Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 174  —  167. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hefur ráðherra látið kanna hvort reglur um endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga taki til þess þegar læknistími fellur niður af hálfu heilbrigðisstofnunar án lögmæts fyrirvara?
     2.      Hefur ráðherra látið kanna hversu algengt er að læknistími falli niður eins og að framan greinir og hvaða kostnaðaráhrif það hefði ef réttur sjúklinga til endurgreiðslu yrði tryggður í slíkum tilvikum?
     3.      Hyggst ráðherra ráðast í heildarendurskoðun á endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga?


Munnlegt svar óskast.