Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 183, 157. löggjafarþing 89. mál: dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim (riðuveiki o.fl.).
Lög nr. 67 21. október 2025.
Matvælastofnun er heimilt að takmarka eða banna flutning á öllu því sem borið getur smitefni, þar á meðal dýrum, vörum, afurðum, fóðri eða tækjum á milli eða innan sóttvarnarsvæða eða landsvæða, bæja og starfsstöðva, samkvæmt flokkun á grundvelli 3. mgr. 7. gr. telji stofnunin að það valdi eða sé líklegt til að valda útbreiðslu sjúkdóma meðal dýra.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að skilgreina arfgerðir þess fjár sem má flytja yfir varnarlínur og arfgerðir fjár sem ekki má flytja yfir varnarlínur.
Þingskjal 183, 157. löggjafarþing 89. mál: dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim (riðuveiki o.fl.).
Lög nr. 67 21. október 2025.
Lög um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 (riðuveiki o.fl.).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
2. gr.
Við c-lið 1. tölul. 8. gr. laganna bætist: þ.m.t. ræktun.3. gr.
1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:Matvælastofnun er heimilt að takmarka eða banna flutning á öllu því sem borið getur smitefni, þar á meðal dýrum, vörum, afurðum, fóðri eða tækjum á milli eða innan sóttvarnarsvæða eða landsvæða, bæja og starfsstöðva, samkvæmt flokkun á grundvelli 3. mgr. 7. gr. telji stofnunin að það valdi eða sé líklegt til að valda útbreiðslu sjúkdóma meðal dýra.
4. gr.
Við 2. málsl. 17. gr. laganna bætist: skv. 8. gr. eða ákvörðun Matvælastofnunar samkvæmt reglugerðum settum með stoð í 7. gr.5. gr.
Í stað orðanna „samkvæmt fyrirmælum ráðherra að tillögum Matvælastofnunar“ í 1. mgr. 20. gr. laganna kemur: skv. 8. gr. eða ákvörðun Matvælastofnunar samkvæmt reglugerðum settum með stoð í 7. gr.6. gr.
2. mgr. 25. gr. laganna orðast svo:Ráðherra er heimilt með reglugerð að skilgreina arfgerðir þess fjár sem má flytja yfir varnarlínur og arfgerðir fjár sem ekki má flytja yfir varnarlínur.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 26. gr. laganna:- Á eftir orðinu „ráðherra“ tvívegis kemur: eða Matvælastofnunar.
- Á eftir orðunum „samkvæmt lögum þessum“ kemur: eða reglugerðum settum samkvæmt þeim.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 9. október 2025.