Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 138  —  111. mál.

1. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um sýslumann.

Frá Jóni Gunnarssyni.


     1.      1. gr. orðist svo, ásamt fyrirsögn:

Embætti sýslumanns.

                 Embætti sýslumanns heyrir undir ráðherra. Aðsetur sýslumanns skal vera á Húsavík í Norðurþingi.
                 Sýslumaður fer með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins eftir því sem lög og reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Með samþykki ráðherra getur sýslumaður annast framkvæmd verkefna fyrir aðrar ríkisstofnanir eða stjórnvöld með sérstökum samningi, enda standi ákvæði laga því ekki í vegi.
                 Sýslumaður fer með stjórn embættisins, gætir þess að það starfi í samræmi við lög og önnur stjórnvaldsfyrirmæli, mótar stefnu í störfum þess og ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri. Sýslumaður ræður starfslið við embætti sitt, þar á meðal svæðisstjóra sem fara með daglega stjórn starfsstöðva, hver innan síns svæðis, og sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin í samráði við sýslumann.
     2.      Á eftir 1. gr. komi ný grein, 2. gr., ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Skipulag sýslumanns.

                 Landið er eitt umdæmi og skal starfsemi vera á eftirfarandi svæðum:
             1.    Höfuðborgarsvæðið. Þjónusta sýslumanns skal að lágmarki veitt í Kópavogi.
             2.    Vesturland. Þjónusta sýslumanns skal að lágmarki veitt á Akranesi, í Borgarnesi, Búðardal, Snæfellsbæ og Stykkishólmi.
             3.    Vestfirðir. Þjónusta sýslumanns skal að lágmarki veitt á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.
             4.    Norðurland vestra. Þjónusta sýslumanns skal að lágmarki veitt á Blönduósi og Sauðárkróki.
             5.    Norðurland eystra. Þjónusta sýslumanns skal að lágmarki veitt á Akureyri, Húsavík, Siglufirði og Þórshöfn.
             6.    Austurland. Þjónusta sýslumanns skal að lágmarki veitt á Egilsstöðum, Eskifirði, Seyðisfirði og Vopnafirði.
             7.    Suðurland. Þjónusta sýslumanns skal að lágmarki veitt á Hvolsvelli, Höfn, Selfossi og í Vík.
             8.    Vestmannaeyjar.
             9.    Suðurnes. Þjónusta sýslumanns skal að lágmarki veitt í Keflavík.
                 Mörk svæða skv. 1. mgr. skulu ákveðin í reglugerð sem ráðherra setur með hliðsjón af skipulagi annarrar opinberrar þjónustu og að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og sýslumann.
                 Sýslumanni í samráði við svæðisstjóra er heimilt að ákveða fagsvið hvers svæðis með hliðsjón af skipulagi annarrar opinberrar þjónustu á svæðinu.
     3.      2. gr. orðist svo, ásamt fyrirsögn:

Meginhlutverk sýslumanns og svæðisstjóra.

                 Hlutverk sýslumanns er m.a. að:
                  a.      vinna að framþróun og eflingu embættisins innan stjórnkerfis hins opinbera,
                  b.      vera ráðherra til ráðgjafar á starfssviði sínu, koma á framfæri tillögum um úrbætur á löggjöf og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum sem um starfsemi hans gilda og aðstoða við stefnumótun og ákvarðanatöku, eftir atvikum að höfðu samráði við svæðisstjóra,
                  c.      stuðla að auknu framboði stafrænnar þjónustu og samskipta í málefnum sem varða starfssvið hans, með það að markmiði að tryggja aðgengi íbúa að opinberri þjónustu á einfaldan, skilvirkan og öruggan hátt,
                  d.      styðja svæðisstjóra við að rækja hlutverk sitt skv. 2. mgr.,
                  e.      fara með innheimtu opinberra gjalda að því leyti sem hún er ekki falin öðrum,
                  f.      leitast við að eiga náið samráð m.a. við Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga, Byggðastofnun og önnur stjórnvöld ríkisins.
                 Hlutverk svæðisstjóra innan síns svæðis undir yfirstjórn sýslumanns er m.a. að:
                  a.      gegna faglegri forystu í þeim verkefnum sem sýslumaður felur þeim, þar á meðal stefnumótun og ákvarðanatöku um framkvæmd verkefna, og vera sýslumanni til ráðgjafar,
                  b.      koma á framfæri tillögum til sýslumanns um hvaðeina sem getur orðið til úrbóta á störfum sem þeim eru falin,
                  c.      tryggja jafnt aðgengi að þjónustu sýslumanns óháð búsetu þannig að skipulag þjónustunnar taki mið af þörfum íbúa fyrir staðbundna þjónustu,
                  d.      hafa forgöngu um reglulegt samráð við landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög og önnur staðbundin stjórnvöld ríkisins um að starfrækja og samhæfa þjónustu hins opinbera innan hvers svæðis eftir því sem við á,
                  e.      leiðbeina þeim sem leita til sýslumanns um þjónustu annarra ríkisstofnana eftir því sem þörf krefur.
     4.      Á undan orðunum „Löglærðir fulltrúar sýslumanns“ í 2. mgr. 3. gr. komi: Svæðisstjórar og.
     5.      A-liður 5. gr. orðist svo: þjónustuframboð þeirra staða sem tilgreindir eru í 2. gr., að höfðu samráði við sýslumann.
     6.      3. og 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I falli brott.

Greinargerð.

    Lagt er til að kveðið verði á um skipulag sýslumannsembættisins og starfsstöðva þess í lögum með það fyrir augum að tryggja starfsemi embættisins á landsbyggðinni. Jafnframt er lagt til að kveðið verði sérstaklega á um stöðu svæðisstjóra sem skal m.a. gegna faglegri forystu í þeim verkefnum sem sýslumaður felur þeim og tryggja jafnt aðgengi að þjónustu sýslumanns óháð búsetu. Jafnframt er lagt til að aðsetur sýslumanns skuli vera á Húsavík.