Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 151  —  147. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022 (einföldun).

Frá fjármála- og efnahagsráðherra.



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                  Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/760 frá 29. apríl 2015 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 1–24, með þeim breytingum sem leiðir af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 frá 15. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/760 að því er varðar kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingareigna, kröfur um samsetningu og fjölbreytileika eignasafna og lántöku í reiðufé og aðrar sjóðsreglur, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 3. júlí 2025, bls. 823–845, skulu hafa lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2020 frá 7. febrúar 2020, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 13 frá 16. febrúar 2023, bls. 41–42, ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 46 frá 24. júlí 2025, bls. 41–42, og bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest.
     b.      Á eftir 6. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Með vísun til endurtryggingafélags skv. 4. tölul. 13. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB í ca-lið 7. tölul. 2. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við endurtryggingafélag samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi.
     c.      Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Með vísun til samstæðu skv. 11. tölul. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB í lið 14b 2. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við samstæðu samkvæmt lögum um ársreikninga.
     d.      Á eftir 11. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Með vísun til áhættusams þriðja lands skv. 2. mgr. 9. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 í i-lið c-liðar 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við áhættusöm ríki samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
     e.      Í stað tilvísunarinnar „7. mgr.“ í 12. mgr. kemur: 6. mgr.
     f.      14. mgr. fellur brott.
     g.      Á eftir 14. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Með vísun til krafna skv. 2.–5. og 7. undirgrein 3. mgr. 16. gr. og 2. mgr. 24. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 27. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við kröfur skv. 22. gr. og 2. og 3. mgr. 33. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
     h.      Við bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                  Með vísun til hæfismats skv. 2. mgr. 25. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við mat á hæfi skv. 44. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
                  Með vísun til yfirlýsingar um hæfi skv. 2. og 3. undirgrein 6. mgr. 25. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við yfirlýsingu um mat á hæfi skv. 3. og 4. mgr. 46. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
                  Með vísun til skráahalds skv. 5. mgr. 25. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við skrá skv. 1. mgr. 46. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 7. gr. laganna:
     a.      11. og 13. tölul. falla brott.
     b.      Í stað orðanna „innra matsferli“ í 12. tölul. kemur: kröfur til innri ferla.
     c.      15. tölul. orðast svo: 30. gr. um sérstakar kröfur vegna markaðssetningar og sölu til almennra fjárfesta.

3. gr.

    5. tölul. 1. mgr. 13. gr. laganna orðast svo: 30. gr. um sérstakar kröfur vegna markaðssetningar og sölu til almennra fjárfesta.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 15. gr. laganna:
     a.      2. tölul. orðast svo: 6. mgr. 18. gr. um við hvaða aðstæður líftími evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs telst samrýmanlegur við lífsferla hverrar einstakrar eignar sjóðsins, um viðmiðanir fyrir ákvörðun lágmarkseignarhaldstímabils, um lágmarksupplýsingar sem veita ber lögbæru yfirvaldi evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs, um kröfur sem evrópskur langtímafjárfestingarsjóður þarf að uppfylla með tilliti til innlausnarstefnu og lausafjárstýringartækja og viðmiðanir fyrir mat á hlutfalli að teknu tilliti til m.a. vænts sjóðstreymis og skuldbindinga evrópska langtímafjárfestingarsjóðsins.
     b.      Á eftir 2. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: 5. mgr. 19. gr. um aðstæður fyrir notkun pörunar, þ.m.t. þær upplýsingar sem evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir þurfa að veita fjárfestum.
     c.      Á eftir 3. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: 3. mgr. 25. gr. um sameiginlegar skilgreiningar, útreikningsaðferðir og framsetningarsnið kostnaðar og heildarhlutfall kostnaðar.
     d.      4. tölul. fellur brott.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

6. gr.

    Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020: 2. málsl. 1. mgr. 65. gr. a laganna fellur brott.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 frá 15. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/760 að því er varðar kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingareigna, kröfur um samsetningu og fjölbreytileika eignasafna og lántöku í reiðufé og aðrar sjóðsreglur. Reglugerðin gekk í gildi innan Evrópusambandsins (hér eftir ESB) 10. janúar 2024. Ákveðið var að taka gerðina upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Með lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022, voru ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/760 frá 29. apríl 2015 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði (hér eftir ELTIF-reglugerðin) innleidd. Evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir (hér eftir ELTIF-sjóðir) eru ætlaðir til langtímafjárfestinga til ýmissa verkefna á sviði til að mynda innviða, óskráðra fyrirtækja og lítilla og meðalstórra fyrirtækja. ELTIF-reglugerðinni var breytt með reglugerð (ESB) 2023/606.
    ELTIF-sjóðir eru sérhæfðir sjóðir í rekstri rekstraraðila sérhæfðra sjóða með starfsleyfi. Þeir eru einu sjóðirnir sem eru helgaðir langtímafjárfestingum og heimilt er að markaðssetja yfir landamæri innan Evrópska efnahagssvæðisins (hér eftir EES) fyrir bæði fagfjárfesta og almenna fjárfesta. Fáir ELTIF-sjóðir hafa verið settir á stofn frá gildistöku ELTIF-reglugerðarinnar og í fáum aðildarríkjum, sbr. 1. og 3. lið aðfaraorða reglugerðar (ESB) 2023/606, eða 57 talsins í október 2021 í aðeins fjórum aðildarríkjum, þ.e. Frakklandi, Lúxemborg, Ítalíu og Spáni. Talið er að ástæðuna megi rekja til strangra reglna um samsetningu eignasafna ELTIF-sjóða og takmarkana á möguleikum til dreifingar þeirra. Samanlögð hrein eign slíkra sjóða var árið 2021 um 2,4 milljarðar evra. Fyrir breytingu reglnanna hafði þróunin ekki verið í þá átt að starfsemi slíkra sjóða hefði aukist þrátt fyrir mikla áherslu ESB á langtímafjármögnun innan sambandsins, sbr. 2. lið aðfaraorða reglugerðar (ESB) 2023/606. Af þessum sökum var talið nauðsynlegt að endurskoða ELTIF-reglugerðina í því skyni að gera slíka sjóði eftirsóknarverðari fyrir fjárfesta og til að auka hlut þeirra sem uppsprettu fjármagns fyrir fyrirtæki innan ESB svo og til að auðvelda þátttöku almennra fjárfesta í slíkum sjóðum. Breytingunum á ELTIF-reglugerðinni er ætlað að styðja við markmið ESB um sparnaðar- og fjárfestingarsamband sem áður var vísað til sem sambands fjármagnsmarkaða, sem er hluti af vegferðinni um að auka samkeppnishæfni Evrópu.
    Markmiðið með innleiðingu reglugerðarinnar í íslenskan rétt, eins og hún hefur verið tekin upp í EES-samninginn, er að samræma þær reglur sem gilda hér á landi við þær sem gilda innan EES enda er þannig best gætt að hagsmunum markaðarins og fjárfesta og ýtt undir aukna starfsemi erlendra fyrirtækja hér á landi og íslenskra fyrirtækja erlendis. Loks er ætlunin að stuðla að skilvirkri framkvæmd EES-samningsins. Ekki eru aðrar leiðir færar til innleiðingar gerðarinnar í íslenskan rétt en með breytingu á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði þar sem ELTIF-reglugerðinni var veitt lagagildi.

