Ferill 157. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 163  —  157. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um stöðu og árangur í grunnskólum.

Frá Jóni Pétri Zimsen.


     1.      Hvaða lestrarkennsluaðferð er notuð í grunnskólum landsins? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
     2.      Hve stór hluti nemenda í grunnskólum landsins er ekki með íslensku sem móðurmál, þarf sérkennslu með einhverjum hætti eða getur ekki stundað nám í hefðbundnum hópum vegna hegðunarerfiðleika og þarf stuðning af þeim sökum? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum þar sem íbúar eru fleiri en 1.000.
     3.      Hve margir nemendur í 10. bekk teljast „skara fram úr“ samkvæmt hæfniþrepum PISA, þ.e. geta tekist á við ókunn og flókin viðfangsefni, valið og lagað aðferðir sjálfstætt og rökstutt niðurstöður, mótað og notað líkön og sannreynt lausnir í stærðfræði, síað frá truflandi atriði í lesskilningi, samþætt óbeinar upplýsingar úr mörgum textum og metið áreiðanleika heimilda og í náttúrufræði beitt hugtökum á nýjar aðstæður, hannað eða metið tilraunir, túlkað gögn og greint óvissu og takmarkanir? Svar óskast sundurliðað eftir námsgreinum og sveitarfélögum.
     4.      Hve margir nemendur í 10. bekk teljast „langt á eftir“ samkvæmt hæfniþrepum PISA, þ.e. ráða fyrst og fremst við kunnugleg, einföld verkefni með skýr fyrirmæli, að finna beinar upplýsingar í stuttum textum og gera einfaldar óbeinar ályktanir, beita venjubundnum aðferðum í stærðfræði, túlka einföld gröf og töflur, muna grunnhugtök í náttúrufræði, þekkja einföld orsakatengsl og lesa einföld mæligögn en eiga í erfiðleikum þegar verkefni eru ókunn, marghátta eða krefjast samþættingar margra heimilda eða abstrakt nálgunar? Svar óskast sundurliðað eftir námsgreinum og sveitarfélögum.
     5.      Hvernig hefur tekist að innleiða námsmatskerfi sem kom með greinanámskrá aðalnámskrár grunnskóla 2013? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum á eftirtöldum matskvarða:
                      a.      Hefur ekki verið innleitt,
                      b.      illa,
                      c.      þokkalega,
                      d.      vel,
                      e.      prýðilega.
     6.      Telur ráðherra þörf á samræmdu lokamati þar sem öll hæfniviðmið aðalnámskrár frá 2013, a.m.k. í íslensku, stærðfræði og erlendum tungumálum, eru metin með samræmdum hætti sem tryggir jafnræði og veitir nemendum, skólum og foreldrum upplýsingar um það hve vel nemendur hafa tileinkað sér hæfniviðmið að loknu 10 ára skyldunámi?

Skriflegt svar óskast.