Ferill 166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 173  —  166. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um fornskip.

Frá Ingvari Þóroddssyni.


     1.      Telur ráðherra heppilegt að miða við ártal þegar skip og bátar eru flokkaðir sem fornminjar, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga um menningarminjar, nr. 80/2012?
     2.      Hvaða aðrar aðferðir en fast ártal telur ráðherra heppilegar til viðmiðunar um hvenær skip og bátar teljist til fornminja?
     3.      Hver er málsmeðferð við friðlýsingu skipa og báta skv. 18. gr. laga um menningarminjar? Hvað er lagt til grundvallar við ákvarðanir um friðlýsingu skipa og báta?


Munnlegt svar óskast.