3. Meginefni frumvarpsins.

3.1. Inngangur.
    Lagt er til að gerðar verði breytingar á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði. Frumvarpið felur í sér innleiðingu reglugerðar (ESB) 2023/606 í íslenskan rétt. Meginefni frumvarpsins er því lögfesting reglugerðarinnar og tillögur um smávægilegar breytingar á ákvæðum laganna um stjórnvaldssektir og refsingar sem leiðir af breytingum á ELTIF-reglugerðinni og um heimildir Seðlabanka Íslands til setningar stjórnvaldsfyrirmæla til innleiðingar í íslenskan rétt á ákvæðum undirgerða ELTIF-reglugerðarinnar, svo sem reglugerð (ESB) 2024/2759, til samræmis við reglusetningarheimildir í reglugerðinni.
    Í ELTIF-reglugerðinni er kveðið á um heimildir til að nota ELTIF og evrópskur langtímafjárfestingarsjóður í heiti sjóða þeirra rekstraraðila sem kjósa að markaðssetja sjóðina innan EES fyrir fagfjárfesta og almenna fjárfesta og hafa uppfyllt tiltekin skilyrði til að það sé unnt.
    Helstu breytingarnar á ELTIF-reglugerðinni sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2023/606 eru á reglum um fjárfestingarheimildir ELTIF-sjóða, um möguleika fjárfesta til að selja fjárfestingar sínar í slíkum sjóðum, um heimildir almennra fjárfesta til fjárfestinga í slíkum sjóðum, um heimildir til fylgisjóða- og höfuðsjóðafyrirkomulags þannig að ELTIF-sjóðum sé t.d. heimilt að vera fylgisjóðir og fjárfesta 85% eða meira af eignum sínum í öðrum ELTIF-sjóði sem kallast þá höfuðsjóður, um meðfjárfestingar þannig að ELTIF-sjóðir geti t.d. lagt í sameiginlegar minnihlutafjárfestingar í fjárfestingartækifærum, um starfsleyfi rekstraraðila og um upplýsingagjöf til fjárfesta.
    Ekki er lagt til að gengið verði lengra við innleiðinguna á reglugerð (ESB) 2023/606 en lágmarkskröfur hennar áskilja. Þó er rétt að taka fram að lagt er til að nýrri reglusetningarheimild verði bætt við lögin um upplýsingagjöf um kostnað sem fjárfestingar í evrópskum langtímafjárfestingarsjóðum bera, sem leiðir ekki beint af innleiðingu reglugerðarinnar. Fyrir yfirsjón var þessi reglusetningarheimild ekki hluti af frumvarpi sem varð að lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022, þegar ELTIF-reglugerðin var innleidd á sínum tíma.

