Ferill 93. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 93  —  93. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um bætur og málskostnað vegna starfsmannahalds ríkisins.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hversu háar fjárhæðir greiddi ríkið í bætur til einstaklinga í kjölfar úrskurða eða dóma vegna ágreinings um starfsmannahald ríkisins á árunum 2015–2024, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu háar fjárhæðir greiddi ríkið í málskostnað og lögfræðiaðstoð vegna slíkra mála, sundurliðað eftir árum og skipt eftir málskostnaði sem ríkið hefur verið dæmt til að greiða annars vegar og eigin lögfræðikostnaði ríkisins hins vegar?
     3.      Hversu mörg slík mál leiddu til beinna bótagreiðslna eða kostnaðar fyrir ríkissjóð á árunum 2015–2024, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hversu mörg þeirra mála á sama tímabili tengdust eftirtöldum flokkum, sundurliðað eftir árum, og hversu háar fjárhæðir greiddi ríkið vegna hvers flokks:
                  a.      uppsögnum eða brottrekstri opinberra starfsmanna,
                  b.      einelti, áreitni eða vanrækslu á kjarasamningum,
                  c.      ólögmætum ráðningum,
                  d.      öðrum flokkum?


Skriflegt svar óskast.