Ferill 137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 140  —  137. mál.




Beiðni um skýrslu


frá atvinnuvegaráðherra um eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi.


Frá Degi B. Eggertssyni, Örnu Láru Jónsdóttur, Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, Eydísi Ásbjörnsdóttur, Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, Sigurjóni Þórðarsyni, Sigmari Guðmundssyni, Jóni Gnarr, Grími Grímssyni, Ingvari Þóroddssyni og Guðbrandi Einarssyni.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að atvinnuvegaráðherra flytji Alþingi skýrslu um eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins og tengdra félaga í íslensku atvinnulífi. Í skýrslunni komi m.a. fram:
     1.      Fjárfestingar útgerðarfélaganna í félögum sem ekki hafa útgerð fiskiskipa með höndum á síðustu 10 árum og bókfært virði eignarhluta þeirra í árslok 2023.
     2.      Fjárfestingar tengdra eignarhaldsfélaga útgerða í félögum sem ekki hafa útgerð fiskiskipa með höndum á síðustu 10 árum og bókfært virði eignarhluta þeirra í árslok 2023.
     3.      Fjárfestingar dótturfélaga útgerðarfélaganna og dótturfélaga tengdra eignarhaldsfélaga í félögum sem ekki hafa útgerð fiskiskipa með höndum á síðustu 10 árum og bókfært virði þeirra eignarhluta í árslok 2023.
     4.      Raunverulegir eigendur, eins og þeir eru skilgreindir í lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019, þeirra félaga sem getið er í 1.–3. tölul.
     5.      Samantekt á eignarhlut 20 stærstu útgerðarfélaganna í íslensku atvinnulífi byggt á framangreindum gögnum. Upplýsingar nái til allra félaga sem getið er í 1.–3. tölul. hvort sem þau eru skráð hér á landi eða erlendis.
     6.      Fjárfestingar eigenda 20 stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins á grundvelli aflamarks í öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum með úthlutuðu aflamarki (krosseignatengsl), þar sem lögð verði til grundvallar skilgreining samkeppnislaga á tengdum aðilum. Upplýsingar nái til allra félaga sem getið er í 1.–3. tölul. hvort sem þau eru skráð hér á landi eða erlendis.

Greinargerð.

