Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 169  —  163. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um örorkubyrði lífeyrissjóða.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hvert var framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða árin 2005 til 2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Hvernig skiptist framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða milli lífeyrissjóða árin 2005 til 2025, í krónum talið og hlutfallslega, með vísan til núgildandi reglugerðar nr. 1540/2024 og eldri reglugerða um úthlutun og greiðslu fjárframlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða? Svar óskast sundurliðað eftir árum og lífeyrissjóðum.
     3.      Hver var örorkubyrði lífeyrissjóða sem lá til grundvallar úthlutun jöfnunarframlags árin 2005 til 2025 með vísan til núgildandi reglugerðar nr. 1540/2024 og eldri reglugerða um úthlutun og greiðslu fjárframlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða? Svar óskast sundurliðað eftir árum og lífeyrissjóðum.
     4.      Hvað skýrir það að sjóðir með litla hlutfallslega örorkubyrði hafa hlotið framlag til jöfnunar örorkubyrði frá ríkissjóði?
     5.      Hvers vegna hljóta lífeyrissjóðir með launagreiðendaábyrgð, svo sem sjóðir starfsmanna ríkis og sveitarfélaga, framlag frá ríkissjóði til jöfnunar örorkubyrði?
     6.      Hvernig er hlutdeild sjóða með launagreiðendaábyrgð reiknuð með vísan til núgildandi reglugerðar nr. 1540/2024 og eldri reglugerða um úthlutun og greiðslu fjárframlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða?
     7.      Hefur farið fram heildstætt mat á því hvort framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða hafi í raun jafnað réttindi sjóðfélaga milli sjóða sem starfa við mismikla örorkubyrði?


Skriflegt svar óskast.