3.2. Helstu breytingar á ELTIF-reglugerðinni.
3.2.1. Breytingar á fjárfestingarheimildum ELTIF-sjóða.

    Með það að markmiði að gera ELTIF-sjóði áhugaverðari fyrir eignastýringaraðila og fjárfesta hafa nokkrar breytingarnar verið gerðar á reglum ELTIF-reglugerðarinnar um fjárfestingarheimildir sjóðanna með reglugerð (ESB) 2023/606.
    Skilgreining á eignum (e. real asset) í 2. gr. ELTIF-reglugerðarinnar er einfölduð til muna í þeim tilgangi að útvíkka möguleika á fjárfestingaráætlunum sem rekstraraðilar ELTIF-sjóða geta framfylgt. Breytingunum er m.a. ætlað að tryggja að það sem telst til hæfra fjárfestinga fyrir ELTIF-sjóði geti talist vera fjárfestingar sem ekki er einfalt að magngreina. Þá felur breytingin í sér að slíkar fjárfestingar geti falist í t.d. innviðum, hugverkum, skipum, búnaði, flugvélum, auk auðlindaréttinda eins og vatni, skógi og námuréttindum.
    Breytingar á 1. gr. reglugerðarinnar snúa að efni hennar og markmiði sem og á 11. gr. hennar um fjárfestingarhæf fyrirtæki til þess að fjarlægja þá hindrun sem sett var upp svo að fjárfestingar ELTIF-sjóða væru fyrst og fremst innan EES. Hindrunin var talin takmarka fjárfestingarmöguleika slíkra sjóða of mikið, enda gætu fjárfestingar í verkefnum, fyrirtækjum og innviðum í þriðju ríkjum einnig fært fjármuni til ELTIF-sjóða og verið til hagsbóta fyrir hagkerfi ESB. Með þessari breytingu er meiningin að opna fyrir fjárfestingar ELTIF-sjóða, t.d. í neðansjávarljósleiðurum sem tengja Evrópu við aðrar heimsálfur og búnaði fyrir endurnýjanlega orku og öðru sambærilegu sem getur stuðlað að orkuöryggi ESB, sbr. 4. lið aðfaraorða reglugerðar (ESB) 2023/606.
    Reglur 10. gr. ELTIF-reglugerðarinnar um hvað teljist vera hæfar fjárfestingar fyrir ELTIF-sjóði eru útvíkkaðar. Helstu breytingarnar eru eftirfarandi:
          Opnað er fyrir frekari fjárfestingar í öðrum sjóðum um sameiginlega fjárfestingu með þeim skilyrðum að þeir sjóðir sem fjárfest er í fjárfesti í hæfum fjárfestingum samkvæmt ELTIF-reglugerðinni og hafi ekki fjárfest meira en 10% af sínum höfuðstól í öðrum sjóðum um sameiginlega fjárfestingu. Skerpt er á kröfum um áhættustýringu vegna þessa.
          Bætt er við heimild fyrir ELTIF-sjóði til að setja upp fylgisjóða- og höfuðsjóðafyrirkomulag, svo lengi sem bæði höfuðsjóður og fylgisjóður uppfylli skilyrði þess að vera ELTIF-sjóðir. Er það gert til þess að nýta ávinning eignadreifingar og til að nýta betur sérþekkingu rekstraraðila ELTIF-sjóða. Í þeim tilvikum gildir ekki krafan um 10% hámark á fjárfestingar í öðrum sjóðum um sameiginlega fjárfestingu.
          Bætt er við heimildum til fjárfestinga í tilteknum verðbréfunum til að fjölga fjárfestingarkostum fyrir sjóðina og að sama skapi að gera slíka sjóði meira aðlaðandi fyrir fjárfesta og eignastýringaraðila.
          Fallið er frá kröfu um 10 millj. evra lágmark á hverja hæfa fjárfestingu ELTIF-sjóða í eignum (e. real asset). Væntingar eru um að sú breyting muni leiða til dreifingar á eignasöfnum ELTIF-sjóða og ýta undir áhrifaríkari fjárfestingar.
    Tilteknar breytingar eru einnig gerðar á 11. gr. ELTIF-reglugerðarinnar um fjárfestingarhæf fyrirtæki. Þær eru aðallega eftirfarandi:
          Til að ýta undir nýsköpun er opnað á heimildir til fjárfestinga í nýsköpunarfyrirtækjum á fjármálamarkaði sem hafa nýlega fengið starfsleyfi. Áður var ELTIF-sjóðum óheimilt að fjárfesta í fyrirtækjum á fjármálamarkaði.
          Skilyrði um markaðsverðmæti að hámarki 500 millj. evra í skráðum fyrirtækjum er breytt þannig að miða skuli við hámarksmarkaðsverðmætið 1.500 millj. evra. Seljanleiki skráðra fyrirtækja með lágt markaðsverðmæti getur verið takmarkaður, sem hindrar að rekstraraðilar ELTIF-sjóða geti byggt upp fullnægjandi stöðu í slíkum félögum innan sanngjarnra tímamarka. Þótti þetta skilyrði draga úr fjárfestingarmöguleikum.
          Ekki er heimilt að fjárfesta í fyrirtækjum sem staðsett eru í ríkjum sem hafa verið skilgreind sem áhættusöm þriðju ríki samkvæmt löggjöf um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og viðkomandi ríki má ekki vera á lista ESB yfir ósamvinnuþýð lögsagnarumdæmi í skattalegu tilliti. Við upptöku reglugerðar (ESB) 2023/606 í EES-samninginn hefur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar verið mælt fyrir um aðlögun á þessu á þá leið að í stað listans sem ESB útbýr sé í gerðinni vísað til lista viðkomandi EFTA-ríkis um ósamvinnuþýð lögsagnarumdæmi. Listi Íslands að þessu leyti hefur enn ekki verið birtur en áformað er að birta hann með reglugerð ráðherra sem setti yrði með stoð í lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003. Tillögu að slíkri lagastoð var að finna í frumvarpi til laga um verðbréfun sem lagt var fram á 156. löggjafarþingi (122. mál) en náði ekki fram að ganga og verður lagt fram að nýju á yfirstandandi þingi.

3.2.2. Reglur um hagsmunaárekstra og meðfjárfestingar.
    Regla 1. mgr. 12. gr. ELTIF-reglugerðarinnar um hagsmunaárekstra er óbreytt nema að því leyti að heimild ELTIF-sjóða til fjárfestinga í öðrum sjóðum sem rekstraraðili stýrir er víkkuð út þannig að aðrar sjóðategundir en ELTIF-sjóðir, evrópskir áhættufjármagnssjóðir (EuVECA) og evrópskir félagslegir framtakssjóðir (EUSEF), falla einnig þar undir, til samræmis við breytingar á fjárfestingarheimildum ELTIF-sjóða.
    Til viðbótar við þessa reglu er með reglugerð (ESB) 2023/606 bætt við ákvæði um að rekstraraðila, fyrirtæki innan sömu samstæðu og starfsfólki þeirra sé heimilt að fjárfesta í ELTIF-sjóði sem rekstraraðili stýrir og fjárfesta með sjóðnum í öðrum eignum svo lengi sem til staðar sé fyrirkomulag til að greina, koma í veg fyrir, stýra og vakta hagsmunaárekstra. Upplýsa skal með fullnægjandi hætti um slíka hagsmunaárekstra. Reglurnar um hagsmunaárekstra miða að því að veita fullnægjandi fjárfestavernd og gæta að heilleika markaðarins.

