Ferill 123. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 158 — 123. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða þjónustugjöld hefur ráðuneytið heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi?
Ráðuneytið innheimtir ýmis gjöld á grundvelli laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991. Þau gjöld sem ráðuneytið innheimtir á grundvelli laganna eru í raun skattar en ekki þjónustugjöld, enda tilgreina ákvæðin nákvæma fjárhæð er skuli vera innheimt. Þjónustugjöld, sem eru gjaldtaka fyrir afmarkaða þjónustu, byggjast hins vegar á almennri lagaheimild þar sem kveðið er á um heimild til gjaldtöku án þess að fjárhæðin sé sérstaklega tilgreind.
Ráðuneytið innheimtir einungis þjónustugjöld fyrir útgáfu á nafnskírteinum á grundvelli laga um nafnskírteini, nr. 55/2023, en hér að aftan er yfirlit yfir mismunandi upphæð þjónustugjalda við útgáfu nafnskírteina:
| Tegund þjónustu | Upphæð | Tilvísun til lagaheimildar |
| Fyrir móttöku umsókna um nafnskírteini fyrir 18–66 ára. | 9.200 kr. | 2. gr. laga nr. 55/2023 og 10. gr. í gjaldskrá Þjóðskrár Íslands, nr. 1492/2024 |
| Fyrir móttöku umsókna um nafnskírteini fyrir 18–66 ára - hraðafgreiðsla. | 18.400 kr. | 2. gr. laga nr. 55/2023 og 10. gr. í gjaldskrá Þjóðskrár Íslands, nr. 1492/2024 |
| Fyrir móttöku umsókna um nafnskírteini fyrir börn, aldraða og öryrkja. | 4.600 kr. | 2. gr. laga nr. 55/2023 og 10. gr. í gjaldskrá Þjóðskrár Íslands, nr. 1492/2024 |
| Fyrir móttöku umsókna um nafnskírteini fyrir börn, aldraða og öryrkja - hraðafgreiðsla. | 9.200 kr. | 2. gr. laga nr. 55/2023 og 10. gr. í gjaldskrá Þjóðskrár Íslands, nr. 1492/2024 |
Ráðuneytið reiknar hvorki né áætlar sérstaklega þann kostnað sem hlýst af þjónustu vegna nafnskírteina heldur er um að ræða gjald samkvæmt gjaldskrá Þjóðskrá Íslands, nr. 1492/2024.