Ferill 119. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 189  —  119. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um ástandið í Súdan.


     1.      Hefur ráðherra vakið máls á ástandinu í Súdan á alþjóðlegum vettvangi? Ef svo er, með hvaða hætti?
    Ráðherra vakti máls á ástandinu í Súdan í erindum sínum á vettvangi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í september sl. Þannig gagnrýndi ráðherra skeytingarleysi alþjóðasamfélagsins gagnvart alþjóðalögum og alþjóðlegum skuldbindingum í ræðu sinni fyrir allsherjarþinginu og nefndi m.a. stríðið í Súdan sem birtingarmynd þess. Þá tók ráðherra til máls á fundi ráðherra, háttsettra embættismanna og framkvæmdastjóra mannúðarsamtaka um alþjóðlega mannúðaraðstoð. Rætt var um það flókna og alvarlega ástand sem skapast hefur fyrir íbúa Palestínu, Jemen, Sýrlands og Súdan. Ráðherra lagði m.a. áherslu á að ekki mætti gefa neinn afslátt af alþjóðlega samþykktum viðmiðum í mannúðarstarfi í þessum ríkjum og að tryggja þurfi fyrirsjáanleika í fjármögnun þeirra stofnana sem sinna þessu starfi. Í erindinu beindi ráðherra máli sínu sérstaklega að þeirri neyð sem hefur skapast í Súdan vegna hungursneyðar og fólksflutninga.
    Á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hefur Ísland fjórum sinnum minnst á málefni Súdan í umræðum ráðsins á yfirstandandi ári, bæði á eigin vegum og sem meðflutningsaðili með Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum (NB8). Í haustlotu ráðsins var tekin til umfjöllunar ályktun um endurnýjað umboð rannsóknarnefndar um stöðu mannréttinda í Súdan. Í ályktuninni voru umfangsmikil mannréttindabrot og brot á alþjóðalögum í Súdan fordæmd. Ísland greiddi atkvæði með ályktuninni sem var samþykkt með 24 atkvæðum gegn 11, en 12 ríki sátu hjá.
    Þá má nefna að í júní sl. var Ísland aðili að sameiginlegri yfirlýsingu Norðurlandanna í opinni umræðu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þar sem vakin var athygli á stöðu barna í Súdan og á fleiri átakasvæðum.
    Í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkis- og alþjóðamál árið 2024 er sagt frá því starfi sem utanríkisráðuneytið hefur unnið að í málefnum Súdan í köflum um mannúðarmál, um starf hjá alþjóðastofnunum og um samstarf við frjáls félagasamtök.

     2.      Hefur sérstökum fjármunum verið varið í stuðning vegna ástandsins í Súdan? Ef svo er, er óskað eftir sundurliðun á því.
    Undanfarin þrjú ár hefur Ísland veitt 410 millj. kr. í beinan stuðning við aðgerðir vegna ástandsins í Súdan. Framlögunum var skipt á milli þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna sem hér segir:

Stofnun 2023 2024 2025
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) 50.000.000 70.000.000 40.000.000
Samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) 30.000.000 60.000.000 40.000.000
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) 80.000.000 40.000.000

    Að auki renna fjárframlög Íslands til áherslustofnana í þróunarsamvinnusamstarfi og mannúð að einhverju leyti til Súdan með óbeinum hætti.
    Á nýafstöðnu allsherjarþingi í New York átti ráðherra fund með framkvæmdastjóra Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) og undirritaði hún við það tilefni nýjan samning um 50 millj. kr. árlegt framlag 2026–2028 til sjóðs UNFPA og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um afnám limlestinga á kynfærum kvenna og stúlkna. Súdan er eitt þeirra 18 ríkja sem njóta góðs af því verkefni. Um er að ræða tæplega tvöföldun á framlögum til sjóðsins sem Ísland hefur stutt við í hátt í 15 ár.
    Utanríkisráðuneytið styrkir einnig frjáls félagasamtök, til að mynda Rauða krossinn og Hjálparstofnun kirkjunnar, sem bæði hafa beint hluta af framlögunum til mannúðarverkefna í Súdan.