Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 121 — 121. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um bakgrunn umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hvernig fer rannsókn stjórnvalda fram varðandi sögu og bakgrunn umsækjenda um alþjóðlega vernd?
2. Fer fram bakgrunnsathugun á þeim aðilum sem hingað koma á grundvelli fjölskyldusameiningar? Ef svo er, hvernig er því ferli háttað?
Skriflegt svar óskast.