Ferill 159. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 165  —  159. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um farnetsþjónustu.

Frá Maríu Rut Kristinsdóttur.


     1.      Gerir ráðherra ráð fyrir að markmið sem sett var við útgáfu tíðniheimilda fyrir farnetsþjónustu í mars 2023 um 100% dekkun stofnvega fyrir árslok 2026 náist?
     2.      Hver er kostnaðar- og tímaáætlun verkefnisins af hálfu Öryggisfjarskipta ehf. ef markmiðið næst ekki? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum og eftir vegskilgreiningu Fjarskiptastofu A–D.
     3.      Hver hefur þróun dekkunar verið eftir að símafélög hófu að slökkva á eldri 2G-sendum?
     4.      Hvað hyggst ráðherra gera til að flýta framkvæmdum?


Skriflegt svar óskast.