Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 186  —  176. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um skipan stjórnar yfir Sjúkrahúsið á Akureyri.


Flm.: Ingibjörg Isaksen.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, þess efnis að sett verði á fót stjórn yfir Sjúkrahúsið á Akureyri með sambærilegu fyrirkomulagi og gildir um Landspítala skv. 8. gr. a laganna og reglugerð nr. 831/2022 um stjórn Landspítala.
    Með því verði stjórnskipulag og faglega ábyrgð í rekstri Sjúkrahússins á Akureyri styrkt, stefnumótandi hlutverk spítalans eflt og gagnsæi og skilvirk nýting opinbers fjár betur tryggð.
    Ráðherra leggi frumvarpið fram eigi síðar en 1. febrúar 2026.

Greinargerð.


    Á 155. löggjafarþingi voru á þingmálaskrá áform heilbrigðisráðherra um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, um skipan stjórnar yfir Sjúkrahúsið á Akureyri. Í áformunum kom fram að markmið breytingarinnar væri að tryggja að stærstu heilbrigðisstofnanir landsins hefðu sambærilega stjórnunaruppbyggingu og að efla faglega og rekstrarlega stjórnun spítalans.
    Stjórn Landspítala starfar nú samkvæmt ákvæðum 8. gr. a laga nr. 40/2007 og reglugerð nr. 831/2022, þar sem kveðið er á um fimm manna stjórn sem ráðherra skipar til tveggja ára í senn, með tveimur varamönnum og tveimur áheyrnarfulltrúum úr hópi starfsmanna. Stjórnin markar stefnu spítalans í samræmi við stefnumörkun ráðherra, yfirfer árlega starfs- og fjárhagsáætlanir og veitir ráðherra tillögur um skipun forstjóra.
    Reynsla af þessu fyrirkomulagi hefur verið jákvæð. Samstarf forstjóra og stjórnar Landspítala hefur gengið vel og rekstur spítalans batnað, m.a. má nefna að hann hefur verið rekinn innan fjárheimilda þrjú ár í röð.
    Sjúkrahúsið á Akureyri er ein af stærstu heilbrigðisstofnunum ríkisins, bæði hvað snertir umfang þjónustu og fjárheimildir, og sinnir veigamiklu hlutverki í heilbrigðisþjónustu landsins sem kennslu- og varasjúkrahús Landspítala. Það er því eðlilegt og tímabært að taka upp sambærilegt stjórnfyrirkomulag þar og á Landspítala.
    Með því að koma á laggirnar stjórn yfir Sjúkrahúsið á Akureyri er ætlunin að efla stefnumótandi stjórnun, auka ábyrgð og eftirlit með rekstri og stuðla að markvissari ráðstöfun opinberra fjármuna. Samkvæmt fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 nema heildarútgjöld til sjúkrahúsþjónustu yfir 187 milljörðum kr. árið 2026 og hækka árlega. Svo umfangsmikill rekstur kallar á skýra stjórnsýslu og faglegt aðhald sem stjórn getur tryggt.
    Með samþykkt þessarar þingsályktunartillögu yrði heilbrigðisráðherra falið að fylgja eftir áformaðri lagasetningu og leggja fram frumvarp um skipan stjórnar yfir Sjúkrahúsið á Akureyri til að tryggja sambærilegt stjórnkerfi og nú gildir um Landspítala.