3.2.3. Fjárfestingarstefna ELTIF-sjóða: samsetning eignasafna, dreifing áhættu o.fl.
    Í ELTIF-reglugerðinni eru reglur um samsetningu eignasafna ELTIF-sjóða og dreifingu á áhættu. Markmið þeirra reglna var að takmarka áhættutöku ELTIF-sjóða og að draga úr mótaðilaáhættu.
    Í 13. gr. ELTIF-reglugerðarinnar er kveðið á um að a.m.k. 70% eigna ELTIF-sjóðs skuli fara í að fjárfesta í hæfum eignum. Markmiðið var að tryggja skýra áherslu á að sjóðirnir fjárfestu í langtímafjárfestingum og að tryggja áherslu á almenna fjárfesta sem mögulega þekktu minna til sjaldgæfari fjárfestingaráætlana. Þótti þetta hlutfall vera ákvarðað nokkuð hátt og var lækkun á því talin geta ýtt undir meiri fjölbreytni í fjárfestingum sjóðanna. Með reglugerð (ESB) 2023/606 er hlutfallið lækkað úr 70% að lágmarki í 55% að lágmarki til að rekstraraðilar ELTIF-sjóða eigi m.a. auðveldara með að auka seljanleika á eignasafni sjóðanna og auðvelda þeim að bregðast við innlausnarbeiðnum á líftíma sjóðs, enda eru hæfar fjárfestingar samkvæmt reglugerðinni í eðli sínu illseljanlegar.
    Reglunum er einnig breytt til þess m.a. að draga úr viðskipta- og umsýslukostnaði. Hámörk fjárfestinga í tilteknum eignum hjá tilteknum tegundum aðila eru hækkuð. Reglurnar fyrir breytingu gerðu þá kröfu að fjárfest væri í tíu mismunandi eignum, sem þótti of íþyngjandi og kostnaðarsamt og því var reglunum breytt og hámörkin hækkuð.
    Reglum um mótaðilaáhættu í 15. gr. ELTIF-reglugerðarinnar er jafnframt breytt þannig að í stað 25% er ELTIF-sjóði heimilt að eiga allt að 30% í einum og sama sjóði.
    Auk þessa er gerður greinarmunur hvað varðar samsetningu og dreifingu eignasafna og um samþjöppun ELTIF-sjóða eftir því hvort þeir eru aðeins markaðssettir fyrir fagfjárfesta eða einnig markaðssettir fyrir almenna fjárfesta, sbr. nánari umfjöllun í kafla 3.2.9.

3.2.4. Heimildir ELTIF-sjóða til lántöku.
    Í 16. gr. ELTIF-reglugerðarinnar eru heimildir ELTIF-sjóða til lántöku á handbæru fé takmarkaðar við 30% af virði hlutafjár viðkomandi sjóðs. Var sú takmörkun talin geta verið hindrun fyrir rekstraraðila til að ná árangri með fjárfestingaráætlanir sínar auk þess sem sú regla var ekki í samræmi við heimildir annars konar sjóða til lántöku. Voru því gerðar breytingar á þessum reglum með reglugerð (ESB) 2023/606 til að auka sveigjanleika rekstraraðila. Var því hámarkið fyrir ELTIF-sjóði sem heimilt er að markaðssetja fyrir almenna fjárfesta hækkað í 50% og hámark fyrir ELTIF-sjóði sem aðeins er heimilt að markaðssetja fyrir fagfjárfesta hækkað meira, eða í 100%.
    Þá eru einnig gerðar breytingar hvað varðar lántökur ELTIF-sjóða í erlendri mynt og varnir gegn gengisáhættu þar að lútandi.
    Vegna þessara breytinga er nú gerð sú krafa að rekstraraðilar ELTIF-sjóða upplýsi í útboðslýsingu um hvort viðkomandi sjóður hyggist taka lán í reiðufé sem hluta af fjárfestingaráætlun og ef svo er skal hann einnig tilgreina lántökutakmarkanir.

3.2.5. Sala fjárfestingar í ELTIF-sjóði fyrir lok líftíma sjóðsins.
    Meginregla ELTIF-reglugerðarinnar er að ekki sé hægt að innleysa hlut eða hlutdeildarskírteini í ELTIF-sjóði fyrir lok líftíma sjóðsins. Þó geta rekstraraðilar kveðið á um í reglum sjóðanna að innlausn fyrir lok líftíma ELTIF-sjóðs sé möguleg, en uppfylla þurfi ströng skilyrði til að slík undanþága eigi við. Um þetta er fjallað í 18. gr. reglugerðarinnar og var þessum reglum lítið breytt. Auk þessa hafa fjárfestar getað óskað eftir slitum ELTIF-sjóðs ef ósk þeirra um innlausn hefur ekki verið uppfyllt innan árs frá því að beiðni var sett fram. Er þessi réttur talinn vera í ósamræmi við eðli ELTIF-sjóða sem langtímafjárfestingarsjóða og m.a. þess að eignir slíkra sjóða geta verið illseljanlegar og getur slík beiðni talist vera skaðleg fyrir hagsmuni fjárfesta. Þess vegna er þessi möguleiki felldur brott.
    Í 19. gr. ELTIF-reglugerðarinnar er fjallað um viðskipti með hluti eða hlutdeildarskírteini í ELTIF-sjóðum á eftirmarkaði. Ákvæðinu er breytt með reglugerð (ESB) 2023/606 til að ýta undir meiri notkun á þessum möguleika. Rekstraraðili ELTIF-sjóða getur boðið upp á valkvæðan innlausnarmöguleika meðan á líftíma sjóðs stendur, sem felst í pörun á tilboðum mögulegra fjárfesta og þeirra fjárfesta í ELTIF-sjóði sem vilja selja sína fjárfestingu. Ef rekstraraðili býður upp á þennan möguleika skal hann hafa tiltæka stefnu fyrir pörun. Þá skulu rekstraraðilar og dreifingaraðilar ELTIF-sjóða gefa almennum fjárfestum skriflega viðvörun um að möguleiki á pörun tryggi ekki að fjárfestir geti selt hluti sína eða hlutdeildarskírteini í viðkomandi sjóðum, sbr. breytingar á 30. gr. reglugerðarinnar. Þá skal ekki kynna pörunarmöguleikann í markaðsgögnum fyrir ELTIF-sjóði sem tryggingu fyrir seljanleika ELTIF-sjóða þegar við beiðni fjárfestis.

