Ferill 133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 134  —  133. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um bálför og bálstofu.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Telur ráðherra tilefni til að hefja endurskoðun á lögum og reglum með hliðsjón af spám sem liggja fyrir um að allt að 70% landsmanna muni kjósa bálför árið 2040 og að með því muni draga úr þörf sveitarfélaga fyrir aukið landrými undir grafir?
     2.      Hyggst ráðherra tryggja að bálför verði raunhæfur kostur fyrir alla landsmenn, óháð búsetu? Ef svo er, þá hvernig?
     3.      Telur ráðherra tilefni til að skoða hvort unnt sé að koma á fyrirkomulagi um niðurgreiðslu fyrir íbúa á landsbyggðinni sem kjósa bálför, í ljósi þess að talið er hagkvæmast að hafa aðeins eina bálstofu?
     4.      Hver er afstaða ráðherra til þess að sveitarfélög taki þátt í kostnaði við byggingu eða rekstur bálstofu, í ljósi þess að sveitarfélögum er aðeins skylt að leggja til land undir kirkjugarðsstæði en ekki að byggja eða reka bálstofu?


Munnlegt svar óskast.