Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 199  —  129. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Tryggva Mássyni um þjónustugjöld.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða þjónustugjöld hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess heimild til að innheimta, hver er fjárhæð hvers þjónustugjalds, hver er lagastoð fyrir hverju gjaldi og hvaða útreikningur eða áætlun á þeim kostnaði sem hlýst af því að veita umrædda þjónustu liggur til grundvallar hverju gjaldi? Svar óskast sundurliðað eftir stofnun.

    Öll þjónustugjöld sem stofnanir ráðuneytisins innheimta eru birtar í gjaldskrám sem eru samþykktar af ráðuneytinu og auglýstar í B-deild Stjórnartíðinda. Í gjaldskrám kemur jafnframt fram á hvaða lagaheimild gjaldtakan er byggð. Upphæð þjónustugjalda er ætlað að endurspegla raunkostnað við veitta þjónustu, svo sem tímagjald vegna vinnu sérfræðings. Gjaldskrár undirstofnana má sjá í eftirfarandi yfirliti:

Stofnun Gjaldskrá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið Innheimtir ekki þjónustugjöld.
Land og skógur Stofnuninni er heimilt að setja gjaldskrá á grundvelli laga um skóga og skógrækt, nr. 33/2019, og laga um landgræðslu, nr. 155/2018, en hefur ekki gert það.
Minjastofnun Íslands Stofnuninni er heimilt að setja gjaldskrá á grundvelli laga um menningarminjar, nr. 80/2012, en hefur ekki gert það.
Náttúrufræðistofnun Gjaldskrá fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands nr. 345/2025.
Reglugerð nr. 324/2025 um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
Náttúruverndarstofnun Gjaldskrá fyrir verkefni og þjónustu Náttúruverndarstofnunar nr. 354/2025.
Umhverfis- og orkustofnun Gjaldskrá fyrir verkefni og þjónustu Umhverfis- og orkustofnunar nr. 1033/2025.
Gjaldskrá fyrir norræna umhverfismerkið Svaninn nr. 1032/2025.
Veðurstofa Íslands Gjaldskrá fyrir þjónustu Veðurstofu Íslands nr. 943/2006, með síðari breytingum.
Veðurstofa Íslands starfar á viðskiptagrundvelli á samkeppnismarkaði og er sá hluti starfseminnar fjárhagslega aðskilinn öðrum þáttum rekstrarins. Stofnunin gefur út viðmiðunargjaldskrá vegna þeirrar þjónustu og byggist sala á henni á samningum.
Íslenskar orkurannsóknir ÍSOR starfar á viðskiptalegum grundvelli á samkeppnismarkaði og aflar sér tekna með sölu á rannsóknum, ráðgjöf, þjónustu og upplýsingum eða öðrum verkefnum.
Úrvinnslusjóður Innheimtir ekki þjónustugjöld.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála Innheimtir ekki þjónustugjöld.