu.
Engin atvinnuréttindi ávinnast með því að ljúka námi og þjálfun samkvæmt reglugerð sem ráðherra getur sett á grundvelli þessa frumvarps. Eingöngu er um að ræða réttindi fyrir sjálfboðaliða til að starfa í áhöfn á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Gengið verður út frá því að samstarf verði á milli skóla sem bjóða upp á nám í siglingatengdum greinum við vinnslu námskrár. Slíkt samstarf gæti leitt til þess að þeir sem ljúka námi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og Slysavarnaskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum fái námið metið til að öðlast frekari réttindi á sviði siglinga.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur kynnt fyrir innviðaráðuneytinu, Samgöngustofu og fagráði um siglingar útfærslu náms sem félagið hefur hug á að bjóða sjálfboðaliðum sínum upp á. Hefur félagið hug á því að nýta fyrirmynd námsefnis frá Royal National Lifeboat Institution. Námið verður í senn staðnám og fjarnám.
3. Meginefni frumvarpsins.
Frumvarpið er ein grein, auk gildistökuákvæðis. Lagt er til að bætt verði við 37. gr. laga um áhafnir skipa, nr. 82/2022, nýrri málsgrein sem heimili ráðherra að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun áhafna og lágmarksréttindi til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum. Lagt er til að í reglugerðinni verði kveðið á um að námskrá og listi yfir kennara verði háð samþykki Samgöngustofu, Samgöngustofa hafi eftirlit með náminu og að námið gildi eingöngu til starfa um borð í skipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Efni frumvarpsins þykir ekki gefa sérstakt tilefni til mats á samræmi við ákvæði stjórnarskrár eða alþjóðlegar skuldbindingar. Réttindi samkvæmt reglugerð sem gefin verður út í samræmi við ákvæði frumvarpsins munu gilda eingöngu til starfa um borð í björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar samkvæmt skipaskrá.
5. Samráð.
Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu voru unnar í samvinnu við Samgöngustofu og Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Áform um lagasetningu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá 11. apríl til 2. maí 2025 (mál nr. S-77/2025). Alls bárust sex umsagnir, frá Samgöngustofu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Tækniskólanum og Verkmenntaskólanum á Akureyri, Félagi skipstjórnarmanna, Félagi vélstjóra og málmtæknimanna og Landhelgisgæslu Íslands. Áform um lagasetningu voru einnig kynnt hagsmunaaðilum á fundi fagráðs um siglingar. Fagráðið gaf umsögn sína í fundargerð 47. fundar ráðsins, dags. 29. apríl 2025.
Í umsögnunum kemur m.a. fram að fjórir skólar bjóði nú þegar upp á hefðbundna menntun skipstjórnar- og vélstjórnarmanna. Lýst er yfir áhyggjum af því að brugðið verði frá þeim lögum og reglugerðum sem liggja að baki réttindum sem veitt eru til siglinga skipa og byggjast á STCW-alþjóðasamþykktinni sem Ísland er aðili að og nefnt að nám í siglingatengdum greinum eigi heima í fagskóla. Bent er á að til skipstjórnar á nýjum skipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar nægi smáskipanám skipstjórnar að 15 metrum, að öðrum skilyrðum uppfylltum. Vélstjórnarréttindi fyrir smáskip séu aftur á móti bundin við minni vélarstærð, en hægt sé að öðlast frekari réttindi með viðbótarnámskeiði á búnað skipsins og/eða undanþágu fyrir þessi skip.
Í áformunum var gert ráð fyrir að tekið væri fram í lögunum að námið og siglingatími í framhaldi af því á skipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar nýttist ekki til að öðlast önnur réttindi samkvæmt lögunum. Í umsögnum var bent á að ef námið yrði kennt í þeim fagskólum sem bjóða nú þegar upp á hefðbundna siglingatengda menntun gæti það nýst viðkomandi til frekara náms á sviði skip- og vélstjórnar. Í frumvarpi sem nú er lagt fram hefur því sú takmörkun verið tekin út, en á móti er gengið út frá því að Slysavarnafélagið Landsbjörg eigi í samráði við fagskólana við myndun námskrár svo að skólarnir geti metið námið að einhverju leyti til annarra réttinda ef áhugi er fyrir því.
Umsagnaraðilar taka flestir undir að mikilvægt sé að tryggja mönnun björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar og koma til móts við sértækar þarfir þess. Í umsögnum kemur einnig fram að jákvætt sé að gert er ráð fyrir samþykki og eftirliti Samgöngustofu með náminu, líkt og við á um aðra skóla sem bjóða upp á nám í siglingatengdum greinum.
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um áhafnir skipa, nr. 82/2022, voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 16. júlí til 13. ágúst 2025 (mál S-131/2025) og bárust þrjár umsagnir, frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Slysavarnafélaginu Landsbjörg og sameiginleg umsögn Tækniskólans og Verkmenntaskólans á Akureyri. Ítrekaðar voru áhyggjur af því að bregða frá þeim lögum og reglugerðum sem liggja að baki réttindum sem veitt eru til siglinga skipa og byggjast á STCW-alþjóðasamþykktinni. Þá komu fram óskir um að réttindi sem gefin yrðu út á grundvelli reglugerðar sem sett yrði með stoð í lögum, nái frumvarpið fram að ganga, myndu einnig gilda til starfa í stuttum útsýnis- og skoðunarferðum og kallað var eftir endurskoðun á öðrum ákvæðum laganna, m.a. um vélstjórnarréttindi í samræmi við tækniþróun og orkuskipti. Því er ástæða til að undirstrika að tilgangur frumvarpsins er ekki að breyta fyrirkomulagi skipstjórnar- og vélstjórnarmenntunar til atvinnuréttinda.
6. Mat á áhrifum.
Samþykkt frumvarpsins mun fyrst og fremst hafa þau áhrif að ráðherra getur sett reglugerð þar sem gerðar verða sérstakar kröfur til menntunar og þjálfunar til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og starfa um borð í björgunarskipunum. Markmiðið er að tryggja mönnun á skipun Slysavarnafélagsins Landsbjargar án þess að draga úr öryggi eða gæðum náms.
Í umsögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar kemur fram að endurnýjun björgunarskipaflotans hafi haft í för með sér aukinn áhuga sjálfboðaliða til starfa um borð í skipunum, og ekki síst hafi áhugi kvenna til að verða hluti af áhöfn aukist. Því má gera ráð fyrir því að frumvarpið hafið jákvæð áhrif á jafnrétti kynjanna í störfum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Ekki er gert ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins hafi í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.