Ferill 138. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 141  —  138. mál.




Beiðni um skýrslu


frá fjármála- og efnahagsráðherra um launaþróun hjá hinu opinbera.


Frá Njáli Trausta Friðbertssyni, Diljá Mist Einarsdóttur, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, Jens Garðari Helgasyni, Vilhjálmi Árnasyni, Jóni Gunnarssyni, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Ólafi Adolfssyni og Bryndísi Haraldsdóttur.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármála- og efnahagsráðherra flytji Alþingi skýrslu um launaþróun hjá hinu opinbera. Í skýrslunni verði fjallað um:
     a.      hverjar umsamdar launahækkanir voru á hverju ári í kjarasamningum ríkisstarfsmanna árin 2014–2024,
     b.      hverjar forsendur fjárlaga voru varðandi launaþróun fyrir hvert ár árin 2014–2024,
     c.      hvernig fjárheimildir fjárlaga 30 stærstu ríkisaðilanna skiptust fyrir hvert þessara fjárlagaára vegna launa og þær settar fram í samhengi við forsendur fjárlaga viðkomandi fjárlagaárs og einnig borið saman við fyrra ár í prósentum talið fyrir hvern ríkisaðila fyrir sig,
     d.      hvert launaskrið var hjá 30 stærstu ríkisaðilunum með því að bera saman þróun launakostnaðar í raun á hvert stöðugildi hjá þeim á tímabilinu 2014–2024, ár fyrir ár og uppsafnað yfir tímabilið, borið saman við vænta launaþróun hvers ríkisaðila samkvæmt forsendum fjárlaga,
     e.      breytingar á fjölda starfa hjá 30 stærstu ríkisaðilunum þar sem fjölgun ársverka er greind eftir dagvinnulaunum, eftirvinnu og greiddum einingum,
     f.      hvernig launaþróunin hefur verið hjá hinu opinbera flokkað niður á helstu starfsstéttir og málefnasvið,
     g.      hver áhrif af styttingu vinnuvikunnar hjá 30 stærstu ríkisaðilunum voru og hversu mikið starfsfólki fjölgaði vegna styttingarinnar,
     h.      hver launaþróun var á almennum markaði á tímabilinu 2014–2024,
     i.      hver hagþróun var á tímabilinu 2014–2024 og hvernig hlutur launþega sem hlutfall af landsframleiðslu þróaðist og hvernig það er mælt.

Greinargerð.

    Beiðni þessi var áður lögð fram á síðasta löggjafarþingi en skýrsla barst ekki á þinginu (481. mál 156. þings). Beiðninni fylgdi svofelld greinargerð:
    „Markmið skýrslubeiðninnar er að varpa ljósi á launaþróun hjá hinu opinbera á undanförnum tíu árum og greina hvernig samband er á milli fjárlagaforsendna, fjárheimilda og raunverulegra launaútgjalda hjá hinu opinbera. Sérstaklega er mikilvægt að kanna hvort og þá hvernig forstöðumenn ríkisstofnana hafa haft svigrúm til að semja um launahækkanir umfram þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar í fjárlögum hvers árs.
    Mikilvægt er að greina hversu stór hluti nýrra fjárheimilda ríkisaðila hafa runnið í launahækkanir fremur en til eflingar þjónustu eða nýrra verkefna og mun umbeðin skýrsla vonandi veita betri innsýn í það. Það virðist sem hluti nýrra fjárheimilda sem ætlaðar eru til að bæta þjónustu hafi leitt til launahækkana umfram forsendur fjárlaga án þess að Alþingi hafi tekið slíka ákvörðun og því þarf að greina í hversu miklum mæli það hefur leitt til hærri ríkisútgjalda án þess að leiða til betri eða nýrrar þjónustu.
    Flutningsmenn bera von til þess að umbeðin skýrsla geri Alþingi betur kleift að sinna eftirlitshlutverki sínu og stemmi stigu við launaskriði hjá hinu opinbera sem hefur átt sér stað án aðkomu Alþingis og án ávinnings fyrir borgarana og með skaðlegum áhrifum á verðbólgu og efnahagslegan stöðugleika.“