Ferill 183. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 195  —  183. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um stöðu NEET-hópsins og úrræði í heilbrigðiskerfinu.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hversu margir einstaklingar á aldrinum 18–29 ára teljast til NEET-hópsins (ekki í vinnu, virkni eða námi) samkvæmt gögnum ráðuneytisins fyrir árið 2024 og árið 2025?
     2.      Hvaða úrræði standa nú til boða í heilbrigðiskerfinu fyrir þennan hóp eftir að samningur við Janus endurhæfingu rann út?
     3.      Hversu margir einstaklingar þiggja þjónustu í þeim úrræðum sem komið hafa í staðinn og hvernig skiptast þeir niður á landshluta?
     4.      Hver er áætlaður kostnaður ríkisins við þessi nýju úrræði fyrir árið 2025 og árið 2026?


Skriflegt svar óskast.