Ferill 91. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 91 — 91. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð og lögum um sölu fasteigna og skipa (umsóknarfrestur, hámarksfjárhæðir, upplýsingaskylda o.fl.).
Flm.: Tryggvi Másson, Diljá Mist Einarsdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Ólafur Adolfsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Jens Garðar Helgason, Rósa Guðbjartsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Sigurður Örn Hilmarsson, Jón Gunnarsson, Jón Pétur Zimsen, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason.
I. KAFLI
Breyting á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, nr. 111/2016.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Heimild rétthafa skv. 2. gr. takmarkast við allt að 4% framlag hans auk 2% framlags launagreiðanda, að hámarki samtals 14.175.000 kr. á fimmtán ára samfelldu tímabili. Verði ávöxtun iðgjalda neikvæð á tímabilinu getur komið til skerðingar sem því nemur. Hámarksfjárhæðir skulu 1. janúar ár hvert taka breytingu í réttu hlutfalli við tólf mánaða breytingu á vísitölu íbúðaverðs hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í nóvember næstliðins árs.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Samskattaðir einstaklingar geta samnýtt hámarksfjárhæðir.
4. gr.
5. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skulu aðilar sem sóttu um úttekt á uppsöfnuðum iðgjöldum síðar en tólf mánuðum frá undirritun kaupsamnings við kaup á fyrstu íbúð eftir 1. júlí 2017 eiga kost á að sækja um og hefja sitt fimmtán ára tímabil, berist umsókn innan tólf mánaða frá gildistöku laga þessara. Á það jafnt við um fólk sem selt hefur íbúð og keypt aðra í stað þeirrar sem seld var innan tólf mánaða skv. 4. mgr. 2. gr. Að þeim tíma loknum fellur ákvæðið úr gildi og nýtt ákvæði 3. gr. laga þessara tekur gildi.
II. KAFLI
Breyting á lögum um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015.
6. gr.
Fasteignasali skal m.a. kynna seljanda og kaupanda ákvæði laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, nr. 111/2016.
7. gr.
Greinargerð.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að breyta fyrirkomulagi hámarksfjárhæða sem rétthafar mega ráðstafa af séreignarsparnaði sínum. Breytingarnar eru tvenns konar. Í fyrsta lagi er lagt til að leyfilegt verði að nýta úrræðið í fimmtán ár í stað tíu ára. Þá er lagt til að í stað þess að árleg hámarksfjárhæð sé takmarkandi sé hámarksfjárhæðin fyrir allt tímabilið. Þetta er gert til þess að mæta aðstæðum fólks sem valda því að því er ekki mögulegt að ná hámarksnýtingu ár hvert, t.d. vegna lágra launa í upphafi eða vegna veikinda, náms eða fjarveru úr starfi af einhverjum ástæðum á tímabilinu. Dæmi má nefna um margt ungt fólk sem þarf að taka sér launalaust leyfi frá vinnu vegna skorts á dagvistunarúrræðum fyrir börn og getur ekki nýtt sér úrræðið á meðan. Uppfærsla fjárhæða miðast við vísitölu íbúðaverðs sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun gefur út mánaðarlega. Miðað er við vísitöluna 57,94 í júlí 2017 en tölurnar uppfærðar miðað við nóvember 2024 þegar vísitalan var 109,5 og tekið tillit til fimmtán ára tímabils í stað tíu ára tímabils. Hefði fjárhæðin fylgt vísitölunni frá gildistöku laganna væri hámarksfjárhæð fyrir árið 2025 945.000 kr. á ári. Þá er lagt til að 1. janúar ár hvert verði hámarksfjárhæðirnar uppfærðar miðað við vísitölu íbúðaverðs í nóvember næstliðins árs. Miðað er við nóvember þar sem vísitalan er almennt gefin út um miðjan mánuð fyrir næstliðinn mánuð.
Í frumvarpinu eru einnig ýmsar litlar breytingar sem þó skipta sköpum. Lagt er til að samskattaðir einstaklingar geti samnýtt hámarksfjárhæðir sínar og þannig komið til móts við ungt fólk, t.d. í fæðingarorlofi eða þegar annar aðili er í námi. Þá er einnig lagt upp með að laga þann ágalla að fólk sem er arfleitt að fasteign vegna andláts geti sótt um úrræðið að því gefnu að viðkomandi hafi ekki átt fasteignina í meira en tólf mánuði. Borið hefur á því að einstaklingar hafi erft íbúð með systkinum eða öðrum og þar með ekki getað sótt um nýtingu úrræðisins þrátt fyrir að íbúðin hafi verið seld stuttu síðar og viðkomandi jafnvel ekki átt meiri hluta og ekki búið í henni á tímabilinu.
Þá er sett inn ákvæði til bráðabirgða þess efnis að þeir sem ekki hafa sótt um nýtingu úrræðisins innan tólf mánaða frá kaupsamningi geti sótt um það innan tólf mánaða frá gildistöku þessara laga og hafið þannig sitt fimmtán ára tímabil. Ákvæði um að sækja þyrfti um innan tólf mánaða frá undirritun kaupsamnings var bætt við lögin áður en þau tóku gildi, með lögum nr. 63/2017, rétt fyrir gildistöku laganna. Þetta ákvæði var ekki í kynningarefni frumvarpsins og olli því að einhverjir sóttu um síðar en tólf mánuðum frá undirritun kaupsamnings. Þá hafa aðilar rekið sig á það að vita ekki af úrræðinu og orðið of seinir til að sækja um. Rétt þykir að gefa þessum aðilum kost á að hefja nýtingu úrræðisins.
Þá er lögð til viðbót við 15. gr. laga um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015. Breytingin snýr að því að fasteignasala verði skylt að kynna kaupanda og seljanda ákvæði laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Í því felast ríkir hagsmunir fyrir kaupanda að átta sig á því hvort hann eigi rétt á stuðningi samkvæmt lögunum en jafnframt fyrir seljanda um hvort hann geti átt rétt á áframhaldandi stuðningi kaupi hann aðra fasteign innan tólf mánaða frá undirritun kaupsamnings. Ákvæði þetta er ekki hugsað sem tæmandi upptalning um hvernig fasteignasali liðsinnir báðum aðilum og þau réttindi sem honum ber að útlista á kaupsamningi, en talið er til bóta fyrir kaupanda og seljanda að fá þessar upplýsingar. Í sumum tilfellum verður niðurstaðan sú að hvorugur á rétt á stuðningi samkvæmt lögunum en þó má ætla að ákvæði þetta hjálpi mörgum sem ekki hefðu annars vitað af rétti sínum til skattfrjálsrar úttektar séreignarsparnaðar til hraðari eignarmyndunar í húsnæði sínu.