3.2.6. Upplýsingagjöf fyrir fjárfesta.
    Til að auka gagnsæi um fyrirkomulag þóknana er kröfum 25. gr. ELTIF-reglugerðarinnar um upplýsingagjöf rekstraraðila ELTIF-sjóðs í útboðslýsingu um þóknanir í tengslum við fjárfestingar sjóðsins breytt þannig að þær samsvari kröfunum sem gerðar eru með reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1286/2014 frá 26. nóvember 2014 um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta.
    Þegar um höfuðsjóðs- og fylgisjóðsfyrirkomulag er að ræða skal útboðslýsing fylgisjóðsins innihalda upplýsingagjöf um það fyrirkomulag, svo sem um fylgisjóðinn og um höfuðsjóðinn og lýsingu á öllum þóknunum og endurgreiðslu á kostnaði sem fylgisjóðurinn þarf að standa straum af, sem og heildarkostnaði fylgisjóðsins og höfuðsjóðsins, sbr. breytingar á 23. gr. ELTIF-reglugerðarinnar. Þá skal rekstraraðili ELTIF-sjóðs setja inn yfirlýsingu í ársreikning ELTIF-fylgisjóðs sem markaðssettur er fyrir almenna fjárfesta um heildarkostnað ELTIF-fylgisjóðsins og höfuðsjóðs. Markmiðið með þessari upplýsingagjöf er að vernda fjárfesta gegn órökstuddum viðbótarkostnaði vegna áskriftar- og innlausnargjalda sem höfuðsjóður krefst mögulega af fylgisjóði.

3.2.7. Breytingar á heimildum almennra fjárfesta til að fjárfesta í ELTIF-sjóðum.
    Í þeim tilvikum sem virði eignasafns almenns fjárfestis sem óskar eftir að fjárfesta í ELTIF-sjóðum nemur lægri fjárhæð en 500 þús. evrum er í 30. gr. ELTIF-reglugerðarinnar gerð krafa um lágmarksfjárfestingarfjárhæð í upphafi og einnig er sett þak á mögulega skuldbindingu fjárfestisins. Ef almennur fjárfestir hefur áhuga á að fjárfesta í ELTIF-sjóði skal upphafleg lágmarksfjárfesting því vera sem nemur 10 þús. evrum og skal fjárfesting hans í ELTIF-sjóðum ekki vera meiri en sem nemur 10% af verðmæti eignasafns hans. Framfylgni við þessar kröfur hefur verið undir því komin að almennir fjárfestar upplýsi sjálfir um þetta og hafa rekstraraðilar og dreifingaraðilar ELTIF-sjóða sjálfir getað gengið úr skugga um það. Þessar reglur hafa verið taldar hindra verulega að almennir fjárfestar fjárfesti í ELTIF-sjóðum. Er því með reglugerð (ESB) 2023/606 fallið frá báðum þessum kröfum.
    Skilyrði fyrir kaupum almennra fjárfesta í ELTIF-sjóði eru eftir breytingar þær að þeim eru slík kaup heimil að undangengnu mati á hæfi. Í tilteknum tilvikum þarf að fá skýrt samþykki fjárfestisins fyrir því að hann skilji áhættuna af slíkri fjárfestingu. Sjá nánari umfjöllun í kafla 3.2.8.

