Ferill 158. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 164 — 158. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um framkvæmd laga um opinberar eftirlitsreglur.
Frá Sigurði Erni Hilmarssyni.
1. Hvers vegna hefur skýrslu á grundvelli 8. gr. laga um opinberar eftirlitsreglur, nr. 27/1999, einungis tvisvar sinnum verið skilað til Alþingis? Hefur ráðherra í hyggju að gefa Alþingi slíka skýrslu?
2. Hvenær var ráðgjafarnefnd skv. 6. gr. laganna um eftirlit á vegum hins opinbera og framkvæmd laganna síðast skipuð?
3. Hversu margar eftirlitsreglur sem falla undir gildissvið laganna eru í gildi nú og hverjar eru þær?
4. Við setningu hverra, ef einhverra, af þessum eftirlitsreglum var ekki gætt skilyrða 3. gr. laganna um mat á þörf, gildi og kostnaði þjóðfélagsins af eftirliti, sbr. einnig 4.–7. gr. reglugerðar nr. 812/1999?
5. Hverjar af þessum eftirlitsreglum uppfylla ekki skilyrði 4. gr. laganna um takmarkaðan gildistíma eða endurskoðunarákvæði, sbr. einnig 17. gr. reglugerðarinnar?
6. Hvaða stjórnvöld, ef einhver, hafa ekki sinnt skyldu skv. 2. mgr. 4. gr. laganna um að senda ráðuneytinu tæmandi skrá yfir þær eftirlitsreglur sem stjórnvald setur?
Skriflegt svar óskast.