Ferill 171. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 178  —  171. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um fyrsta og annars stigs þjónustu á vegum sveitarfélaga.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hvaða úrræði teljast til fyrsta og annars stigs þjónustu í þágu barna sem sveitarfélög hafa umsjón með og bera ábyrgð á samkvæmt verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga að því er varðar þjónustu í þágu barna? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum og sveitarfélögum.
     2.      Hvaða ráð hafa sveitarfélög til að sinna því lögbundna hlutverki sínu að veita þjónustu á þessum stigum?
     3.      Hvaða ráð hafa framhaldsskólar til að sinna fyrsta og annars stigs þjónustu í þágu nemenda og tryggja farsæld þeirra?


Skriflegt svar óskast.