3.2.8. Kröfur á hendur þeim sem markaðssetja ELTIF-sjóði fyrir almenna fjárfesta.
    Nokkrar breytingar eru gerðar á reglum ELTIF-reglugerðarinnar hvað varðar markaðssetningu og sölu á ELTIF-sjóðum til almennra fjárfesta.
    26. gr. ELTIF-reglugerðarinnar um skyldu rekstraraðila ELTIF-sjóða til að setja upp aðstöðu í þeim aðildarríkjum þar sem ætlunin er að markaðssetja ELTIF-sjóði er felld brott. Sambærileg ákvæði í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB frá 13. júlí 2009 um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði (UCITS) og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB frá 8. júní 2011 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða (AIFMD) hafa verið felld brott, sbr. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1160 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB og 2011/61/ESB að því er varðar dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri. Sú krafa var talin fela í sér viðbótarkostnað og árekstra varðandi markaðssetningu sjóðanna yfir landamæri. Þá er helsta samskiptaleið við fjárfesta ekki lengur í eigin persónu á tilteknum starfsstöðvum heldur rafræn samskipti á milli fjárfesta og rekstraraðila sjóðanna eða dreifingaraðila.
    Þegar hlutir og hlutdeildarskírteini í ELTIF-sjóðum eru markaðssett fyrir almenna fjárfesta gilda ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB frá 15. maí 2014 um markaði fyrir fjármálagerninga og um breytingu á tilskipun 2002/92/EB og tilskipun 2011/61/ESB (hér eftir MiFID II) um afurðastjórnun um þá þjónustu samkvæmt breyttri 27. gr. ELTIF-reglugerðarinnar.
    Reglum 30. gr. ELTIF-reglugerðarinnar um sérstakar kröfur þegar ELTIF-sjóður er markaðssettur fyrir almenna fjárfesta er breytt, m.a. með eftirfarandi hætti:
          Mat á hæfi almennra fjárfesta skal fara fram í samræmi við reglur um mat á hæfi í 25. gr. MiFID II en ekki samkvæmt sérreglum ELTIF-reglugerðarinnar eins og áður var. Í því skyni að tryggja fjárfestavernd fyrir almenna fjárfesta skal meta hæfi hvort sem sala á ELTIF-sjóðum fer fram í gegnum dreifingaraðila eða rekstraraðila eða á eftirmarkaði. Niðurstöðu hæfismatsins skal koma til almenns fjárfestis á formi yfirlýsingar um hæfi, sbr. 6. mgr. 25. gr. MiFID II. Í þeim tilvikum þar sem niðurstaða hæfismats er sú að ELTIF-sjóður hentar ekki fjárfesti en hann kýs samt sem áður að fjárfesta í sjóðnum skal áður en viðskiptin fara fram fá yfirlýsingu frá fjárfesti þar um.
          Krafa um veitingu fjárfestingarþjónustu við markaðssetningu ELTIF-sjóða fyrir almenna fjárfesta er felld brott.
          Sett er inn sú krafa að rekstraraðili ELTIF-sjóðs eða dreifingaraðili afhendi fjárfesti skýra skriflega viðvörun með upplýsingum um annars vegar að sjóður henti mögulega ekki almennum fjárfestum sem þola ekki slíka illseljanlega langtímaskuldbindingu í þeim tilvikum sem viðkomandi sjóður er með lengri líftíma en tíu ár, og hins vegar þar sem reglur sjóðsins gera ráð fyrir möguleikanum á pörun, sbr. umfjöllun í kafla 3.2.5, að sá möguleiki tryggi ekki að almennur fjárfestir geti innleyst hluti sína í viðkomandi sjóði.
          Rekstraraðilar ELTIF-sjóða sem markaðssettir eru fyrir almenna fjárfesta og dreifingaraðilar þeirra eru felldir undir reglur MiFID II um skráarhald til að tryggja fullnægjandi eftirlit með því að farið sé að kröfum reglugerðarinnar um markaðssetningu ELTIF-sjóða fyrir almenna fjárfesta.

3.2.9. ELTIF-sjóðir sem eingöngu eru markaðssettir fyrir fagfjárfesta.
    Kveðið er á um sérstakar reglur fyrir ELTIF-sjóði sem eingöngu eru markaðssettir fyrir fagfjárfesta. Kröfur sem eiga fyrst og fremst við vegna almennra fjárfesta eru eftir breytingar ekki látnar ná til ELTIF-sjóða sem einungis eru markaðssettir fyrir fagfjárfesta, einkum að því er varðar samsetningu eignasafns og fjölbreytileika þeirra, takmarkanir á samþjöppun og um heimildir til lántöku. Ástæður þessara breytinga eru m.a. meira áhættuþol fagfjárfesta og ólík ávöxtunarmarkmið en í tilviki almennra fjárfesta.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Fyrirhuguð lagasetning varðar skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. Íslandi ber skv. 7. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið að taka upp í landsrétt reglugerðir og tilskipanir sem eru teknar upp í samninginn. Reglugerðir ESB skal taka sem slíkar upp í landsrétt, sbr. a-lið greinarinnar. Ekki er gert ráð fyrir sambærilegum aðlögunum við upptöku á reglugerð (ESB) 2023/606 í EES-samninginn og gerðar voru við upptöku á ELTIF-reglugerðinni í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2020, sbr. umfjöllun í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um evrópska langtímafjárfestingasjóði, nr. 115/2022 (þskj. 137, 137. mál á 153. löggjafarþingi). Ekki er kveðið á um framsal valdheimilda til stofnana ESB í reglugerð (ESB) 2023/606. Innleiðing reglugerðarinnar í íslenskan rétt þykir því ekki fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá.

5. Samráð.
    Frumvarpið var samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samráði við Seðlabanka Íslands. Áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 7. apríl 2025 (mál nr. S-69/2025) og var opið fyrir umsagnir til 21. apríl 2025. Engar umsagnir bárust. Frumvarpsdrög voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 25. apríl 2025 (mál nr. S-80/2025) og frestur til umsagna veittur til 2. júní 2025. Engar umsagnir bárust.

