Ferill 168. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 175 — 168. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um samstarf Grænlands og Íslands.
Frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur.
1. Hvernig hefur tvíhliða samstarfi Íslands og Grænlands verið háttað?
2. Hvaða tækifæri eru til að efla samstarf Íslands og Grænlands?
3. Hyggst ráðherra efla samstarf Íslands og Grænlands á sviði viðskipta og varnarmála? Ef svo er, hvernig?
4. Hyggst ráðherra efla samstarf Íslands og Grænlands á sviði félags- og menntamála? Ef svo er, hvernig?
Skriflegt svar óskast.