Ferill 92. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 184  —  92. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um úrbætur vegna umferðarflæðis og umferðaröryggis í Grafarvogi.


Inngangur – almennt um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og Grafarvog.
    Í framkvæmdaáætlun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er gert ráð fyrir fjármagni í sameiginlegan útgjaldalið; umferðarstýringu, aukið umferðarflæði og öryggisaðgerðir. Fjármagn þessa liðar er nýtt í ljósastýringar, smærri framkvæmdir á stofnvegum til að bæta flæði og öryggi og smærri framkvæmdir vegna almenningssamgangna.
    Verkefnum er forgangsraðað og úthlutað fjármagni ár frá ári í úrbætur á stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu og umferðarstýringar sem eru í sameiginlegri eigu og ábyrgð sveitarfélaganna og Vegagerðarinnar (þar sem stofnvegur og sveitarfélagsgata mætast).
    Nú er einn stofnvegur í Grafarvogi, Hallsvegur milli Gullinbrúar og Víkurvegar. Gerðar hafa verið öryggisúrbætur á tveimur gönguþverunum yfir Hallsveg á síðustu árum fyrir fjármuni samgöngusáttmálans en sé þess þörf kemur til greina að grípa til frekari aðgerða til að auka öryggi vegfarenda á Hallsvegi.
    Höfðabakki og Gullinbrú, frá Smiðjuvegi í Kópavogi að Hallsvegi í Grafarvogi, voru áður stofnvegir en voru færðir úr flokki stofnvega í flokk sveitarfélagsvega samhliða yfirfærslu á fleiri svokölluðum skilavegum árið 2022 í samræmi við ákvæði í vegalögum frá 2007.
    Fimmta lota borgarlínu á samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að fara milli Stórhöfða og Spangar í Grafarvogshverfi um Gullinbrú, Fjallkonuveg, Hallsveg, Langarima og Borgarveg. Í framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans er áætlað að framkvæmdir við þá lotu hefjist árið 2033. Hönnun og undirbúningur innviða er því skammt á veg kominn.
    Einnig er áformað að byggja upp og bæta hjólastíga meðfram hluta fimmtu lotu. Þótt stærstur hluti innviðauppbyggingar fyrir borgarlínu í Grafarvogi sé ekki áætlaður fyrr en árið 2033 er gert ráð fyrir smærri framkvæmdum, t.d. við stöðvar, gönguþveranir og gatnamót, fyrir þann tíma. Það er til að borgarlínuleið B, sem ekur á milli Egilshallar og HÍ, geti hafið akstur árið 2031 þegar framkvæmdum við innviði fyrstu lotu á að ljúka og innleiða á nýtt leiðanet almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.

     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að gerðar verði úrbætur vegna umferðarflæðis og umferðaröryggis frá Gullinbrú að Rimaflöt í Grafarvogi í samræmi við ákvæði samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Sérstakar aðgerðir til að bæta umferðarflæði og -öryggi frá Gullinbrú að Rimaflöt í Grafarvogi eru ekki á áætlun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Úrbætur verða gerðar á hluta Gullinbrúar með tilkomu borgarlínu en útfærsla þeirra aðgerða liggur ekki fyrir. Sjá almennt svar í inngangi.

     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ráðist verði í aðgerðir til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda sem eiga leið um útivistarsvæðið við Gufunesbæ í Grafarvogi í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Sérstakar aðgerðir til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda sem eiga leið um útivistarsvæðið við Gufunesbæ í Grafarvogi eru ekki á áætlun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sjá almennt svar í inngangi.

     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að öruggum, merktum og upplýstum gönguþverunum verði fjölgað í Grafarvogi til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, m.a. við Langarima, Lokinhamra, Foldahverfi og atvinnusvæði við Gylfaflöt, í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Sjá almennt svar í inngangi.

     4.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að gerðar verði úrbætur vegna umferðarflæðis og umferðaröryggis að Egilshöll í Grafarvogi í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Borgarlínuleið B mun aka um Gullinbrú, Fjallkonuveg, Hallsveg, Langarima, Borgarveg, Mosaveg og hluta Víkurvegar í Grafarvogi og enda ferð sína við Egilshöll samkvæmt nýju leiðaneti almenningssamganga. Áður en akstur þeirrar leiðar hefst er gert ráð fyrir smærri framkvæmdum á umræddum götum Grafarvogs. Sjá almennt svar í inngangi.

     5.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að gerðar verði úrbætur vegna umferðarflæðis og umferðaröryggis vegna gatnamóta við Höfðabakka (Bíldshöfða, Dvergshöfða og Stórhöfða) í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Nú stendur yfir verkefni sem felur í sér endurnýjun umferðarljósa á fimm gatnamótum á Höfðabakka, við Stórhöfða, Dvergshöfða, Bíldshöfða, Vesturlandsveg og Bæjarháls. Núverandi umferðarljós á Höfðabakka eru komin til ára sinna. Endurnýjaður búnaður mun bjóða upp á rauntímastýringu umferðarljósanna þar sem nýrri tegund radarskynjara verður komið fyrir þannig að unnt verði að ákvarða stýringu út frá umferðarflæði á hverjum tíma.
    Einnig verða gerðar endurbætur með tilliti til umferðaröryggis á gatnamótunum. Við Stórhöfða, Dvergshöfða og Bíldshöfða verða gerðar endurbætur á umferðarljósum og á gönguleiðum, miðeyjur á Höfðabakka verða breikkaðar og götulýsing bætt.
    Verkefnið er fjármagnað að hluta til með fjármunum samgöngusáttmála, m.a. með vísan í samninga milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga um framkvæmdir til að uppfylla kröfur um ástand skilavega.