6. Mat á áhrifum.
6.1. Hagræn áhrif á heildareftirspurn og einstaka markaði – hagstjórnarsjónarmið.
    Með innleiðingu reglugerðarinnar auk tengdrar framseldrar reglugerðar gætu ELTIF-sjóðir orðið áhugaverðari fjárfestingarkostur fyrir rekstraraðila sérhæfðra sjóða til að bjóða upp á, einkum þar sem reglurnar um sjóðina eru einfaldaðar og kvaðir minnkaðar. Verði boðið upp á slíka sjóði hér á landi gæti það leitt til fleiri fjármögnunarmöguleika fyrir innlenda aðila, svo sem í tengslum við innviðafjárfestingar. Þá er talið að breyttar reglur komi til með að draga úr kostnaði rekstraraðila sjóðanna.
    Tilgangur ELTIF-sjóða er að veita langtímafjármögnun til ýmissa verkefna sem erfitt getur verið að finna fjármagn fyrir, en eftir breytingar með reglugerð (ESB) 2023/606 skulu sjóðirnir fjárfesta a.m.k. 55% af fjármagni sínu í svokölluðum hæfum fjárfestingum. Hæfar fjárfestingar fyrir ELTIF-sjóði eru m.a. ýmis innviðaverkefni, t.d. á sviði samgangna eða orku, og einnig skulda- eða eiginfjárgerningar útgefnir af fjárfestingarhæfum fyrirtækjum, þ.e. óskráðum fyrirtækjum eða skráðum fyrirtækjum með markaðsverðmæti að hámarki 1,5 milljarða evra. ELTIF-sjóðir geta hentað þeim sem þurfa að fjárfesta til lengri tíma, eins og lífeyrissjóðum og vátryggingafélögum. Þá er með breytingunum möguleikar almennra fjárfesta til þátttöku auknir. Á móti verður seljanleiki hluta í sjóðunum minni en ef keyptir eru annars konar fjármálagerningar.
    Sjóðaformið hafði áður notið takmarkaðrar velgengni innan ESB. Því voru reglurnar endurskoðaðar. Frá því að reglurnar tóku gildi í ESB 10. janúar 2024 hefur sjóðum sem þessum fjölgað að einhverju leyti á því svæði, en ekki liggur þó enn fyrir hvaða áhrif breytingarnar á reglunum koma til með að hafa á eftirspurn eftir sjóðum sem þessum á fjármálamörkuðum.
    Evrópskir langtímafjárfestingasjóðir eru ekki starfræktir á Íslandi. Því er ekki talið að lagasetningin hafi bein áhrif á íslenskan fjármálamarkað að svo stöddu. Breytingunum á lögum um evrópska langtímafjárfestingasjóði er þó ætlað að gera slík sjóðaform eftirsóknarverðari fyrir rekstraraðila sérhæfðra sjóða og fyrir fjárfesta. Starfræksla slíkra sjóða gæti því haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag vegna eðlis þeirra sem langtímafjárfestingarsjóða sem fjárfesta t.d. í innviðaverkefnum.

6.2. Áhrif á fyrirtækjaeftirlit og reglubyrði.
    Reglurnar hafa einungis áhrif á þá rekstraraðila sérhæfðra sjóða sem ákveða að bjóða upp á umrædda ELTIF-sjóði. Slíkir sjóðir eru ekki starfræktir hér á landi.

6.3. Samkeppnisskilyrði.
    Ekki eru taldar líkur á því að fjöldi fyrirtækja á markaði verði takmarkaður eða að þeim fækki óbeint vegna fyrirhugaðrar lagasetningar.

6.4. Áhrif á jafnrétti kynjanna.
    Þar sem karlmenn eru í meiri hluta þeirra sem eiga og stjórna fyrirtækjum verða þeir að líkindum fyrir hagfelldum áhrifum af lögunum ef rekstraraðilar sértækra sjóða ákveða að bjóða upp á sjóði sem þessa. Þá er algengara að karlmenn stýri sérhæfðum sjóðum en konur og með því að fjölga þeim tegundum sérhæfðra sjóða sem eru í boði gætu fleiri störf skapast sem líkur eru á að verði frekar sinnt af körlum. Almennt hafa karlmenn einnig meiri tekjur en konur og hafa því að öllu jöfnu fleiri tækifæri til fjárfestinga á borð við þær sem fyrirhuguðum lögum er ætlað að ýta undir. Því eru líkur á því að samþykkt frumvarpsins hafi jákvæðari áhrif á karlmenn en konur.

6.5. Áætluð fjárhagsáhrif fyrir ríkið.
    Ekki er gert ráð fyrir auknum umsvifum Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar lagasetningar. Ekki er gert ráð fyrir neinum beinum áhrifum á ríkissjóð.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Lagt er til að reglugerðin verði tekin upp í íslenskan rétt með svokallaðri tilvísunaraðferð með breytingum á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022, og hún þá að fullu innleidd samkvæmt orðanna hljóðan í samræmi við a-lið 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993. Nánar tiltekið er lagt til að reglugerðinni verði veitt lagagildi hér á landi og vísað verði til birtingar hennar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB. Í 2. mgr. 2. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, kemur fram að við birtingu laga í A-deild Stjórnartíðinda, sem sett eru til að lögleiða samninga við önnur ríki og breytingar á þeim, þar á meðal EES-reglur, sé heimilt að vísa til birtingar skv. 4. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. laganna skal í C-deild Stjórnartíðinda birta samninga við önnur ríki og auglýsingar varðandi gildi þeirra. Tekið er fram í ákvæðinu að birting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar og þeirra gerða sem þar er vísað til í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins teljist jafngild birting að þessu leyti. Gert er ráð fyrir að afleidd gerð reglugerðarinnar, þ.e. framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2759, sem var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2025 frá 13. júní 2025, verði tekin upp í íslenskan rétt með stjórnvaldsfyrirmælum Seðlabanka Íslands. Mælt er fyrir um lagastoð til innleiðingar hennar í frumvarpinu.
    Í greininni er í a-lið lagt til að ákvæði reglugerðar (ESB) 2023/606, sem breytir reglugerð (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingasjóði (ELTIF), eins og gerðin hefur verið aðlöguð og tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025, skuli hafa lagagildi hér á landi. Frá gildistöku laga um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022, hefur ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2020 frá 7. febrúar 2020 verið birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Er því lagt til að tilvísun til birtingar ákvörðunarinnar verði breytt þannig að vísað verði til EES-viðbætisins þar sem ákvörðunin er birt í stað tilvísunar til birtingar í C-deild Stjórnartíðinda.
    Í ELTIF-reglugerðinni er nokkuð um vísanir til annarra Evrópugerða sem teknar hafa verið upp í íslenskan rétt. Í b–d- og g–h-lið greinarinnar er greint frá því hvar ákvæði viðkomandi tilskipunar hafa verið tekin upp í íslenskan rétt. Í e-lið er lagt til að tilvísun til málsgreinar ELTIF-reglugerðarinnar verði breytt vegna breytinga sem gerðar eru á reglugerðinni með reglugerð (ESB) 2023/606. Í f-lið er lagt til að felld verði brott málsgrein þar sem að tilvísun ELTIF-reglugerðarinnar sem þar er vísað til er breytt með reglugerð (ESB) 2023/606 og þar sem áður var vísað til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB og reglugerðar (EB) 809/2004 er nú vísað til reglugerðar (ESB) 2017/1129.
    Hér á eftir eru upplýsingar um þær reglugerðir ESB, sem vísað er til í ELTIF-reglugerðinni, sbr. breytingar með reglugerð (ESB) 2023/606. Þetta eru reglugerðir sem hafa verið teknar upp í íslenskan rétt eða þar sem upptaka er áformuð á næstunni:
     1.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012. Hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 og er innleiðing í landsrétt áformuð, með nýjum heildarlögum um verðbréfun.
     2.      Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1851 frá 28. maí 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um einsleitni undirliggjandi áhættuskuldbindinga í verðbréfun. Hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2024 frá 12. júní 2024 og er innleiðing áformuð með reglum Seðlabanka Íslands.
     3.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2631 frá 22. nóvember 2023 um evrópsk græn skuldabréf hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn og innleidd í landsrétt.
     4.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 frá 14. júní 2017 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og um niðurfellingu á tilskipun 2003/71/EB er innleidd með lögum um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, nr. 14/2020.