    Beiðni þessi var áður lögð fram á síðasta löggjafarþingi en skýrsla barst ekki á þinginu (155. mál 156. þings). Beiðninni fylgdi svofelld greinargerð:
    „Með skýrslubeiðni þessari er óskað eftir því að atvinnuvegaráðherra flytji Alþingi skýrslu með samantekt á raunverulegu eignarhaldi eigenda 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í þeim fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi sem ekki hafa útgerð fiskiskipa með höndum. Þegar rætt er um raunverulegt eignarhald er átt við raunverulega eigendur líkt og þeir eru skilgreindir í lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019. Um er að ræða sambærilega skýrslubeiðni og Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður o.fl. settu fram á 151. löggjafarþingi 2020–2021 (423. mál) en þó með breytingum til að upplýsingabeiðnin nái að bregða frekari birtu á viðfangsefnið, m.a. með því að horfa til skilgreininga samkeppnislaga um tengda aðila og spurningu um krosseignatengd félög o.fl.
    Með útgerðarfélögum er átt við félög sem eiga aflaheimildir og stunda útgerð. Til 20 stærstu teljast þau sem á yfirstandandi fiskveiðiári áttu mestar aflahlutdeildir í þorskígildistonnum. Með tengdum eignarhaldsfélögum er átt við eignarhaldsfélög sem eiga hlut í útgerðarfélögum og eignarhaldsfélög sem eiga hlut í þeim eignarhaldsfélögum sem hlut eiga í útgerðarfélögum. Með dótturfélögum er átt við félög sem útgerðarfélög eða eignarhaldsfélög þeirra eiga meiri hluta atkvæða í og félög sem þau fara að öðru leyti með yfirráð í vegna hlutafjáreignar eða samninga. Skal skýrslan ná til fjárfestinga allra eignarhalds- og dótturfélaga óháð því hvort þau séu skráð hér á landi eða erlendis. Fjárfestingar síðastliðinna tíu ára skulu teknar fram og bókfært virði þeirra í árslok 2023.
    Hinar umbeðnu upplýsingar er að finna í opinberum skrám og heimildum, svo sem hjá Fiskistofu, Skattinum, Seðlabanka Íslands og öðrum stjórnvöldum og eftir atvikum hjá samsvarandi erlendum stofnunum. Þótt upplýsingar þessar séu opnar almenningi er það vart á færi nema sérfróðra aðila að vinna þær upplýsingar sem um er beðið og skapa þá yfirsýn sem eftir er leitað. Við það bætist að með mikilli fjölgun eignarhaldsfélaga, eignarhaldskeðjum og krosseignarhaldi hefur dregið mjög úr gagnsæi í atvinnurekstri sem gerir almenningi ókleift að fylgjast með mikilvægum þáttum í atvinnulífinu. Á það einnig við um sjávarútveg og starfsemi sem honum tengist og er tilgangur skýrslubeiðninnar m.a. að veita Alþingi og almenningi mikilvægar upplýsingar um hvernig hagnaði og arði af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar hefur verið varið. Vegna hins flókna eignarhalds er því í beiðninni einnig óskað eftir upplýsingum um fjárfestingar eignarhaldsfélaga að sjávarútvegsfyrirtækjum, svo og dótturfélaga þeirra.
    Sjávarútvegur er ein mikilvægasta stoð íslensks efnahagslífs. Bókfært eigið fé, eignir að frádregnum skuldum sjávarútvegsfyrirtækja, var komið upp í 449 milljarða kr. í lok árs 2023 samkvæmt gagnagrunni sem Deloitte tekur saman um rekstur sjávarútvegsfyrirtækja landsins fyrir hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Eigið fé hafði þá aukist um 152 milljarða kr. á tveimur árum. Í sama gagnagrunni má sjá að hagnaður veiða og vinnslu var 58 milljarðar kr. á árinu 2023. Á árunum 2021, 2022 og 2023 var hagnaðurinn samtals 190 milljarðar kr. Frá árinu 2009 hefur sjávarútvegurinn hagnast samtals um vel á sjöunda hundrað milljarða króna á gengi hvers árs fyrir sig. Á föstu gengi er sá hagnaður enn meiri.
    Ljóst er að sterk fjárhagsstaða útgerðarfélaga byggist að umtalsverðu leyti á einkaleyfi þeirra til nýtingar sameiginlegrar auðlindar þjóðarinnar og skipar það þeim í sérflokk í íslensku atvinnulífi, sérstaklega stærstu félögunum. Tækniframfarir og samþjöppun fyrirtækja hafa enn fremur aukið arðsemi útgerðanna.
    Skýrar vísbendingar eru um að fjárfestingar tengdar fyrirtækjum í sjávarútvegi út fyrir greinina hafi aukist mjög í takt við aukinn hagnað af nýtingu auðlindarinnar. Það er jákvætt að því leyti að það dreifir áhættu félaganna sjálfra en getur hæglega leitt til verulegrar uppsöfnunar eigna og áhrifa á fárra hendur og dregið úr virkri samkeppni á mörkuðum. Vegna smæðar innanlandsmarkaða er íslenskt atvinnulíf sérstaklega viðkvæmt fyrir fákeppni.
    Vegna þessarar stöðu telja skýrslubeiðendur mikilvægt að upplýsingar um eignarhluti 20 stærstu útgerðarfélaganna og tengdra aðila í óskyldum atvinnurekstri hérlendis séu teknar saman, með greiningu á fjárfestingum þeirra. Með þessum upplýsingum er hægt að varpa ljósi á raunveruleg áhrif aðila sem hafa einkaleyfi til nýtingar fiskveiðiauðlindarinnar á íslenskt atvinnulíf og samfélag. Yrði skýrsla þessi mikilvægt framlag til umræðunnar um dreifða eignaraðild útgerðarfélaga og skráningu þeirra á markað ásamt því að upplýsa umræðu um mikilvægi þess að þjóðin fái eðlilegan arð af auðlindum sínum.“