Um 2. gr.

    Lagðar eru til breytingar á 7. gr. laganna um stjórnvaldssektir sem leiðir af þeim breytingum sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2023/606, en þar eru felldar brott 26. og 28. gr. ELTIF-reglugerðarinnar og framsetningu og efni 27. og 30. gr. reglugerðarinnar er breytt. Breytingarnar tengjast evrópskum langtímafjárfestingarsjóðum sem eru markaðssettir og seldir til almennra fjárfesta en með reglugerð (ESB) 2023/606 er kröfum hvað það varðar breytt í því skyni að auka aðgengi almennra fjárfesta að slíkum sjóðum en á sama tíma er hugað að fjárfestavernd.

Um 3. gr.

    Lögð er til breyting á 13. gr. laganna um refsingu við broti sem leiðir af breytingu á framsetningu og efni 30. gr. ELTIF-reglugerðarinnar sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2023/606. Breytingarnar tengjast evrópskum langtímafjárfestingarsjóðum sem eru markaðssettir og seldir til almennra fjárfesta en með reglugerð (ESB) 2023/606 er kröfum hvað það varðar breytt í því skyni að auka aðgengi almennra fjárfesta að slíkum sjóðum en á sama tíma er hugað að fjárfestavernd.

Um 4. gr.

    Í a-lið ákvæðisins er lagt til að orðalagi reglusetningarheimildar Seðlabanka Íslands í 2. tölul. 1. mgr. 15. gr. laganna verði breytt vegna þeirra breytinga sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2023/606 á 18. gr. ELTIF-reglugerðarinnar um innlausnir á hlutdeildarskírteinum og hlutum í evrópskum langtímafjárfestingarsjóðum.
    Í b-lið ákvæðisins er lögð til ný reglusetningarheimild fyrir Seðlabanka Íslands vegna breytinga sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2023/606 á 19. gr. ELTIF-reglugerðarinnar í tengslum við sölu fjárfesta á hlutum eða hlutdeildarskírteinum þeirra í evrópskum langtímafjárfestingarsjóði sem skráður er á markað áður en líftíma ELTIF-sjóðs lýkur.
    Loks er í c-lið lögð til ný reglusetningarheimild um upplýsingagjöf um kostnað sem fjárfestar í evrópskum langtímafjárfestingarsjóðum bera, sbr. 3. mgr. 25. gr. ELTIF-reglugerðarinnar, sem fyrir yfirsjón var ekki lögð til við innleiðingu á reglugerðinni við setningu laga um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022.
    Með reglugerð (ESB) 2023/606 er 26. gr. ELTIF-reglugerðarinnar felld niður og þar með sú krafa sem gerð hefur verið til rekstraraðila evrópskra langtímafjárfestingarsjóða um að þeir þurfi að hafa aðstöðu fyrir almenna fjárfesta í þeim aðildarríkjum þar sem þeir markaðssetja evrópska langtímafjárfestingarsjóði. Er því lagt til að 4. tölul. 1. mgr. 15. gr. laganna falli brott.

Um 5. gr.

    Í því skyni að stuðla að trausti fjárfesta á ELTIF-sjóðum í rekstri er í 2. gr. reglugerðar (ESB) 2023/606 þegar starfandi ELTIF-sjóðum við gildistöku reglugerðarinnar gefinn fimm ára frestur til að uppfylla nýju reglurnar. Ef hins vegar þegar starfandi ELTIF-sjóðir safna ekki frekara fjármagni skulu þeir taldir uppfylla skilyrði reglugerðar (ESB) 2023/606. Þrátt fyrir þetta er þegar starfandi ELTIF-sjóðum einnig gefinn kostur á að heyra strax undir reglurnar með tilkynningu til lögbærs yfirvalds þar um. Á Íslandi eru engir ELTIF-sjóðir starfandi. Er því ekki talin þörf á því að kveða á um aðlögunarfrest fyrir slíka sjóði í frumvarpi þessu. Lagt er til að lögin taki þegar gildi.

Um 6. gr.

    Í ljósi þess að 26. gr. ELTIF-reglugerðarinnar er felld brott með reglugerð (ESB) 2023/606 er lagt til að felld verði brott sú krafa á rekstraraðila sérhæfðra sjóða um að uppfylla skuli ákvæði reglugerðarinnar um aðstöðu sem er aðgengileg almennum fjárfestum í þeim tilvikum sem rekstraraðili markaðssetur hlutdeildarskírteini eða hluti ELTIF-sjóðs fyrir almenna fjárfesta í öðru ríki innan EES en þar sem rekstraraðili er með staðfestu.